- Woolmark vottað - góð ending, er litekta, dofnar ekki
- 100% lífræn ull (af fé sem er ekki dindilklippt)
- 60 náttúrulegir litir í boði
- Hver dokka er með 16 m
- Handþvottur við 30°C
-
Þetta er útsaumsgarn úr 100% lífrænni ull. Ullin er lituð með náttúrulegum litum sem eru unnir úr valhnetum, rabbarbara, indigó og eini. Litapallettan er sérlega falleg sem auðveldar val á litum í útsaumsverk. Útsaumgarnið hefur jafna áferð (er ekki misþráða) og er hæfilega snúðlint og hentar því afar vel í alls kyns útsaum, vefnað og fataviðgerðir. Tvinnað garnið er notað eins og það er (ekki hægt að kljúfa). Grófleikinn er u.þ.b. sá sami og 3 þræðir af árórugarni.
-
ANCHOR árórugarn er 6 þráða útsaumsgarn úr 100% egýpskri hágæða bómull. Garnið er spunnið úr extra löngum, fíngerðum þráðum og merseríserað tvisvar sem gefur garninu gljáa, styrk og litunum dýpt. Útsaumsgarnið fæst einlitt í yfir 400 litum og nokkrum marglitum. Árórugarn hentar í alls konar útsaum, úttalin spor sem og frjálsan útsaum. Garnið er klofið og notaðir einn eða fleiri þræðir eftir grófleika jafans sem saumað er í. ANCHOR árórugarn er sambærilegt í gæðum við annað árórugarn á markaðnum. Fyrir þá sem þurfa er hægt að fá upplýsingar um hvernig er hægt að para saman litnúmer á milli kerfa eða framleiðenda. ANCHOR árórugarn þolir þvott í allt að 95°C heitu vatni. ATH. Það eru til fleiri litir í Storkinum.
-
LAINE TUTTUGU OG EITT Finnskt tímarit (á ensku) með prjónhönnun á heimsmælikvarða. Margir hönnuðir leggja hönd á plóg og tryggja úrval að áhugaverðum peysum og fylgihlutum. Mikil áhersla er lögð á greinagóðar uppskriftir. Þá fyglir ein mataruppskrift að auki. Stílhreint tímarit á ensku með fallegri myndatöku. Athugið að það er hægt að vera áskrifandi að LAINE tímaritunum hjá okkur. Sendu okkur skilaboð til að skrá þig. Við látum vita þegar að LAINE kemur í sölu og tökum frá eintak fyrir þig og þú sækir eða við sendum. 10% afsláttur fyrir áskrifendur.
-
Höfundur: Anna JohannaÙtgefandi: Laine Publishing (2024)Harðspjalda | 175 bls. Tungumál: Enska Þyngd: 860 g | Mál: 212 x 277 x 21 mmStrands of Joy Vol. II er önnur bókin hennar Önnu Jóhönnu sem mörg hafa beðið spennt eftir. Bókin stendur undir væntingum, full af alls konar peysum og fylgihlutum. Smellið á hlekkinn hérna fyrir neðan til að skoða sýnishorn úr bókinni. Nánar um bókina: Pattern Previews for Strands of Joy Vol. II
-
- Sokkar í kvenstærð fyrir NORO Silk Garden Sock garnið sem fæst bæði einlitt og kaflalitað.
- Þessir sokkar eru prjónaðir frá sokklegg að tá.
- Það þarf eina 100 g hnotu af NORO Silk Garden Sock garninu í sokkapar. Ef notað er kaflalitað garn og sokkarnir eiga að vera eins þarf 200 g (þá er afgangur í annað sokkapar).
- Prjónastærð er 2,75 mm eða sú stærð sem þarf til að ná réttri prjónfestu.
-
- Sokkar í kvenstærð fyrir NORO Silk Garden Sock garnið sem fæst bæði einlitt og kaflalitað.
- Þessir sokkar eru prjónaðir frá tá að sokklegg.
- Það fylgir teikning af mynstrinu.
- Það þarf eina 100 g hnotu af NORO Silk Garden Sock garninu í sokkapar. Ef notað er kaflalitað garn og sokkarnir eiga að vera eins þarf 200 g (þá er afgangur í annað sokkapar).
- Prjónastærð er 3,5 mm eða sú stærð sem þarf til að ná réttri prjónfestu.

- Þessir sokkar eru prjónaðir frá sokklegg og niður.

Olnbogabætur úr mjúku rúskinni svo peysurnar og/eða jakkarnir endist lengur. Til í nokkrum litum. Með gataröðmmeð fram brún til að auðvelda saumaskapinn. Koma tvær saman í pakkningu. Það er upplagt að nota Laine St. Pierre stoppugarnið til að festa bæturnar.
-
Höfundur: NOVITA Útgefandi: Novita (Haust 2023)Tungumál: Enska, þýska & hollenska og sænska (sama heftið) Þyngd: 475 g | Mál: 21 x 27 mm NOVITA gefur reglulega út prjónahefti með uppskriftum. Í þessu hefti eru þau í samstarfi við hið alkunna ARABIA fyrirtækið, sem gerir ýmsa fallega heimilismuni, keramik og textíl. Í blaðinu má finna 23 uppskriftir af ýmsum nytja og skrautmunum, til dæmis púðum, glasamottum, teppu, mottu, peysu og tösku.
-
Búið til skúfa með alls konar garni! Hægt að nota útsaumsgarn, prjónagarn eða hvað sem ykkur dettur í hug. Sniðugt að eiga skúfa til að merkja/skreyta skærin og önnur áhöld. Hér er PDF skjal með leiðbeiningum um hvernig skúfarnir eru búnir til með þessu áhaldi: SKÚFAGERÐ.
-
Þægilegur teljari sem telur uppi 99. Hann er með lykkju sem er ætluð til að setja utan um prjóninn. Þannig er hægt að nota teljarann sem merki fyrir byrjun umferðar um leið og fylgst er með umferða- eða lykkjufjölda. Ef það hentar ekki að hafa teljarann utan um prjóninn er hægt að festa hann við prjónverkið með lykkjukrækju. Hægt er að snúa teljaranum 360° á lykkjunni, þannig snýr hann alltaf rétt. Passar fyrir 2 mm - 10 mm hringprjóna og bandprjóna.