-
Mánaðarserían eru símynstraðir vettlingar með mynstureindum sem er auðvelt að læra og þ.a.l. skemmtilegt að prjóna.Með því að nota einlitan grunn en marglitt garn í mynstrið kemur mikil hreyfing í mynstrið sem gerir það enn áhrifaríkara, en þa verða vettlingarnir ekki eins! Það er auðvitað líka hægt að hafa einlitt garn í mynstrinu.Garn: Bio Merino 1 x 50g/150m & Edition 3 1 x 50g/50g frá Schoppel Wolle eða sambærilegt garn. Garnið í mynsturlitnum er kaflalitað og sprengt og því verða vettlingarnir ekki alveg eins!Prjónar: Sokkaprjónar 2,5mm og 3 mm Stærðir: Minni og stærri unglinga-/fullorðinsstærð Tvíbandaprjónaðir vettlingar, ekki úr fíngerðasta garninu, prjónast því hraðar fyrir vikið. Íprjónaður þumall, auðvelt að stækka og minnka vettlingana ef þarf. Mynstrið er auðlært og fljótprjónað. Uppskriftinni fylgir teikning af mynstrinu og nákvæm vinnulýsing.Þessi uppskrift er seld sem pdf skjal og er á íslensku. Um leið og greiðsla hefur farið fram birtist slóð á síðunni sem smellt er á til að hlaða henni niður. Slóðina er einnig að finna í kvittuninni sem send er í tölvupósti. -
Petite Knit er merki danska prjónhönnuðarins Mette Wendelboe Okkels. Hún hannar og útfærir uppskriftir á börn og fullorðna í klassískum nútímalegum stíl. Mette tengir um leið gamlar prjónahefðir við nýjar aðferðir. Uppskriftirnar eru skýrar og gott að fara eftir þeim.Valkostir:
- Útprentuð uppskrift, val um dönsku – sótt í verslun eða send frítt með öðrum vörukaupum
- Útprentuð uppskrift, send stök með bréfpósti
- Rafræn uppskrift, send með tölvupósti – öll fáanleg tungumál fylgja, sendar á virkum dögum
-
Petite Knit | No Frills Sweater
Petite Knit er merki danska prjónhönnuðarins Mette Wendelboe Okkels. Hún hannar og útfærir uppskriftir á börn og fullorðna í klassískum nútímalegum stíl. Mette tengir um leið gamlar prjónahefðir við nýjar aðferðir. Uppskriftirnar eru skýrar og gott að fara eftir þeim. Þetta er rafræn uppskrift.
Þessi uppskrift er fáanleg á Íslensku. Við kaup á rafrænni uppskrift færð þú aðgang að öllum tungumálum sem búið er að þýða uppskriftina á.
Uppskriftin kemur í tölvupósti frá Ravelry Downloads.
Uppskriftir eru keyptar handvirkt fyrir hvern og einn og eru afgreiddar á opnunartíma verslunarinnar.
-
Málböndin eru úr umhverfisvænu efni (ekki plast) og koma í sex mismunandi litum: Clay (rauðbrúnt), Linen (beinhvítt), Storm (grátt), Sea Glass (blágrænt), Mustard Seed (gult) og Wild Rose (bleikt). Björtu litirnir tryggja að þú finnir alltaf málbandið í prjónatöskunni. Jarðalritirnir setja fallegan svip á áhöldin þín. Málbandið sjálft er úr málmi með cm/mm og tommum og lengdin er 2 m. Cocoknits leggur áherslu á að nota umhverfisvæn efni í framleiðsluna og forðast plast eins og hægt er. Skelin utan um málbandið er úr PLA sem er 100% náttúruuppleysanlegt efni úr jurtaríkinu. Með því að sleppa lásnum tókst að gera málbandið án plasts og þannig eru líka minni líkur á því að það bili. Hvert málband kemur í endurnýtanlegum poka úr líni. Mál: 6,5 x 5 x 1,3 cm, málbandið er 2 m langt. -
Hefðbundnir sokkaprjónar frá Addi sem eru góðir í sokkaprjón, vettlingaprjón, ermar og hálsmál. Colibri prjónarnir eru úr áli og hver prjónn er í sérstökum lit. Þeir hafa slétta áferð og eru léttir. Annar oddurinn er beittari og hinn er bljúgari þannig að hægt er að velja hvaða oddi er beitt eftir verkefni. Kosturinn við álprjóna er að þeir brotna ekki og allir prjónar frá Addi eru lausir við nikkel. Fást einnig 15 cm langir. -
TREFLAUPPSKRIFT Á ÍSLENSKUÞessi trefill er marg búinn að sanna tilveru sína og tilgang. Hann heitir veiðimaðurinn því í veiði nýtist hann vel, en einnig við allar aðstæður á okkar svala landi.Tvær ástæður valda vinsældunum. Önnur er stærðin; hann er hæfilega stór, hægt að vefja tvisvar um hálsinn og binda einu sinni og það helst hann á sínum stað og þvælist ekki fyrir. Þá er þetta líka fullkomin stærð fyrir þá herra sem ganga í frökkum og vilja að trefillinn liggi innan frakkans og taki lítið pláss.Hin ástæða vinsældanna er garnið, það er hæfilega mjúkt en ekki of lint og heldur sér vel. Hver garnhnota eða -plata er úr kaflalituðu og sprengdu garni. Alls konar litir í boði.Trefillinn er einfaldur í prjóni, aðeins notaðar sléttar og brugðnar lykkjur og óprjónaðar lykkjur í byrjun umferðar. Fullkomið afslöppunarprjón.Prjónastærð: 3,5 mmGarnmagn: 100 g af ZAUBERWOLLE garninu í uppgefna stærð 20 x 125 cm.Þið getið skoðað Zauberwolle garnið HÉR. -
ANCHOR árórugarn er 6 þráða útsaumsgarn úr 100% egypskri hágæða bómull. Garnið er spunnið úr extra löngum, fíngerðum þráðum og merseríserað tvisvar sem gefur garninu gljáa, styrk og litunum dýpt. Útsaumsgarnið fæst einlitt í yfir 400 litum og nokkrum marglitum. Árórugarn hentar í alls konar útsaum, úttalin spor sem og frjálsan útsaum. Garnið er klofið og notaðir einn eða fleiri þræðir eftir grófleika jafans sem saumað er í. ANCHOR árórugarn er sambærilegt í gæðum við annað árórugarn á markaðnum. Fyrir þá sem þurfa er hægt að fá upplýsingar um hvernig er hægt að para saman litnúmer á milli kerfa eða framleiðenda. ANCHOR árórugarn þolir þvott í allt að 95°C heitu vatni. Hvert kefli er 30m (á meðan það eru 8m á hefðbundinni dokku). -
ANCHOR árórugarn er 6 þráða útsaumsgarn úr 100% egypskri hágæða bómull. Garnið er spunnið úr extra löngum, fíngerðum þráðum og merseríserað tvisvar sem gefur garninu gljáa, styrk og litunum dýpt. Útsaumsgarnið fæst einlitt í yfir 400 litum og nokkrum marglitum. Árórugarn hentar í alls konar útsaum, úttalin spor sem og frjálsan útsaum. Garnið er klofið og notaðir einn eða fleiri þræðir eftir grófleika jafans sem saumað er í. ANCHOR árórugarn er sambærilegt í gæðum við annað árórugarn á markaðnum. Fyrir þá sem þurfa er hægt að fá upplýsingar um hvernig er hægt að para saman litanúmer á milli kerfa eða framleiðenda. ANCHOR árórugarn þolir þvott í allt að 95°C heitu vatni. -
- Grófleiki: Smáband / sport
- Innihald: 100% merínóull
- Lengd/þyngd: 250m/100g
- Prjónar: 3 - 3,5 mm
- Prjónfesta: 25 lykkjur og 36 umferðir = 10 cm
- Þvottur: Ullarvagga 30°C
-
Í Finnlandi er rík vettlingahefð. Þaðan koma mörg geómetrík mynstur eða símynstur með ferningum, tíglum, þríhyrningum o.fl. sem hægt er að leika sér endalaust með. Þetta vettlingamynstur er undir áhrifum þeirrar hefðar. Með því að nota síðan einlitan grunn en marglitt garn í mynstrið kemur mikil hreyfing í mynstrið sem gerir það enn áhrifaríkara. Hér er ein útgáfa af nokkrum í vettlingaseríunni: Geómetrískir vettlingar.Garn: Bio Merino 1 x 50g/150m & Edition 3 1 x 50g/50g frá Schoppel Wolle eða sambærilegt garn. Garnið í mynsturlitnum er kaflalitað og sprengt og því verða vettlingarnir ekki alveg eins!Prjónar: Sokkaprjónar 2,5mm og 3 mm Stærðir: Minni og stærri unglinga-/fullorðinsstærð Tvíbandaprjónaðir vettlingar, ekki úr fíngerðasta garninu, prjónast því hraðar fyrir vikið. Íprjónaður þumall, auðvelt að stækka og minnka vettlingana ef þarf. Mynstrið er auðlært og fljótprjónað. Uppskriftinni fylgir teikning af mynstrinu og nákvæm vinnulýsing.Þessi uppskrift er seld sem pdf skjal og er á íslensku. Um leið og greiðsla hefur farið fram birtist slóð á síðunni sem smellt er á til að hlaða henni niður. Slóðina er einnig að finna í kvittuninni sem send er í tölvupósti. -
Soak Flatter er úði án sterkju sem sléttir, afrafmagnar og frískar upp. Óþarfi að þvo peysuna (eða flíkina) eins oft ef Flatter er til staðar. Mild umhverfisvæn formúla. Flatter auðveldar straujun bæði með eða án gufu. Úðað er jafnt yfir flíkina. Endurtekið ef óskað er eftir meiri stífni. Notað til að fríska upp á flíkur á milli þvotta eða til að koma í veg fyrir krumpur. -
Lykkjunælur eða lykkjuhaldarar sem eru hannaðar með þarfir prjónara í huga. Í staðhefðbundinnar nælu er prjónn með teygju úr silíkóni sem festist utan um prjóninn. Þannig haldast lykkjurnar á öruggum stað. Það sem gerir þetta áhald svo gott er að hægt er að hleypa lykkjunum fram af báðum endum. Frábært til að geyma lykkjur í handvegi og á fleiri stöðum. Kemur í fjórum gerðum eftir grófleika garnsins. Innihald: 2 lykkjunælur í pakka. -
Afsláttur!
- Grófleiki: Þykkband / worsted / aran
- Innihald: 78% móhár, 13% ull, 9% nÆlon
- Lengd/þyngd: 170m/100g
- Prjónar: 4-5 mm
- Prjónfesta: 18 lykkjur = 10 cm
- Þvottur: Handþvottur
