-
Afsláttur!
IN THE FRAME útsaumspúði
Púðinn er saumaður á ámálaðan stramma með ullargarni. Nál fylgir og leiðbeiningar um hvernig á að sauma perlu- eða körfusporið sem notað er (petit point á ensku). Hönnuður: Felicity Hall Stærð: 40 cm x 40 cm Þéttleiki: 55 spor / 10 cm. -
Getur gagnlegt prjónahjálpartæki líka verið skartgripur? Já, nýi hringurinn úr 925 sterling silfri frá addi, sem fæst í þremur stærðum, sameinar hönnun og garnleiðara í einni vöru. Hringinn er ekki aðeins hægt að nota við tvíbanda prjón, heldur er einnig frábær garnleiðari í einlitu prjóni. Hægt er að breyta spennu garnsins eftir hvernig það er þrætt. Skartgripur framleiddur í Altena, Þýskalandi. Auðvelt að aðlaga að stærð. Hönnun eftir Sylvie Rasch. Stærðir: S = ummál 52mm M = ummál 54mm L = ummál 56mm -
Þessi púði er hnýttur með sérstöku áhaldi sem lýkist heklunál með loki sem leggst yfir krókinn. Aðferðin heitir SMYRNA og er vel þekkt frá fyrri tíð en er núna að komin aftur. Innihald:- Grófur, ámálaður strammi
- Smyrnanál með skafti
- Garn sem er búið að klippa niður í hæfilega langar lengjur (70% akríl, 30% pólíester)
- Límaband til að setja á brúnir strammans
- Frágangsnál / þráður
- Bak úr 100% bómull með rennilás
-
Þessi púði er hnýttur með sérstöku áhaldi sem lýkist heklunál með loki sem leggst yfir krókinn. Aðferðin heitir SMYRNA og er vel þekkt frá fyrri tíð en er núna að komin aftur. Innihald:- Grófur, ámálaður strammi
- Smyrnanál með skafti
- Garn sem er búið að klippa niður í hæfilega langar lengjur (70% akríl, 30% pólíester)
- Límaband til að setja á brúnir strammans
- Frágangsnál / þráður
- Bak úr 100% bómull með rennilás
-
CLOVER Amour heklunálar eru einstaklega þægilegar í notkun. Krókurinn fremst er hannaður með það í huga að auðvelt sé að stinga í gegn og sækja nýja lykkju. Áferðin á málmhlutanum er hæfilega sleip þannig að lykkjurnar renna vel en haldast samt á sínum stað. Snilldarhönnun sem gerir heklið skemmtilegra og reynir minna á hendurnar. Handfang er úr mjúku efni sem er þægilegt viðkomu, rennur ekki og er hæfilega breitt og situr vel í hendi. Það er reynsla margra að Clover heklunálar reyni minna á hendurnar í hekli og þá verður auðveldara að hekla lengur áreynslulaust. Hvert númer af heklunál er í sérstökum lit. Í þessu setti eru 9 heklunálar í stærðum 2mm, 2,5mm, 3mm, 3,5mm, 4mm, 4,5mm, 5mm, 5,5mm og 6mm. Hægt er að kaupa stakar Amour heklunálar í stærðum 0,6mm til 15mm. -
Afsláttur!
Maker’s Midi Backpack er bakpoki sem er ekki of stór og ekki of lítill. Fullkominn fyrir þau sem stunda hvers kyns handíðir og eru á ferðinni, en líka fyrir hin því þetta er fyrst og fremst góður og vandaður bakpoki. Axlarólarnar eru nógu breiðar til að dreifa þyngdinni í bakpokanum jafnt. Hann getur staðið óstuddur þökk sé fimm málmtöppum sem veita stuðning en koma líka í veg fyrir að botninn óhreinkist. Handföngin efst á töskunni eru þægileg þegar axlarólarnar eru ekki í notkun. Margir góðir vasar til að hafa skipulag á öllu sem er meðferðis. Góð taska fyrir hversdagslífið. Hönnuð fyrir skapandi einstaklinga á ferðinni. Framleiðandinn hefur sjálfbærni að leiðarljósi við framleiðslu þessarar tösku. Hver taska er handunnin og tímalaus hönnun. Stærð: Lengd 35,5 cm x breidd 10 cm x hæð 32,3 cm.
