22.500kr.

3 skipti – þriðjudagar

kl. 17:30 – 19:30

27. jan., 3. og 10. feb.

Sokkaprjón með áherslu á hæla. Hægt verður að velja um að prjóna sokka í barna- eða fullorðinsstærð eða prufur af hælum.

Farið verður í:

  • Bandhæl (Halldóruhæl)
  • Franskan hæl
  • Totuhæl
  • Styrktan hæla

og fleiri hæla og annað tengt sokkaprjóni eftir því sem tíminn leyfir.

Námskeiðið hentar bæði byrjendum í sokkaprjóni svo og þeim sem vilja bæta við sig nýrri prjóntækni.

Innifalið

Garn í sokkahælaprufur og í eitt sokkapar í fullorðinsstærð, sokkauppskriftir, kaffi/te og meðlæti og 15% afsláttur af öllu í verslun Storksins á meðan á námskeiði stendur.

Hafa meðferðis eða kaupa á staðnum:

Sokkaprjóna (fimm prjóna eða þríprjóna) 4 mm í hælaprufur eða 3,5 mm í sokkapar.

Kennari: Guðrún Hannele

Uppselt

Vöruflokkar: