• Púðinn er saumaður á ámálaðan stramma með ullargarni. Nál fylgir og leiðbeiningar um hvernig á að sauma körfusporið sem notað er (líkist háfu krosssaumsspori). Hönnuður: Kaffe Fassett Stærð: 41 cm x 41 cm Þéttleiki: 40 spor / 10 cm.
  • Púðinn er saumaður á ámálaðan stramma með ullargarni. Nál fylgir og leiðbeiningar um hvernig á að sauma körfusporið (nánast eins og hálfur krossaumur) sem notað er. Hönnuður: Kaffe Fassett Stærð: 39 cm x 41 cm Þéttleiki: 40 spor / 10 cm
  • Púðinn er saumaður á ámálaðan stramma með ullargarni. Nál fylgir og leiðbeiningar um hvernig á að sauma körfusporið (nánast eins og hálfur krossaumur) sem notað er. Hönnuður: Nel Whatmore Stærð: 40 cm x 40 cm Þéttleiki: 36 spor / 10 cm
  • Púðinn er saumaður á ámálaðan stramma með ullargarni. Nál fylgir og leiðbeiningar um hvernig á að sauma körfusporið (nánast eins og hálfur krossaumur) sem notað er. Hönnuður: David Merry Stærð: 46 cm x 46 cm Þéttleiki: 40 spor / 10 cm
  • Púðinn er saumaður á ámálaðan stramma með ullargarni. Nál fylgir og leiðbeiningar um hvernig á að sauma körfusporið (nánast eins og hálfur krossaumur) sem notað er. Hönnuður: David Merry Stærð: 44 cm x 44 cm Þéttleiki: 40 spor / 10 cm
  • Púðinn er saumaður á ámálaðan stramma með ullargarni. Nál fylgir og leiðbeiningar um hvernig á að sauma perlu- eða körfusporið sem notað er (petit point á ensku). Hönnuður: Magie Hollingworth Stærð: 42 cm x 30 cm Þéttleiki: 40 spor / 10 cm.
  • Lítill og léttur lókambur til að hafa með í veskinu eða ferðalaginu. Grípur ló á yfirborðinu á peysum og jafnvel húsgögnum. Unninn úr endurunnu plasti. Kemur í bláu og hvítu.
  • Mýkir

    Þurrkaraboltar eru bráðnauðsynlegir til að þurrka yfirhafnir með fyllingu úr dúni. Þeir veltast um í þurrkaranum og berja lofti í flíkina. En þurrkaraboltarnir (Dryer Dots) hafa annan og meiri tilgang. Þeir mýkja efni á náttúrulegan hátt, með varkárri og hávaðalausri veltandi hreyfingu.

    Spara tíma, peninga og orku

    Dryer Dots boltarnir eru úr 100% umhverfisvænni ull sem drekkur í sig raka sem styttir þurrkunartímann. Boltarnir koma loftinu á meiri hreyfingu í þurrkaranum sem spara þess vegna orku.

    Lyktarlausir og án ofnæmisvaldandi efna

    Boltarnir eru án mýkingarefna og ilmefnalausir, öruggir í notkun fyrir þau sem eru með viðkvæma húð, asma og ofnæmi. Það er einnig hægt að nota boltana til að mýkja ungbarnafatnað og taubleyjur. Þeir fara vel með efni.

    Endist í yfir 3.000 þurrkarafylli!

  • Búið til skúfa með alls konar garni! Hægt að nota útsaumsgarn, prjónagarn eða hvað sem ykkur dettur í hug. Sniðugt að eiga skúfa til að merkja/skreyta skærin og önnur áhöld. Hér er PDF skjal með leiðbeiningum um hvernig skúfarnir eru búnir til með þessu áhaldi: SKÚFAGERÐ.
  • Þetta námskeið hefur verið sett á bið. Ef þú hefur áhuga á að fylgjast með þegar það fer í gang aftur sendu okkur þá línu á [email protected]. 3 skipti – Þriðjudagar kl. 18-20 Prjón fyrir byrjendur  - English below Námskeiðið er fyrir alla sem eru byrjendur eða hafa smá reynslu eða vilja rifja upp grundvallaratriði. Garn er innifalið þið getið valið um mismunandi tegundir og liti. Althea Wetter fer í gengum ferlið að prjóna ennisband og frágang á því. Ef vel gengur þá verður hún með annað verkefni ef þarf. Námskeiðið er fyrir íslensku-, þýsku- og enskumælandi og kennir á þeim tungumálum ef þarf. Farið verður í:
    • Val á garni og prjónum
    • Uppfitjun
    • Slétt prjón
    • Brugðið prjón
    • Affelling
    • Frágangur
    Verð: 15.000 kr. (garn innifalið) ===================================================================== This class is on hold. If you are interested in getting information when it starts again please send us an email: [email protected]. Knitting for beginners This class is for beginners and those that haven't knitted for a while and want to revisit the technique. Yarn is included in a quality and colour of your choice. Althea Wetter will teach you to knit a headband og finish it. If you are a fast knitter she will have another project ready for you. Althea speaks Icelandic, German and English and teaches in those languages as needed. You will learn:
    • To choose yarn and needles
    • To cast on
    • To knit (continental style)
    • To purl (continental style)
    • To cast/bind off
    • To weave in ends
    Price: 15.000 kr. (yarn included)
  • 25 cm lengdareining = 1625 Metraverð 6500 kr. Innihald: 100% bómull Þræðir per cm: 3,9   Hver lengdareining er 25 cm x 90 cm (breidd efnisins). Hægt er að velja eina eða fleiri lengdareiningar og við afgreiðum efnið í einum bút. 1 eining = 25 cm, 2 einingar = 50 cm, 3 einingar = 75 cm, 4 einingar = 100 cm. Athugið að það getur verið erfitt að sýna hárétta liti á tölvuskjá eða símaskjá.
  • TAUPOKI Taupoki með merki Storksins. Tvö bönd til að draga saman. Þægilegur verkefnapoki. Stærð 24,5 x 29,5 cm
  • Höfundur: Heidi Kaiser, Babette Ulmer, Britta Kremke
    Útgefandi: Kremke Handelsgesellschaft
    Mjúkspjalda | 35 bls. Tungumál: Enska Þyngd: 85 g  Stærð:  210 x 147 mm
  • ECHOES

    6.996kr.
    Höfundur: Susan Crawford
    Ùtgefandi: Laine Publishing (2024)
    Harðspjalda | 231 bls. Tungumál: Enska Þyngd: 1100 g | Mál: ‎212 x 277 x 24 mm
    • Grófleiki: Léttband / DK / Double Knitting
    • Innihald: 100% ull
    • Lengd/þyngd: 160m/50g
    • Prjónar: 3 - 4 mm
    • Prjónfesta: 22 lykkjur og 33 umferðir = 10 cm x 10 cm
    • Þvottur: Ullarvagga 30°C
  • TILBOÐSVERÐ! Höfundur: Heli Nikula
    Útgefandi: Vaka Helgafell (2024) Harðspjalda | 285 bls. Tungumál: Íslenska Þyngd: 1.285 g
    ULLARÆÐI 2
    Hin finnska Heli Nikula sló í gegn á Instagram með síðuna sína VILLAHULLU sem þýðir bókstaflega ullaræði. Þess var ekki langt að bíða að bókaútgefandi hafði samband við hana og lagði til að hún skrifaði prjónabók. Hún er mikill aðdáandi lopapeysunnar en fer sínar eigin leiðir í mynsturgerð og peysuhönnun. Í bókinni er bæði að finna uppskriftir, fyrir fullorðna, fyrst og fremst peysur en líka húfur, lambhúshettu og vettlinga. Hún notar sjálf mest lopa en einnig aðra ull í tveimur grófleikum; þykkband fyrir prjóna 4,5-5 mm og grófband fyrir prjóna 6-7 mm. Hér er að finna margar skemmtilegar peysuuppskriftir sem eiga eftir að verða klassískar. Peysurnar eru allar prjónaðar á hefðbundinn hátt, neðan frá og upp. Það er nýr og ferskur blær yfir þessari bók og hún verður mikill fengur fyrir aðdáendur lopapeysunnar. Guðrún Hannele Henttinen þýddi.
  • Stílhrein mappa með segli fyrir uppskriftir og mynsturteikningar. Sérstaklega þægilegt þegar prjónað eða saumað er eftir teikningu. Hægt að láta möppuna standa. Minni seglar fylgja til að festa blaðið við og lengri segull fylgir til að merkja línuna sem prjónað/saumað er eftir. Tvær stærðir: A4 og A5.  
  • Hjartalaga prjónamerki úr málmi sem loða við segularmbönd og annað sem er með segli. 40 merki í pakka.
  • Fallegt prjónamál úr Mindful línunni frá Knit Pro. Prjónamálið er úr silfurhúðuðum málmi. Kemur í skreyttum taupoka.
  • Symfonie DREAMZ prjónaoddarnir eru úr birki, hver grófleiki í sérstökum lit og fást í tveimur lengdum. Þessir eru 13 cm eða lengri og passa fyrir 60 cm og lengri snúrur. Hægt er að nota oddana á allar aðrar lengdir af snúrum eftir þörfum. Prjónaoddarnir eru skrúfaðir á snúrur sem fást í nokkrum lengdum. Snúrumegin við samskeytin eru göt þar sem meðfylgjandi pinna er stungið inn í til að herða og losa. Við mælum með því að pinninn sé alltaf notaður til og losa og festa prjónaodda og snúrur, annars getur prjónninn losnað á meðan prjónað er. Þægindin við að nota samsetta prjóna eru ótvíræð. Þá þarf maður ekki að eiga næstum eins marga prjóna, því samsetningarmöguleikarnir eru svo miklir.
  • Knit Pro DREAMZ sokkaprjónar er úr birki með góðum oddi og sléttri áferð. Uppáhaldsprjónar margra. Hægt er að fá Symfonie sokkaprjóna, styttri 15 cm og lengri 20 cm. Í DREAMZ línunni er hver grófleiki í sér lit. Knit Pro prjónarnir eru framleiddir í Indlandi við bestu mögulegar aðstæður fyrir starfsfólk. Þar á sér stað stöðug vöruþróun og þarfir prjónara eru alltaf í fyrirrúmi.  
  • Höfundur: Arounna Hhounnoraj Útgefandi: Quadrille (2024)
    Harðspjalda | 144 bls. Tungumál: Enska Þyngd: 505 g | Mál: 160 x 210

    Visible Mending eftir Arounna Khounnoraj

    Arounna Khounnoraj sem er oft betur þekkt sem @bookhou  á instagram er  mikill útsaumsgúrú. Í þessari bók eru leiðbeinginar um hvernig má endurlífga og endurvinna flíkur og textíl af heimilinu.
    • 12 aðferðir til viðgerða
    • 10 helstu saumspor sem notuð eru
    • 12 verkefni sem kítla sköpunarkraftinn
    Með áherslu á hefðbundar handversksaðferðir og full af aðgengilegum upplýsingum mun þessi bók kenna þer að hægja á og skapa.  
  • EMBROIDERY

    3.595kr.
    Höfundur: Arounna Hhounnoraj Útgefandi: Quadrille (2022)
    Mjúkspjalda | 160 bls. Tungumál: Enska Þyngd: 585 g | Mál: 201 x 250

    Embriodery eftir Arounna Khounnoraj

    Arounna Khounnoraj sem er oft betur þekkt sem @bookhou  á instagram er  mikill útsaumsgúrú. Í þessari bók má finna nútíma útsaumsaðferðir ásamt leiðbeiningum fyrir 20 útsaumsverkefni. Fallegar myndir og vandaðar uppskriftir sem sýna hvernig á að byrja frá grunni og hvernig á að ljúka verkefninu fallega.
  • Höfundur: Yumiko Higuchi Útgefandi: Roost Books (2024)
    Mjúkspjalda | 100 bls. Tungumál: Enska Þyngd: 320 g | Mál: 180 x 241

    Seamless Embriodery eftir Yumiko Higuchi

    42 falleg munstur og verkefni sem veita innsýn í töfra síendurtekinna munstra.  
  • Höfundur: Yumiko Higuchi Útgefandi: Zakka Workshop (2022)
    Mjúkspjalda | 64 bls. Tungumál: Enska Þyngd: 230 g | Mál: 190 x 230 mm Punch Needle bókin dregur nafn sitt af áhaldinu sem notað er við þessa tegund af útsaumi. Grófri nál, sem er hol að innan, og með skafti er þrýst í gegnum vel strekkt efni, hæfilega gisið svo nálið komist í gegnum efnið, en nógu þétt ofið svo það haldi vel við garnið. Þráðurinn liggur í gegnum holu nálina og hægt er að mynda lykkjur með garninu eða klippa þær upp og mynda flos. Höfundurinn Yumiko Higuchi sýnir með vinnulýsingum aðferðina og 11 litrík og vel útfærð verkefni á mismunandi erfiðleikastigum.
  • Eco Vita Hemp útsaumsefni frá DMC Hampur er náttúrulegt vefjarefni úr jurtaríkinu og hentar vel í útsaumsefni. Áferðin líkist líni/hör. Fáanlegt í fjórum litum og hver bútur er 38,1 x 45,7 cm. Þetta er þéttofið efni og hentar vel frjálsan útsaum og flos. Frábært að sauma út með DMC Eco Vita organic útsaumsgarninu.
  • Eco Vita #1. The Botanist's Cabinet

    Útsaums- og mynsturbók frá DMC í Eco Vita línunni. Mynstur furor b´æði frjálsan útsaum og krosssaum. Fjórtán mismunandi mynstur, hvert og eitt með góðum útskýringum, og myndum. Mynstrin eru öll saumuð með DMC Eco Vita organic útsaumsgarninu.  
  • Eco Vita #2. The Forester Wall

    Útsaums- og mynsturbók frá DMC í Eco Vita línunni. Í bókinni eru 19 mynstur fyrir frjálsan útsaum, krosssaum og flos, allar í anda náttúrunnar; skógar, engi og blóm. Allur útsaumur gerir ráð fyrir að notað sé DMC Eco Vita organic útsaumsgarnið.
  • Eco Vita #3. The Mender's Wardrobe

    Útsaums- og mynsturbók frá DMC í Eco Vita línunni. Hér geta þau sem vilja lengja líf flíkanna sinna eða endurnýjað og skreytt með útsaumi fengið fullt af flottum hugmyndum. Í bókinni eru 21 hugmynd til að fegra og gera við fatnað með stæl. Hver flík mun endurspegla skapandi lífstíl og sjálfbærni! Allur útsaumur gerir ráð fyrir að notað sé DMC Eco Vita organic útsaumsgarnið.
  • Útsaumspakki með öllu! Jafi, árórugarn í mörgum litum, nál og 18 cm útsaumsrammi ásamt mynsturteikningu. Saumað með frjálum útsaumi á áprentaðan grunn. Þegar lokið er við útsauminn nýtist útsaumshringurinn sem rammi!
  • Útsaumspakki með öllu! Jafi, árórugarn í mörgum litum, nál og 18 cm útsaumsrammi ásamt mynsturteikningu. Saumað með frjálum útsaumi á áprentaðan grunn. Þegar lokið er við útsauminn nýtist útsaumshringurinn sem rammi!
  • Höfundur: Nicholas Ball Útgefandi: Lucky Spool (2024)
    Harðspjalda | 176 bls. Tungumál: Enska Þyngd: 1215 g | Mál: ‎225 x 285 mm 
     
    Improv bútasaumur er ekki nýr af nálinni. Hann hefur sér mikla sögu og vekur áhuga og innblástur. Slíkur bútasaumur hefur lengi verið annað en bara til nytja. Improv bútasaumur getur verið með pólitísk skilaboð, minningar um fallna ástvini, hann getur verið heilandi og hann stendur einnig sem viðurkennt listform. Það eru bæði sögulegar skrásetningar og persónulegar sögur í þessari tvískinnu, ,Use & Ornament'.
  • Höfundur: NOVITA Útgefandi: Novita (Haust 2022)
    Tungumál: Enska & hollenska (sama heftið) Þyngd: 160 g | Mál: 21 x 29 mm NOVITA gefur reglulega út prjónahefti með uppskriftum. Í þessu hefti eru 11 uppskriftir af peysum og fylgihlutum karlmenn og smábörn. Peysurnar eru stílhreinar og klassískar og hannaðar til að nota vel og lengi. Uppskriftirnar eru á tveimur tungumálum; ensku og hollensku.
  • Breidd 243 cm. Metraverð 3.300 kr. Selt í 50 cm lengdareiningum = 1.650 kr. HEIRLOOM vatt - 80% bómull / 20% pólíester. Þetta vatt hefur alla eiginleika bómullarvatts en er örlítið léttara og sterkara vegna pólýester blöndunnar. Hentar vel í bútasaumsteppi. 1 eining = 50 cm, 2 einingar = 100 cm, 3 einingar = 150 cm, 4 einingar = 200 cm, 5 einingar 250 cm o.s.frv.
  • Teygjuþráður fyrir prjón eða hekl. Lagður með garni t.d. í hálslíningu eða stroff. Fíngerður þráður - 200 m á kefli.
    • Grófleiki:  Grófband / Aran
    • Innihald:  86% ull, 20% pólýamíd, 4% viskós
    • Lengd/þyngd:  100 g/200 m
    • Prjónar:  4 - 5 mm
    • Prjónfesta:  18 lykkjur og 26 umferðir = 10 x 10 cm
    • Þvottur:  Ullarþvottakerfi við 40°C
     
    • Grófleiki:  Þykkband / Aran
    • Innihald:  40% bómull, 35% alpakka, 25%ull
    • Lengd/þyngd:  50 g/100 m
    • Prjónar:  5 - 6 mm
    • Prjónfesta:  14 lykkjur og 22 umferðir = 10 x 10 cm
    • Þvottur:  Handþvottur við 30°C
    HALAUS (faðmlag) garnið frá Novita er mjúkt, létt og loðið. Blanda af bómull, alpaka og ull. Halaus er ný tegund hjá Novita og byrjendur sem og lengra komin eru fljót að falla fyrir þessu garni. Þetta loðna mjúka garn er framleitt með því að blása alpaka og ull í bómullarnet. Þetta létta garn hentar í ýmsan klæðnað og aukahluti og er um leið einfalt og gaman að prjóna úr því. Með grófum prjónum tekur stutta stund að prjóna jafnvel stórar flíkur. Novita Halaus er með Oeko-tex® STANDARD 100 vottun.
  • MAYFLOWER karfa Frábær karfa í skipulagið. Fjórir vasar framan á töskunni og fjórir vasar innan í. Fullfóðruð og með Ultrasuede (umhverfisvænt gerfirúskinns) handfangi. Stærð u.þ.b.: Breidd 33 cm. Hæð 17 cm. Dýpt 17 cm.  
  • MAYFLOWER Áhaldaveski S Skipulagsveski með rennilás sem rennist á þrjár hliðar, veskið liggur flatt þegar það er opið. Í veskinu eru 11 vasar af mismunandi stærðum sem henta til þess að geyma hina ýmsu fylgihluti. Stærð u.þ.b.: Breidd 12 cm. Hæð 22 cm. Þegar veskoð er lokað.  
  • MAYFLOWER Áhaldaveski L Skipulagsveski með rennilás sem rennist á þrjár hliðar, veskið liggur flatt þegar það er opið. Inni í veskinu er rennilásavasi og með hliðunum eru vasar sem henta fyrir sokkaprjóna, heklunálar blýanta eða ýmislegt. Stærð u.þ.b.: Breidd 23 cm. Hæð 25 cm.  
  • HARVEST karfa Frábær karfa í skipulagið. Fjórir vasar framan á töskunni og fjórir vasar innan í. Fullfóðruð og með Ultrasuede (umhverfisvænt gerfirúskinns) handfangi. Dimension: 13.00"W x 7.00"H x 7.00"D Stærð u.þ.b.: Breidd 33 cm. Hæð 17 cm. Dýpt 17 cm.  
  • MAYFLOWER hringprjónaveski Hentug skipulagstaska fyrir hringprjóna. Taska með rennilás og 12 glærum plastvösum fyrir hringprjóna. Stærð u.þ.b.: Breidd 17 cm. Hæð 20 cm. Dýpt 2,5 cm.  
  • TWINKLE hringprjónaveski Hentug skipulagstaska fyrir hringprjóna. Taska með rennilás og 12 glærum plastvösum fyrir hringprjóna. Stærð u.þ.b.: Breidd 17 cm. Hæð 20 cm. Dýpt 2,5 cm.  
  • Höfundur: NOVITA Útgefandi: Novita (Vor 2024)
    Tungumál: Sænska Þyngd: 350 g | Mál: 21 x 29,5 mm NOVITA tímaritin koma út fjórum sinnum á ári; vor-, sumar-, haust- og vetrarblöð.  Hvert tímarit með um eða yfir 40 uppskriftum fyrir börn, fullorðna og heimilið.
    Uppskriftirnar eru með teikningum ef við á og er auðvelt að fylgja. Í hverju blaði er er kennsla á tiltekinni aðferð í hannyrðum.
  • Höfundur: Jorid Linvik Útgefandi: Känguru (2016)
    Harðspjalda | 191 bls. Tungumál: Sænska Þyngd: 890 g | Mál: 197 x 267 x 23 mm 
    Við höfum áður verið með þessa bók á norsku og ensku en hér er hún komin á sænsku. Sama góða vettlingabókin sem hefur slegið öll vinsældarmet og nú á frábæru verði. Jorid Linvik er höfundur nokkurra mjög vinsælla prjónabóka um vettlinga- og sokkaprjón. Þessi bók eru með fjölbreyttum uppskriftum af vettlingum í litríkum og fallegum mynstrum. Alls 45 prjónaverkefni, í stíl Joridar, glaðleg og uppáhald margra, enda metsöluhöfundur í prjónaheiminum. Mikið af góðum myndum, mynsturteikningum og skýringum á aðferðum. Bókin inniheldur: Góðar leiðbeiningar um vettlingaprjón, mynsturteikningar og að auki reiti til að gera þitt eigið mynstur. Margar stærðir bæði á börn og fullorðna. Eitthvað fyrir alla, bæði hefðbundið, rómantískt og nýjar hugmyndir.  
  • Höfundur: Karin Kahnlund Harðspjalda | 151 bls. Tungumál: Sænska
    Þyngd: ‎550 g | Mál: ‎177 x 253 x 19 mm
    Prjónameistarinn Karin Kahnlund prjónar vettlingar allan ársins hring. Í Svíþjóð eru veturnir kaldir og vettlingar nauðsynlegir. Allir eiga vettlinga og það er löng vettlingahefð í Svíþjóð. Í bókinni eru hefðbundnir sænskir vettlingar ásamt nýrri hönnun; fingravettlingar, belgvettlingar, og grifflur í mörgum ólíkum útfærslum. Karin Kahnlund gerir góðar uppskriftir með smáatriðum og tækni þannig að prjónarar geti gert mismunandi kanta, stofna, þumaltungur, úrtökur á totu og mynstur. Virkilega eiguleg bók fyrir áhugafólk um vettlingaprjón.
  • Höfundur: Moa P. Blomquist Harðspjalda | 163 bls. Tungumál: Sænska
    Þyngd: ‎790 g | Mál: ‎196 x 256 x 20 mm
    Moa Blomquist tekur heklið í aðra vídd í þessari bók. Hún hefur fengið frábæra doma og viðkenningu fyrir hugmyndaflug, sköpunarkraf, ljóðræna og nostalgíska nálgun. Moa notar heklunálina sem vopn og heklar með hjartanu! Moa Blomqvist er textíllistakonan á bak við Honse, þar sem hún hefur breytt sýn fólks á heklheiminn. Hennar sköpun sem er á mörkum hannyrða og tískuheimsins hefur birst í sænskum tímaritum og hinu alþjóðlega Vogue. Moa rekur bleikustu garnbúð sem vitað er um í strandbænum Varberg.
  • Höfundur: Anna Bauers Ùtgefandi: Bokförlaget Polaris (2023)
    Harðspjalda | 150 bls. Tungumál: Sænska Þyngd: 680 g | Mál: ‎258 x 188 x 18 mm 
    Anna Bauer er textíllistakona hefur safnað saman gömlum rúðumynstrum sem er hægt að nota í prjóni og úttalinn útsaum. Mjög skemmtileg bók sem á eftir að nýtast mörgum sem vilja setja mynsturbekki á peysur, sokka eða vettlinga. Eiguleg handbók fyrir hannyrðafólk. Það hafa áður komið út tvær bækur um "hönsestrik" eftir Anna Bauer þar sem þessi mynstur nýtast vel.
Go to Top