Verslun

  • Rollfix málböndin eru þýsk gæðaframleiðsla og vinsælustu málböndin hjá okkur. Þau eru þægileg í notkun; málbandið er dregið út og er með stoppara. Dregið aftur inn með því að ýta á miðjuna. Skelin er úr sterku ABS plasti og fást með alls konar skreytingum. Málbandið sjálft er líka úr endingargóðu efni sem teygist ekki. Merkingin er svört á hvítum grunni. Skelin er 5 cm í þvermál og málbandið mælir bæði í cm og tommum. Lengd 150 cm.
  • Afsláttur!
    Symfonie heklunálarnar eru úr marglituðu birki með slétta og mjúka áferð svo garnið rennur vel á yfirborðinu. Oddurinn fremst á króknum er hæfilega beittur til að komast auðveldlega í gegnum lykkjurnar.
  • Fíngerður teygjutvinni fyrir handsaum eða vélsaum. Einnig hægt að nota í prjóni til að þrengja hálsmál eða stroff á ermum. 10m á kefli
  • Auðveldar að ná taki á nálinni. 2 stk. í pakka.
    • Með fingurbjörgina á vísifingri er auðveldara að draga nálina í gegnum efnið.
    • Sveigjanleg svo hún passi betur á fingurinn.
    • Örsmá göt svo fingurbjörgin andi.
    Fást í tveimur stærðum
    • Miðstærð (#6031) - 16 mm
    • Stór (#6032) - 18 mm
  • Nálahús með 3 jafanálum. Bogni oddurinn gerir það auðveldara að þræða nálina í gegnum lykkjur. Nálarhúsið er með áskrúfuðu loki sem geymir nálarnar vel. Nálarnar eru nr. 15 (2 stk.) og nr. 17 (1 stk.). Fleiri nálahús með nálum fáanleg:
    • Jafanálasett (# 339)
    • Jumbo jafanálasett (# 340)
    • Jafanálasett með fínum nálum (# 3168)
     
  • Prjónamerkin eru búin til úr stáli með gull, silfur eða koparlitaðri húð og festast við segul. Í pakkningunni eru: Stórir hringir  fyrir allt að 10 mm prjóna, litlir hringir fyrir allt að 5,5 mm prjóna og merkikrækjur fyrir allt að 8 mm prjóna. Samtals 54 merki í öskju úr kraftpappír með segulloku.
    • 6 gulllitaðir, silfurlitaðir og koparlitaðir minni hringir.
    • 6 gulllitaðir, silfurlitaðir og koparlitaðir stærri hringir.
    • 6 gulllitaðar, silfurlitaðar og koparlitaðar merkikrækjur.
  • Efni: Sterkur pappír sem hægt er að þvo. Innihald: Fjögur hólf, þríhyrningslaga sem lokast eins og umslag með smellum. Þrjár marglitar teygjur sem er hægt að nota á ýmsa vegu. Utan um hvern hólk er beinhvít teygja. Stærð: Ytri mál eru 16,5 cm x 6,3 cm x 6,3 cm. Innri mál hvers hólks eru 14,5 cm x 4,5cm x 2,5 cm. Hugmyndin á bak við hönnunina er að halda skipulagi á smáhlutunum. Setjið prjónamerkin og annað sem fylgir ykkur í hólfin, takið öll með eða bara eitt með því sem skiptir máli hverju sinni, því þau eru fest saman með smellum. ATH. Innihald sem sést á mynd fylgir ekki með.
  • SOAK Mini er bréf með þvottalegi sem dugar í stóra peysu eða 2-3 þvotta ef um minni flík er að ræða. Hentug eining fyrir þá sem vilja prófa SOAK eða hafa með sér á ferð. Hvað er Soak? Soak er nútíma þvottalögur sem er umhverfisvænn. Þvottur með Soak er þægilegur, því ekki þarf að skola. Þú leggur í bleyti setur teskeið af Soak og lætur liggja í 20-30 mínútur. Mikilvægt að hafa vatnið ylvolgt eða kalt. Sparar tíma og vinnu við handþvott og fer vel með flíkina/prjónaverkefnið. Soak er frábær þvottalögur til nota fyrir allt sem við prjónum, heklum eða saumum. Allt annað sem er viðkvæmt s.s. fínn undirfatnaður, mjúkar peysur, ungbarnafatanaður, bútasaumsteppi, sundföt, líkamsræktarfatnaður og allt annað sem þú vilt fara sérstaklega vel með. Notkun: Leggja í bleyti og kreista. Þarf ekki að skola. Leggja flatt til þerris. Alltaf skynsamlegt að kanna hve litekta flík er áður en hún er lögð í bleyti. Veldu ilm eða ilmlaust hér fyrir neðan.
  • Soak Flatter er úði án sterkju sem sléttir, afrafmagnar og frískar upp. Óþarfi að þvo peysuna (eða flíkina) eins oft ef Flatter er til staðar. Mild umhverfisvæn formúla. Flatter auðveldar straujun bæði með eða án gufu. Úðað er jafnt yfir flíkina. Endurtekið ef óskað er eftir meiri stífni. Notað til að fríska upp á flíkur á milli þvotta eða til að koma í veg fyrir krumpur.
  • Höfundur: Kazuko Aoki Útgefandi: Shambhala Publications Inc (2015)
    Mjúkspjalda | 96 bls. Tungumál: Enska Þyngd: 340 g | Mál: 211 x 258 x 6 mm

    The Embroidered Garden : Stitching through the Seasons of a Flower Garden

    Dásamlega falleg útsaumsbók eftir japanska höfundinn Kazuko Aoki. Það sést að áhugasviðið nær yfir garðyrkju jafnt sem útsaum. Kazuko Aoki yfirfærir fegurðina úr garðinum yfir í útsauminn á einstakan hátt. Fjörtíu mynstur endurspegla blómagarðinn og líka býflugurnar og fiðrildin. Teikningarnar sýna verkefnin vel og fyrir þá sem þurfa þá er aðferðirnar líka útskýrðar vel. Útsauminn er svo hægt að útfæra í barmnælur, bókakápur, nálapúða og poka.
  • Höfundur: Zoe Bateman Útgefandi: Octopus Publishing Group (2020)
    Mjúkspjalda | 160 bls. Tungumál: Enska Þyngd: 560 g | Mál: ‎188 x 244 x 16 mm
    Þú vilt læra að hekla en einhverra hluta vegna endarðu með garnflækju og skilur ekkert í neinu. Þessi byrjendavæna bók byrjar á grunninum, útskýrir vel og vandlega staf fyrir staf allt sem maður þarf að læra til að geta heklað. Þú lærir að gera rennilykku, loftlykkju, auka út og taka úr, hekla í hring,  auk annara atriða sem skipta máli. Um leið og þú ert búin/n að ná aðalatriðunum, eru í bókinni 15 auðveld verkefni, allt frá litríkum pottaleppa til heklaðs teppis.  Eftir því sem verkefnin verða flóknari nærðu betri æfingu og tökum á hekltækninni. Þegar þú lýkur við bókina mundu geta heklað mismunandi verkefni eins og farsímaveski, leikfang, vegghengi  og húfu.  Gefðu þér tíma og lærðu nýja aðferð og njóttu þess að hekla eitthvað fallegt fyrir þig og þína.. Verkefni í bókinni: - Dúskahúfa - Körfur - Púðar - Leikfang - Innkaupataska - Ennisband - Kaffibollahlíf - Svefngríma

  • Höfundur: Bristol Ivy
    Útgefandi: Pom Pom Press (2019)
    Mjúkspjalda | 108 bls. Tungumál: Enska Þyngd: 391 g Þetta er önnur bók hins þekkta prjónhönnuðar Bristol Ivy. Áður kom út 2017 bókin Knitting Outside the Box. Í þessari bók beinir hún sjónum að sex mismunandi flíkum sem eru allar með sniði sem er í ætt við klæðskerasniðnar flíkur með fellingar og "draperingar". Elegant peysa, þrjár opnar peysur og tveir kragar/hringtreflar endurskapaðir í anda Bristol Ivy. Hún endurhugsar hvernig peysur eru sniðnar og fara á líkamanum.
  • Má kynna þig fyrir nýju Della Q Hook & Needle Notebook eða áhaldamöppunni, sem er hönnuð til að einfalda líf þeirra sem prjóna og hekla. Þetta er skipulagsmappa með síðum/spjöldum sem hefur hver með sinn tilgang og geymir á vísum stað heklunálar, prjóna, smáhluti, uppskriftir/mynstur o.fl. Hver mappa inniheldur fjórar síður og bráðlega verður einnig hægt að fá stakar viðbótarsíður. Á innanverðri kápunni eru tvær frágangsnálar, málband, skæri og þægilegur renndur vasi fyrir alls konar smádót. Kemur í 5 litum sem eru í stíl við hringprjónamöppuna. Flettið í gegnum allar myndirnar til að skoða innihald möppunnar. Þessi mappa er vönduð og gerð til að endast. Síður sem fylgja með Hook & Needle Notebook eru:
    • fyrir sokkaprjóna eða heklunálar
    • fyrir heklunálar eða prjónaodda
    • fyrir hringprjóna eða fylgihluti
    • innbyggður gegnsær renndur poki
    STÆRÐ | 26,7 cm (hæð) x 23 cm (breidd) x 6,5 cm (dýpt)
    • Útsaumsnálar með stóru auga.
    • Nálarnar renna vel í gegnum efni.
    • Nálarnar eru með gyllt auga sem auðveldara er að þræða.
    • Nálarnar eru sérstaklega hertar svo þær bogna hvorki né brotna.
    • Nálaroddarnir eru beittir.
  • Þræðir grófari og fínni saumnálar auðveldlega. Nálarauganu er stungið niður í gat, tvinninn lagður þvert yfir,  ýtt á takka og nálin þræðist! Auðvelt, þægilegt og tímasparandi. Passar fyrir flestar Clover saumnálar (0.51-0.89 mm) sem eru fyrir alls konar bútasaum og handsaum.
  • Air erasable merkipennarnir eru góðir þegar þegar merkja þarf fyrir saumum eða öðru á ljós og dökk efni efni. Það gefst nægur tími áður en merkingin hverfur. Leyfið blekinu að hverfa af sjálfu sér eða strokið merkinguna út með strokleðrinu á hinum enda pennans. Tíminn sem það tekur fyrir merkingarnar að hverfa alveg fer eftir rakasigi, hitastigi og magni bleks á efninu.
  • Garnleiðari er settur upp á vísifingur vinstri handar í tvíbanda- eða þríbandaprjóni. Þá haldast litirnir aðskildir svo auðveldara verður að láta ríkjandi og víkjandi liti vera á sínum stað. Fæst fyrir fínna garn og grófara garn. Ath. litir geta verið mismunandi.  
  • Prjónatappar úr sílíkóni sem koma í veg fyrir að lykkjurnar renni fram af prjónunum. Minni stærð: Fyrir prjóna 2 mm - 4,5 mm (#333-S). Stærri stærð: Fyrir prjóna 3,75 mm - 6,5 mm (#333-L). 4 stk. í pakka.  
  • Löngu Cubics sokkaprjónarnir frá Knit Pro eru góðir í sokkaprjón, vettlingaprjón, ermar og hálsmál. Cubics prjónar eru ferkantaðir prjónar úr birki, hafa slétta og mjúka áferð og oddarnir eru góðir. Cubics prjónar hentar þeim sem prjóna laust eða halda laust um prjónana og þeim sem vilja prjóna þéttar. Lögunin á prjónunum veldur því að það er þægilegt að halda á þeim, gripið þarf ekki að vera eins þétt og þeir renna síður í höndunum. Prjónastærðin er mæld með sama hætti og ávölu, venjulegu prjónarnir. Fást einnig 15 cm langir. Knit Pro prjónarnir eru framleiddir í Indlandi við bestu mögulegar aðstæður fyrir starfsfólk. Þar á sér stað stöðug vöruþróun og þarfir prjónara eru alltaf í fyrirrúmi.
  • FINNISH KNITS Aukatímarit frá LAINE (á ensku) með 18 uppskriftum eftir þekktustu prjónhönnuði Finnlands. Peysur og sokkar, áhugaverðar greinar og eins og alltaf, dásamlega fallegar myndir.
  • ATH. Helga verður í Storkinum laugardaginn 15. mars kl. 10-12 til að veita nánari upplýsingar um námskeiðið. Velkomin að kíkja í heimsókn.  ÞRJÚ SKIPTI Laugardagur 5. apríl kl. 10-12 Miðvikudagur 9. apríl kl. 17:30-19:30 Laugardagur 12. apríl kl. 10 – 12
    Helga Thoroddsen prjónhönnuður býður upp á námskeið í að prjóna peysurnar Rák og/eða Röst. Peysurnar eru báðar úr einstaklega fallegu og litríku bandi frá Urth Yarns og eru prjónaðar ofan frá og niður með margvíslegum smáatriðum í hönnun og litasamsetningum. Á námskeiðinu verða kenndar tvær ólíkar tengiaðferðir auk þess sem þátttakendur fá aðstoð við litaval og hvernig hægt er að aðlaga peysurnar þannig að þær passi viðkomandi sem best. Tengiaðferð: Aðferð sem felur í sér að prjóna alla hluta peysunnar saman (tengja) þannig að hvergi er saumur. Þátttakendur hafi með sér: · Prjóna – ýmsar stærðir og lengdir. · Hjálparhluti í prjóni, s.s. prjónamerki, málband, skæri o.s.frv. · Rissbók/blað, blýant og strokleður. · Band í prufuprjón (einnig verður band í boði á staðnum).
    Kennari: Helga Thoroddsen Innifalið: Hressing á námskeiðum, 15% afsláttur í Storkinum af uppskrift og garni í peysuna og reyndar öllu öðru á meðan á námskeiðstíma stendur. Verð: 19.500 kr.
  • Vettlingapakki LATVIAN GREY #06 Þessar pakkningar innihalda vettlingauppskrift með mynsturteikningu og ullargarni. Vettlingamynstrin eiga rætur að rekja til ýmissa svæða í Lettlandi. Hvert vettlingapar hefur sína sögu og sína merkingu. Í Lettlandi hafa vettlingar verið aðalgjafirnar um aldaskeið. Nú til dags eru þeir, í öllum sínum litríku útgáfum, enn mikilvægur hluti af vetrarklæðnaði fólks. Allar pakkningarnar innihalda 100% nýull frá bóndabæ í eigu fjölskyldu sem vinnur ullina sjálf fyrir spunann. Allt er handgert, þ.m.t. kassinn. Í Knit Like a Latvian pakkningunni er:
    • litprentuð mynsturteikning
    • 100% ull í litum sem duga í vettlingapar í stærð M/L
    • vettlingauppskrift
    Ráðlagðir prjónar: 1,5mm - 3 mm – prjónarnir fylgja ekki með. Við mælum með handþvotti í ylvolgu vatni og leggja vettlingana flata til þerris.
     
  • Höfundur: Claudia Quintanilla Útgefandi: Hardie Grant Books (2024)
    Harðspjalda | 184 bls. Tungumál: Enska Þyngd: 615 g | Mál: 231 x 196 mm

    Making Memories: 25 Timeless Knitting Patterns for Children is an enchanting collection of knitting patterns for children from Claudia Quintanilla and Laine.

    From cardigans and sweaters to cosy blankets to smaller pieces such as socks and mittens, this book covers a range of techniques, skill levels and yarns in 25 accessible knitting patterns. The majority of the patterns are graded from new-borns to 10-year-olds, so you can pick just the right piece for the smallest in the family. What about a colourwork pullover, an all-over lace scarf or an embroidered cardigan?

    These classic knits combined with dreamy photography and playful illustrations create a children’s knitwear book unlike anything seen in this genre before.

  • Saumnálar með góðum oddi fyrir allan almennan saumaskap. Tólf nálar í pakka í mismunandi lengdum og grófleikum.
Go to Top