T-pinnar eru sterkir títiprjónar til að nota í strekkingu. Pinnarnir eru úr ryðfríu stáli sem er nauðsynlegt þegar stungið er í rök stykki.
Koma í góðu boxi með 40 stykkjum.
-
ANCHOR árórugarn er 6 þráða útsaumsgarn úr 100% egypskri hágæða bómull. Garnið er spunnið úr extra löngum, fíngerðum þráðum og merseríserað tvisvar sem gefur garninu gljáa, styrk og litunum dýpt. Útsaumsgarnið fæst einlitt í yfir 400 litum og nokkrum marglitum. Árórugarn hentar í alls konar útsaum, úttalin spor sem og frjálsan útsaum. Garnið er klofið og notaðir einn eða fleiri þræðir eftir grófleika jafans sem saumað er í. ANCHOR árórugarn er sambærilegt í gæðum við annað árórugarn á markaðnum. Fyrir þá sem þurfa er hægt að fá upplýsingar um hvernig er hægt að para saman litanúmer á milli kerfa eða framleiðenda. ANCHOR árórugarn þolir þvott í allt að 95°C heitu vatni. -
ANCHOR árórugarn er 6 þráða útsaumsgarn úr 100% egypskri hágæða bómull. Garnið er spunnið úr extra löngum, fíngerðum þráðum og merseríserað tvisvar sem gefur garninu gljáa, styrk og litunum dýpt. Útsaumsgarnið fæst einlitt í yfir 400 litum og nokkrum marglitum. Árórugarn hentar í alls konar útsaum, úttalin spor sem og frjálsan útsaum. Garnið er klofið og notaðir einn eða fleiri þræðir eftir grófleika jafans sem saumað er í. ANCHOR árórugarn er sambærilegt í gæðum við annað árórugarn á markaðnum. Fyrir þá sem þurfa er hægt að fá upplýsingar um hvernig er hægt að para saman litnúmer á milli kerfa eða framleiðenda. ANCHOR árórugarn þolir þvott í allt að 95°C heitu vatni. Hvert kefli er 30m (á meðan það eru 8m á hefðbundinni dokku). -
TREFLAUPPSKRIFT Á ÍSLENSKUÞessi trefill er marg búinn að sanna tilveru sína og tilgang. Hann heitir veiðimaðurinn því í veiði nýtist hann vel, en einnig við allar aðstæður á okkar svala landi.Tvær ástæður valda vinsældunum. Önnur er stærðin; hann er hæfilega stór, hægt að vefja tvisvar um hálsinn og binda einu sinni og það helst hann á sínum stað og þvælist ekki fyrir. Þá er þetta líka fullkomin stærð fyrir þá herra sem ganga í frökkum og vilja að trefillinn liggi innan frakkans og taki lítið pláss.Hin ástæða vinsældanna er garnið, það er hæfilega mjúkt en ekki of lint og heldur sér vel. Hver garnhnota eða -plata er úr kaflalituðu og sprengdu garni. Alls konar litir í boði.Trefillinn er einfaldur í prjóni, aðeins notaðar sléttar og brugðnar lykkjur og óprjónaðar lykkjur í byrjun umferðar. Fullkomið afslöppunarprjón.Prjónastærð: 3,5 mmGarnmagn: 100 g af ZAUBERWOLLE garninu í uppgefna stærð 20 x 125 cm.Þið getið skoðað Zauberwolle garnið HÉR. -
Hefðbundnir sokkaprjónar frá Addi sem eru góðir í sokkaprjón, vettlingaprjón, ermar og hálsmál. Colibri prjónarnir eru úr áli og hver prjónn er í sérstökum lit. Þeir hafa slétta áferð og eru léttir. Annar oddurinn er beittari og hinn er bljúgari þannig að hægt er að velja hvaða oddi er beitt eftir verkefni. Kosturinn við álprjóna er að þeir brotna ekki og allir prjónar frá Addi eru lausir við nikkel. Fást einnig 15 cm langir. -
Málböndin eru úr umhverfisvænu efni (ekki plast) og koma í sex mismunandi litum: Clay (rauðbrúnt), Linen (beinhvítt), Storm (grátt), Sea Glass (blágrænt), Mustard Seed (gult) og Wild Rose (bleikt). Björtu litirnir tryggja að þú finnir alltaf málbandið í prjónatöskunni. Jarðalritirnir setja fallegan svip á áhöldin þín. Málbandið sjálft er úr málmi með cm/mm og tommum og lengdin er 2 m. Cocoknits leggur áherslu á að nota umhverfisvæn efni í framleiðsluna og forðast plast eins og hægt er. Skelin utan um málbandið er úr PLA sem er 100% náttúruuppleysanlegt efni úr jurtaríkinu. Með því að sleppa lásnum tókst að gera málbandið án plasts og þannig eru líka minni líkur á því að það bili. Hvert málband kemur í endurnýtanlegum poka úr líni. Mál: 6,5 x 5 x 1,3 cm, málbandið er 2 m langt. -
Petite Knit | No Frills Sweater
Petite Knit er merki danska prjónhönnuðarins Mette Wendelboe Okkels. Hún hannar og útfærir uppskriftir á börn og fullorðna í klassískum nútímalegum stíl. Mette tengir um leið gamlar prjónahefðir við nýjar aðferðir. Uppskriftirnar eru skýrar og gott að fara eftir þeim. Þetta er rafræn uppskrift.
Þessi uppskrift er fáanleg á Íslensku. Við kaup á rafrænni uppskrift færð þú aðgang að öllum tungumálum sem búið er að þýða uppskriftina á.
Uppskriftin kemur í tölvupósti frá Ravelry Downloads.
Uppskriftir eru keyptar handvirkt fyrir hvern og einn og eru afgreiddar á opnunartíma verslunarinnar.
-
Petite Knit er merki danska prjónhönnuðarins Mette Wendelboe Okkels. Hún hannar og útfærir uppskriftir á börn og fullorðna í klassískum nútímalegum stíl. Mette tengir um leið gamlar prjónahefðir við nýjar aðferðir. Uppskriftirnar eru skýrar og gott að fara eftir þeim.Valkostir:
- Útprentuð uppskrift, val um dönsku – sótt í verslun eða send frítt með öðrum vörukaupum
- Útprentuð uppskrift, send stök með bréfpósti
- Rafræn uppskrift, send með tölvupósti – öll fáanleg tungumál fylgja, sendar á virkum dögum
-
Mánaðarserían eru símynstraðir vettlingar með mynstureindum sem er auðvelt að læra og þ.a.l. skemmtilegt að prjóna.Með því að nota einlitan grunn en marglitt garn í mynstrið kemur mikil hreyfing í mynstrið sem gerir það enn áhrifaríkara, en þa verða vettlingarnir ekki eins! Það er auðvitað líka hægt að hafa einlitt garn í mynstrinu.Garn: Bio Merino 1 x 50g/150m & Edition 3 1 x 50g/50g frá Schoppel Wolle eða sambærilegt garn. Garnið í mynsturlitnum er kaflalitað og sprengt og því verða vettlingarnir ekki alveg eins!Prjónar: Sokkaprjónar 2,5mm og 3 mm Stærðir: Minni og stærri unglinga-/fullorðinsstærð Tvíbandaprjónaðir vettlingar, ekki úr fíngerðasta garninu, prjónast því hraðar fyrir vikið. Íprjónaður þumall, auðvelt að stækka og minnka vettlingana ef þarf. Mynstrið er auðlært og fljótprjónað. Uppskriftinni fylgir teikning af mynstrinu og nákvæm vinnulýsing.Þessi uppskrift er seld sem pdf skjal og er á íslensku. Um leið og greiðsla hefur farið fram birtist slóð á síðunni sem smellt er á til að hlaða henni niður. Slóðina er einnig að finna í kvittuninni sem send er í tölvupósti. -
Afsláttur!
- Grófleiki: Grófband / Chunky
- Innihald: 100% ull
- Lengd/þyngd: 100m/100g
- Prjónar: 7 mm
- Prjónfesta: 13 lykkjur og 16 umferðir = 10 x 10 cm
- Þvottur: Handþvottur 30°C
- Magn í peysu með 80-86cm ummáli: 800g/8 x 100g
-
- Grófleiki: Léttband / DK
- Innihald: 50% alpaka, 50% ull
- Lengd/þyngd: 116m/50g
- Prjónar: 3,75-4 mm
- Prjónfesta: 23 lykkjur og 30 umferðir = 10 x 10 cm
- Þvottur: Handþvottur 30°C
-
Hefðbundnir sokkaprjónar frá Addi sem eru góðir í sokkaprjón, vettlingaprjón of ungbarnaermar. Colibri prjónarnir eru úr áli og hver prjón er í sérstökum lit. Þeir hafa slétta áferð og eru léttir. Annar oddurinn er beittari og hinn er bljúgari þannig að hægt er að velja hvaða oddi er beitt eftir verkefni. Kosturinn við álprjóna er að þeir brotna ekki og allir prjónar frá Addi eru lausir við nikkel. Fást einnig 20-23 cm langir. -
- Lykkjustopparar fyrir prjóna 2mm - 10mm.
- 6 stærðir; 4 stk. af hverri stærð = 24 lykkjustopparar.
- Framleitt úr umhverfisvænu efni.
- Notkun: Setjið stopparann alla leið upp á prjóninn til að halda við lykkjurnar. Hægt að nota á sokkaprjóna og hringprjóna. Setjið á hringprjóna eða snúru af samsettum prjónum að halda lykkjunum öruggum á meðan peysan er mátuð.
