-
Afsláttur!
Maker's Canvas Satchel taskan er fyrir þá sem vilja það besta. Hún er hönnuð í anda gömlu læknataskanna. Hún opnast vel og helst opin þannig að auðvelt er að hafa yfirlit yfir allt innihaldið. Botninn er flatur og því stendur taskan vel og getur virkað sem karfa á meðan prjónað er. Tvær krækjur loka töskunni, það er fullt af vösum og stöðum til að geyma allt smádótið og verkefnin. Bryddingar, höldur o.fl. eru úr leðri með festingum úr antík bronsi. Hugað er að öllum smáatriðum. Taskan er nútímaleg og hefðbundin í senn, hefur mikið notagildi og fer aldrei úr tísku! Góð handtaska fyrir prjónalífið og hversdagslífið. Hönnuð fyrir skapandi einstaklinga á ferðinni. Framleiðandinn hefur sjálfbærni að leiðarljósi við framleiðslu þessarar tösku. Hver taska er handunnin og tímalaus hönnun. -
Verkefnataska
Cleo Midi frá Muud er þægileg taska í millistærð með axlaról. Taskan er hönnuð og framleidd úr gæðaleðri, notendavæn, með nægt rými fyrir verk í vinnslu, garn og áhöld, án þess að vera fyrirferðarmikil. Ferningslaga taskan opnast vel og liggur flöt á borði eins og kassi. Þá er góð yfirsýn yfir allt innihaldið og hægt að hafa röð og reglu á öllu. Taskan er frábær fyrir prjónara en nýtist einnig sem hefðbundin taska. Hægt er að stilla lengd axlarólarinnar, en það er líka gott minna handfang til að halda á henni. Innan í töskunni eru tvö stór hólf og vasi með rennilás. Upplýsingar Gæðaleður sem endist aldur og ævi Ferhyrnd í laginu Lokast á ská með rennilás Tvö stór hólf Vasi með rennilás Handfang að ofan Stillanleg axlaról sem hægt er að taka af Fleiri axlarólar frá Muud passa á töskuna Fóðrið er úr polydrill með sléttri áferð sem er auðvelt að halda hreinu Stærðir Hæð: 17 cm Lengd: 30 cm Breidd: 15,5 cm Þyngd: 455 g Litur: Viskí brún -
Verkefnataska
Cleo Midi frá Muud er þægileg taska í millistærð með axlaról. Taskan er hönnuð og framleidd úr gæðaleðri, notendavæn, með nægt rými fyrir verk í vinnslu, garn og áhöld, án þess að vera fyrirferðarmikil. Ferningslaga taskan opnast vel og liggur flöt á borði eins og kassi. Þá er góð yfirsýn yfir allt innihaldið og hægt að hafa röð og reglu á öllu. Taskan er frábær fyrir prjónara en nýtist einnig sem hefðbundin taska. Hægt er að stilla lengd axlarólarinnar, en það er líka gott minna handfang til að halda á henni. Innan í töskunni eru tvö stór hólf og vasi með rennilás. Upplýsingar Gæðaleður sem endist aldur og ævi Ferhyrnd í laginu Lokast á ská með rennilás Tvö stór hólf Vasi með rennilás Handfang að ofan Stillanleg axlaról sem hægt er að taka af Fleiri axlarólar frá Muud passa á töskuna Fóðrið er úr polydrill með sléttri áferð sem er auðvelt að halda hreinu Stærðir Hæð: 17 cm Lengd: 30 cm Breidd: 15,5 cm Þyngd: 455 g Litur: Rauðbrún -
Maker’s Backpack er bakpokinn fyrir alla sem stunda hvers kyns handíðir og eru á ferðinni, en líka fyrir hina því þetta fyrst og fremst góður og vandaður bakpoki. Axlarólarnar eru nógu breiðar til að dreifa þyngdinni í bakpokanum jafnt. Hann getur staðið óstuddur þökk sé fimm málmtöppum sem veita stuðning en koma líka í veg fyrir að botninn óhreinkist. Handföngin efst á töskunni eru þægileg en þau er líka hægt að taka af ef vill. Á annarri hliðinni er sérstakur vasi fyrir prjóna og /eða heklunálar. Sérstakt hólf er fyrir VÍV (verk í vinnslu), staður fyrir símann og margt annað. Góð taska fyrir hversdagslífið. Hönnuð fyrir skapandi einstaklinga á ferðinni. Framleiðandinn hefur sjálfbærni að leiðarljósi við framleiðslu þessarar tösku. Hver taska er handunnin og tímalaus hönnun. -
Þetta er rúmgóð hliðartaska með góðu handfangi. Vandlega handunnin taska þar sem hugað er að öllum smáatriðum. Nútímaleg og hefðbundin í senn, taska sem hefur mikið notagildi og fer aldrei úr tísku! Hugsuð fyrir prjónaverkefnið eða hvað sem er. Góð handtaska fyrir hversdagslífið. Hönnuð fyrir skapandi einstaklinga á ferðinni. Framleiðandinn hefur sjálfbærni að leiðarljósi við framleiðslu þessarar tösku. Hver taska er handunnin og tímalaus hönnun. -
Verkefnataska
Cleo XL frá Muud er þægileg rúmgóð verkefnataska með axlaról. Taskan er hönnuð og framleidd úr gæðaleðri, notendavæn, með nægt rými fyrir verk í vinnslu, garn og áhöld. Ferningslaga taskan opnast vel og liggur flöt á borði eins og kassi. Þá er góð yfirsýn yfir allt innihaldið og hægt að hafa röð og reglu á öllu. Taskan er frábær fyrir prjónara en nýtist einnig sem hefðbundin taska. Hægt er að stilla lengd axlarólarinnar, en það er líka gott minna handfang til að halda á henni. Innan í töskunni eru tvö stór hólf og vasi með rennilás. Upplýsingar Gæðaleður sem endist aldur og ævi Ferhyrnd í laginu Lokast á ská með rennilás Tvö stór hólf Vasi með rennilás Handfang að ofan Stillanleg axlaról sem hægt er að taka af Fleiri axlarólar frá Muud passa á töskuna Fóðrið er úr polydrill með sléttri áferð sem er auðvelt að halda hreinu Stærðir Hæð: 24 cm Lengd: 36 cm Breidd: 23 cm Þyngd: g Litur: Viskí brún -
Má kynna þig fyrir Della Q Hook & Needle Notebook eða áhaldamöppunni, sem er hönnuð til að einfalda líf þeirra sem prjóna og hekla. Þetta er skipulagsmappa með síðum/spjöldum sem hefur hver með sinn tilgang og geymir á vísum stað heklunálar, prjóna, smáhluti, uppskriftir/mynstur o.fl. Hver mappa inniheldur fjórar síður og bráðlega verður einnig hægt að fá stakar viðbótarsíður. Á innanverðri kápunni eru tvær frágangsnálar, málband, skæri og þægilegur renndur vasi fyrir alls konar smádót. Flettið í gegnum allar myndirnar til að skoða innihald möppunnar. Þessi mappa er vönduð og gerð til að endast. Síður sem fylgja með Hook & Needle Notebook eru:- fyrir sokkaprjóna eða heklunálar
- fyrir heklunálar eða prjónaodda
- fyrir hringprjóna eða fylgihluti
- innbyggður gegnsær renndur poki