Mældu, merktu, brjóttu og pressaðu í einni sleitulausri hreyfingu! Hitaþolið og vatnsþolið - þolir gufun og gufustraujun. Má strauja beint á. Einstakt yfirborð sem rennur ekki til kemur í veg fyrir misræmi.

Þetta faldamál er hannað til að auðvelda þér að merkja saumför fljótt og nákvæmlega.
Það er með merkingar frá 1 til 5 cm með 5 mm millibili og hentar flestum saumverkefnum.
Faldamálið er úr málmi sem gott er að nota til að mynda skörp brot með straujárni eða sem sniðmát fyrir skörp horn á vösum og öðrum saumaskap.
Air erasable merkipennarnir eru góðir þegar þegar merkja þarf fyrir saumum eða öðru á ljós og dökk efni efni. Það gefst nægur tími áður en merkingin hverfur. Leyfið blekinu að hverfa af sjálfu sér eða strokið merkinguna út með strokleðrinu á hinum enda pennans.
Tíminn sem það tekur fyrir merkingarnar að hverfa alveg fer eftir rakasigi, hitastigi og magni bleks á efninu.
Merkipenni á efni. Hentar í bútasaum, fatasaum og aðra handavinnu. Merkingin fer úr þegar efnið blotnar.
Sjá nánar hér fyrir neðan.
Tveir grófleikar í boði
Prjónamerki úr mjúku efni. Mjög þægileg í notkun; sett upp á prjóninn til að merkja byrjun umferðar, ákveðnar mynstureiningar, úrtökur, útaukningar o.fl.
Innihald: 30 merki í 2 litum, 10 minni og 20 stærri.
Prjónastærðir
CLOVER prjónamerki eru létt og þægileg í notkun. Þessi eru lokuð og fara utan um prjóninn og fylgja honum upp verkefnið.
20 stk. í pakka, 10 minni og 10 stærri í tveimur litum.
Prjónamerki úr mjúku efni. Mjög þægileg í notkun; sett upp á prjóninn til að merkja byrjun umferðar, ákveðnar mynstureiningar, úrtökur, útaukningar o.fl.
Innihald: 20 merki í 2 litum.
Fyrir prjónastærðir
Frábærar merkikrækjur, enda ein af okkar allra vinsælustu vörum. Þær eru úr efni sem endist vel (brotna ekki). Krækjurnar eru mest notaðar til að merkja umferðir, t.d. úrtökur eða útaukningar.
Það eru tvær stærðir fáanlegar. Þessar eru minni.
Innihald: 20 merkikræjur í tveimur litum, plastumslag til að geyma þær í fylgir.
Athugið að það er betra að hafa krækjurnar lokaðar þegar þær eru ekki í notkun.
Frábærar merkikrækjur, enda ein af okkar allra vinsælustu vörum. Þær eru úr efni sem endist vel (brotna ekki). Krækjurnar eru mest notaðar til að merkja umferðir, t.d. úrtökur eða útaukningar.
Það eru tvær stærðir fáanlegar. Þessar eru stærri.
Innihald: 12 merkikræjur í tveimur litum, plastumslag til að geyma þær í fylgir.
Athugið að það er betra að hafa krækjurnar lokaðar þegar þær eru ekki í notkun.
Nálahús með 2 grófum jafanálum. Bogni oddurinn auðveldar þræðingu í gegnum lykkjur. Nálarhúsið er með áskrúfuðu loki sem geymir nálarnar vel.
Nálarnar eru Ø 2,5 x 7 mm á lengd.
Fleiri nálahús með nálum fáanleg:
Nálahús með 3 jafanálum. Bogni oddurinn gerir það auðveldara að þræða nálina í gegnum lykkjur. Nálarhúsið er með áskrúfuðu loki sem geymir nálarnar vel.
Nálarnar eru nr. 15 (2 stk.) og nr. 17 (1 stk.).
Fleiri nálahús með nálum fáanleg:
Tvær grófar frágangsnálar úr plasti. Stór augu og því auðvelt að þræða með grófu garni.
Nálarendinn er örlítið boginn sem auðveldar að stinga nálinni undir lykkjur.
Nálarnar eru með gyllt auga. Efst er U-laga op sem strekktur þráðurinn er lagður ofan á og smokrað í gegn. Þannig þræðist nálin án þess að stinga þurfi í gegnum nálaraugað. Sparar tíma og auðveldar þræðingu.
Nálarnar renna vel í gegnum efni.
Nálarnar eru sérstaklega hertar svo þær bogna hvorki né brotna.