-
Iron-On Transfer Pencil er blýantur er notaður til að yfirfæra mynstur á efni með straujárni. Teiknið með blýantinum á bökunarpappír, leggið yfir efnið, strauið og mynstrið færist yfir á efnið eða aðra fleti sem á að merkja. Hægt að nota hvert mynstur 2-3 sinnum. Notkun: (1) Setjið bökunarpappír á mynstrið sem á að nota. (2) Dragið mynstrið í gegn með Iron-On Transfer blýantinum. (3) Setjið mynstrið ofan á efnið og strauið yfir og þannig yfirfærist mynstrið á efnið. -
Clover Water Erasable Tracing Paper | Yfirfærslupappír 3 blöð í pakka. Hvert blað er hægt að nota mörgum sinnum. Pappír með bláu bleki sem yfirfærir munstur á efni. Notið yfirfærslupinna með pappírnum. Einfalt í notkun. Liturinn er vatnsleysanlegur. -
Fatakrít í duftformi. Hægt að kaupa áfyllingar í 5 litum. Fatakrít með lausu dufti er frábært áhald til að merkja efni. Í stað þess að draga blýant eða penna eftir efninu, er hjóli á enda krítarhylkisins rúllað til að merkja línu. Hjólið er með örlitlum götum sem hleypa krítinni út um leið og þrýst er á það. Það myndast lína með þéttum, smáum punktum. Krítin þvæst auðveldlega úr. Hægt að velja um mismunandi liti eftir lit efnisins sem vinna á með. -
Áfylling á fatakrít í duftformi. Fást í 4 litum: Gul, hvít, bleik, blá og silfur. Fatakrít með lausu dufti er frábært áhald til að merkja efni. Í stað þess að draga blýant eða penna eftir efninu, er hjóli á enda krítarhylkisins rúllað til að merkja línu. Hjólið er með örlitlum götum sem hleypa krítinni út um leið og þrýst er á það. Það myndast lína með þéttum, smáum punktum. Krítin þvæst auðveldlega úr. Hægt að velja um mismunandi liti eftir lit efnisins sem vinna á með. -
Aukanál fyrir flosnál með handfangi. MEDIUM/FINE nálin er grófari fyrir garn í fínbandsgrófleika (4ply/fingering). 6-PLY nálin er fínni fyrir útsaumsgarn (4-6 þræði af árórugarni eða sambærilegt). 3-PLY nálin sem fylgir með Flosnál með handfangi er enn fínni. Sjá nánar upplýsingar með Flosnál með handfangi. -
Saumaðu út á einfaldan hátt með því að þrýsta nálinni í gegnum strekkt efni. Strekktu efnið á útsaumshring og teiknaðu með nálinni! Innihald- Flosnál með handfangi
- Hringur, jafanál og þræðitvinni
- Þrýstu nálinni í gegnum vel strekkt efni og dragðu upp.
- Renndu nálinni eftir efninu og endurtaktu.
- Léttband (medium eða DK) til stórband (bulky) garn.
- Grófur panamajafi (monk cloth) fæst í Storkinum.
-
Lykkjunælur eða lykkjuhaldarar sem eru hannaðar með þarfir prjónara í huga. Í staðhefðbundinnar nælu er prjónn með teygju úr silíkóni sem festist utan um prjóninn. Þannig haldast lykkjurnar á öruggum stað. Það sem gerir þetta áhald svo gott er að hægt er að hleypa lykkjunum fram af báðum endum. Frábært til að geyma lykkjur í handvegi og á fleiri stöðum. Kemur í fjórum gerðum eftir grófleika garnsins. Innihald: 2 lykkjunælur í pakka. -
"Quick-Cut" er þráðskeri sem flýtir fyrir þegar klippa þarf þræði eftir saumaskap. Hannaður til að skera á þræði fljótt og örugglega.- Auðvelt aðgengi.
- Hentar jafnt tvinna sem garni.
- Fingurnir geta ekki snert hnífinn sem eykur öryggið.
-
Þetta faldamál er hannað til að auðvelda þér að merkja saumför fljótt og nákvæmlega. Það er með merkingar frá 1 til 5 cm með 5 mm millibili og hentar flestum saumverkefnum. Faldamálið er úr málmi sem gott er að nota til að mynda skörp brot með straujárni eða sem sniðmát fyrir skörp horn á vösum og öðrum saumaskap. -
Air erasable merkipennarnir eru góðir þegar þegar merkja þarf fyrir saumum eða öðru á ljós og dökk efni efni. Það gefst nægur tími áður en merkingin hverfur. Leyfið blekinu að hverfa af sjálfu sér eða strokið merkinguna út með strokleðrinu á hinum enda pennans. Tíminn sem það tekur fyrir merkingarnar að hverfa alveg fer eftir rakasigi, hitastigi og magni bleks á efninu. -
Nálahús með 2 grófum jafanálum. Bogni oddurinn auðveldar þræðingu í gegnum lykkjur. Nálarhúsið er með áskrúfuðu loki sem geymir nálarnar vel. Nálarnar eru Ø 2,5 x 7 mm á lengd. Fleiri nálahús með nálum fáanleg:- Jafanálasett (# 339)
- Jafanálasett með bognum oddum (# 3121)
- Jafanálasett með fínum nálum (# 3168)
-
Nálahús með 3 fínum jafanálum. Bogni oddurinn gerir það auðveldara að þræða nálina í gegnum lykkjur. Nálarhúsið er með áskrúfuðu loki sem geymir nálarnar vel. Nálarnar eru nr. 20, 22 og 24. Fleiri nálahús með nálum fáanleg:- Jafanálasett (# 339)
- Jumbo jafanálasett (# 340)
- Jafanálasett með bognum oddum (# 3121)
