8.475kr.
Garnpakki – garn + uppskrift á íslensku í peysuna LILLI frá Novita.
Sæt peysa sem er prjónuð ofan frá með mynsturúrtöku á axlastykki.
Stærðir 94/104 (110/116) 122/128 (134/140) 146 cm.
Í garnpakkanum eru, auk uppskriftar á íslensku:
3 x 100g af grunnlit #010 beinhvítt
1 x 100g af mynsturlit #502 rykbleikt
1 x mynsturlit #068 sveppabrúnt.
Þetta garnmagn dugar í allar stærðir ef prjónfestan stenst. Athugið að peysan er stutt, ef hún er síkkuð (sem er lítið mál því hún er prjónuð ofan frá) þá dugar garnið í minni stærðirnar.
Það er hægt að skipta um liti ef vill, þá kaupið þið garn í heila peysu og setjið í skilaboð að þið viljið LILLI uppskriftina með.
Prjónfesta er 21 L / 24 umf = 10 cm
Prjónar: Hringprjónar 40 og 60 cm í 3,5-4mm eftir prjónfestu, sokkaprjónar 3,5-4mm.
Uppskriftin er eingöngu fáanleg með garnkaupum og það má nota Novita 7 Veljestä Natur eða 7 Veljestä garnið. Báðar tegundir passa fyrir þessa uppskrift og sama magn þarf í peysuna.
LILLI barnapeysu-uppskriftin er á ÍSLENSKU.
Upplýsingar um garnið:
- Grófleiki: Grófband / Aran / Worsted
- Innihald: 70% ull, 30% Tencel
- Lengd/þyngd: 100 g/200 m
- Prjónar: 4 – 5 mm
- Prjónfesta: 18 lykkjur og 26 umferðir = 10 x 10 cm
- Þvottur: Ullarþvottakerfi við 40°C
Uppselt