-
Petite Knit | Key Sweater
Petite Knit er merki danska prjónhönnuðarins Mette Wendelboe Okkels. Hún hannar og útfærir uppskriftir á börn og fullorðna í klassískum nútímalegum stíl. Mette tengir um leið gamlar prjónahefðir við nýjar aðferðir. Uppskriftirnar eru skýrar og gott að fara eftir þeim. Þetta er rafræn uppskrift.
Þessi uppskrift er fáanleg á Íslensku. Við kaup á rafrænni uppskrift færð þú aðgang að öllum tungumálum sem búið er að þýða uppskriftina á.
Uppskriftin kemur í tölvupósti frá Ravelry Downloads.
Uppskriftir eru keyptar handvirkt fyrir hvern og einn og eru afgreiddar á opnunartíma verslunarinnar.
-
Sérhönnuð prjónamerki af FIREFLY fyrir fagurkera. Þessi merki eru fyrir prjónara sem elska garn! Pakkningin inniheldur 8 merki, 2 hvít, 2 bleik, 2 græn og 2 svört. Búin til úr málmi með emelaraðri skreytingu með 10mm messinghringjum. FIREFLY er kanadískt vörumerki.Fullkomin gjöf fyrir þau sem prjóna og kunna að meta fallega fylgihluti!
-
Box fyrir árórugarn. Hólfin eru hönnuð fyrir sérstök spjöld sem útsaumsgarnið er valfið utan um. Það fylgja 50 spjöld úr þykkum pappa með boxinu. Einnig fylgir lítil vinda úr plasti til að flýta fyrir þegar garnið er undið á spjöldin. Þessi box eru ómissandi fyrir þau sem sauma út með árórugarni. Hægt er að hafa góða yfirsýn yfir litina og garnið helst í röð og reglu og flækist ekki. -
Jafnþráða jafi fyrir útsaum, ólitaður. Þessi jafi hentar fyrir úttalin spor eins og t.d. krosssaum. Innihald: 100% hör/lín Þræðir per cm: 10 Hver lengdareining er 25 cm x 140 cm (breidd efnisins). Hægt er að velja eina eða fleiri lengdareiningar og við afgreiðum efnið í einum bút. 1 eining = 25 cm, 2 einingar = 50 cm, 3 einingar = 75 cm, 4 einingar = 100 cm. 25 cm lengdareining = 2.375 kr. Metraverð 9.500 kr. Athugið að það getur verið erfitt að sýna hárétta liti á tölvuskjá eða símaskjá. -
Panamajafi (Aida) fyrir útsaum Litur: beinhvítt (antique white) Innihald: 100% bómull Þræðir per cm: 5,4 Hver lengdareining er 25 cm x 130 cm (breidd efnisins). Hægt er að velja eina eða fleiri lengdareiningar og við afgreiðum efnið í einum bút. 1 eining = 25 cm, 2 einingar = 50 cm, 3 einingar = 75 cm, 4 einingar = 100 cm. 25 cm lengdareining = 1.750 kr. Metraverð 7.000 kr. Athugið að það getur verið erfitt að sýna hárétta liti á tölvuskjá eða símaskjá. -
Isager er rótgróið dankst fyrirtæki stofnað af Marianne Isager. Þau framleiða gæða garn úr náttúrulegum hráefnum ásamt uppskriftum sem henta vel fyrir garnið frá þeim. Uppskriftirnar eru vandaðar og skýrar og gott er að fylgja þeim. Þetta er rafræn uppskrift. Við kaup á rafrænni uppskrift færð þú aðgang að öllum tungumálum sem búið er að þýða uppskriftina á.Uppskriftin kemur í tölvupósti frá Ravelry Downloads.
Uppskriftir eru keyptar handvirkt fyrir hvern og einn og eru afgreiddar á opnunartíma verslunarinnar.
-
Other Loops | Ripple Loops Sweater
Þetta er rafræn uppskrift. Við kaup á rafrænni uppskrift færð þú aðgang að öllum tungumálum sem búið er að þýða uppskriftina á.Uppskriftin kemur í tölvupósti frá Ravelry Downloads.
Uppskriftir eru keyptar handvirkt fyrir hvern og einn og eru afgreiddar á opnunartíma verslunarinnar.
-
ADDI hringprjónar úr málmi. Prjónaoddarnir eru léttir úr kopar, húðaðir með hvítu bronsi. Snúrurnar eru mjúkar og samskeyti snúru og prjóns slétt. ADDI prjónarnir eu hannaðir og framleiddir í Þýskalandi fyrir prjónara sem vilja aðeins bestu gæði. Lengd prjóna er mæld frá oddi til odds. 12mm prjónarnir eru með slöngur, ekki snúru. -
Handunnin garn- eða hnotuvinda úr tré sem getur undið allt að 450 g af garni í fínbands (4ply/fingering) grófleika. Garnvindan er alveg hljóðlaus og hún er hönnuð þannig að snertifletir eru fáir og því er gengur vindingin ljúft og snuðrulaust fyrir sig. Gúmmítappar eru á botninum svo vindan renni ekki til eða rispi borð. Borðfesting fylgir. Fyrirhafnarminna að vinda garn í hnotu í þessari vindu því hver hringur sem snúið er eins og þrír á minni garnvindum. Hægt að kaupa auka gúmmíreim ef á þarf að halda. -
Fatakrít í duftformi. Hægt að kaupa áfyllingar í 5 litum. Fatakrít með lausu dufti er frábært áhald til að merkja efni. Í stað þess að draga blýant eða penna eftir efninu, er hjóli á enda krítarhylkisins rúllað til að merkja línu. Hjólið er með örlitlum götum sem hleypa krítinni út um leið og þrýst er á það. Það myndast lína með þéttum, smáum punktum. Krítin þvæst auðveldlega úr. Hægt að velja um mismunandi liti eftir lit efnisins sem vinna á með. -
ADDI Click Lace Short hringprjónasett inniheldur 8 pör af prjónaoddum úr málmi í stærðum 3,5mm til 8mm. Hvert prjónaoddapar er með löngum og góðum oddum (lace), en prjónarnir sjálfir eru styttri svo hægt sé að nota til að mynda 40cm eða lengri hringprjóna. Það fylgja með 5 addi snúrur, liprar eins og ADDI prjónasnúrurnar eru; 40cm, 50cm, 60cm, 80cm og 100cm. Einnig fylgir með tengi til að tengja saman snúrur, gripbleðill til að auðvelda tengingu á oddi og snúru og gyllt næla til skrauts. ADDI Click prjónunum er smellt við snúrurnar (enginn skrúfgangur) og losna því ekki á meðan prjónað er. Hægt er að bæta við settið með því að kaupa fleiri stærðir af prjónaoddum, bæði styttri og allt uppí 12mm í löngum oddum. Einnig er hægt að kaupa viðbótar snúrur stakar. Prjónasettið kemur í þægilegri tösku þar sem er rennt hólf fyrir alla smáhlutina og hver prjónn á sinn stað. -
Höfundur: Louise Crowther Útgefandi: David & Charles (2019)Hér getið þið skoðað myndir úr bókinni: Knitted Animal FriendsMjúkspjalda | 128 bls. Tungumál: Enska Þyngd: 522 g | Mál: 210 x 273 x 12,7 mm -
Höfundur: Katrina Rodabaugh Útgefandi: Abrams (2018)Harðspjalda | 224 bls. Tungumál: Enska Þyngd: 920 g | Mál: 186 x 236 x 22 mmMending Matters: Stitch, Patch, and Repair Your Favorite Denim & More
Mending Matters er bók fyrir þá sem vilja læra aðferðir við að gera við fatnað og fá hugmyndir að skemmtilegum útfærslum. Aðferðirnar skila nútímalegum og áberandi viðgerðum (engin ástæða til að þær sjáist ekki) með hefðbundnum sporum. Í grunninn eru aðferðirnar einfaldar en útfærslurnar geta verið margar.Í dag eru fataviðgerðir ekki aðeins skynsamlegar til að lengja líf fatnaðar, heldur nauðsynlegar fyrir umhverfið. Höfundurinn Katrina Rodabaugh fer í gegnum alls konar hugmyndafræði sem tengist fataviðgerðum í þessari bók, auk þess að undirstrika mikilvægi handavinnu. -
Frábærar merkikrækjur, enda ein af okkar allra vinsælustu vörum. Þær eru úr efni sem endist vel (brotna ekki). Krækjurnar eru mest notaðar til að merkja umferðir, t.d. úrtökur eða útaukningar. Það eru tvær stærðir fáanlegar. Þessar eru stærri. Innihald: 12 merkikræjur í tveimur litum, plastumslag til að geyma þær í fylgir. Athugið að það er betra að hafa krækjurnar lokaðar þegar þær eru ekki í notkun.
