• Sokkamál til að mæla lengdina á sokkbolnum frá hæl áður en byrjað er á úrtöku á tátotunni. Sniðugt þegar verið er að prjóna til gjafa. Sokkamálið mælir líka prjónastærðirnar! Laserskorið úr við.
  • Höfundur: Hélène Magnússon
    Útgefandi: Hélène Magnússon (2021) Mjúkspjalda | 112 bls. Tungumál: Íslenska
    Þyngd: 500 g

    Með bókinni Sokkar frá Íslandi endurvekur Hélène Magnússon sokkahefðir á Íslandi og gefur þeim nýtt líf. Hún sækir innblástur í gamlar íslenska sokka, eldgamlar uppskriftir en einnug í hefðbundna íslenska vettlinga. Bókin inniheldur 17 sokkauppskriftir með sterkum íslenskum blæ. Sumar fela í sér nýjar aðferðir en aðrar eru einfaldari. Þér mun ekki leiðast við prjónaið og það er eitthvað fyrir alla, byrjendur sem lengra komna. Bókin segir einnig ýmislegt um sögu sokkaprjóns á Íslandi. Bak við verkið býr fagleg rannsókn á hini gömlu hefð. Það er bæði heillandi og hrífandi hvernig einfalt sokkapar getur afhjúpað brot úr daglegu lífi Íslendinga.

  • SOKKATRÉ

    3.795kr.
    Sokkatré til að strekkja nýprjónaða sokka. Fást í nokkrum stærðum.  
  • Afsláttur!

    Special Knits

    Original price was: 3.990kr..Current price is: 1.995kr..
    Höfundur:  Debbie Bliss Útgefandi: Anova Book Company (2006)
    Mjúkspjalda | 127 bls. Tungumál: Enska Þyngd: 575 g | Mál: 250 x 250 mm
    Klassísk bók frá Debbie Bliss með 22 uppskriftum fyrir yngstu börnin. Ungbarnapeysur og ungbarnateppi.
  • Höfundur: Karin Kahnlund Harðspjalda | 151 bls. Tungumál: Sænska
    Þyngd: ‎550 g | Mál: ‎177 x 253 x 19 mm
    Prjónameistarinn Karin Kahnlund prjónar vettlingar allan ársins hring. Í Svíþjóð eru veturnir kaldir og vettlingar nauðsynlegir. Allir eiga vettlinga og það er löng vettlingahefð í Svíþjóð. Í bókinni eru hefðbundnir sænskir vettlingar ásamt nýrri hönnun; fingravettlingar, belgvettlingar, og grifflur í mörgum ólíkum útfærslum. Karin Kahnlund gerir góðar uppskriftir með smáatriðum og tækni þannig að prjónarar geti gert mismunandi kanta, stofna, þumaltungur, úrtökur á totu og mynstur. Virkilega eiguleg bók fyrir áhugafólk um vettlingaprjón.
  • Höfundur: Jen Rich
    Útgefandi: Octopus books 2023 Harðspjalda | 145 bls. Stærð: 235 x 166 x 19 mm Tungumál: Enska Þyngd: 495 g Stitch, Sewing Projects for the Modern Maker er falleg og stílhrein bók með 30 saumaverkefnum sem innihalda bæði töskur og poka, pottaleppa, körfur og ýmislegt nytsamlegt. Skýrar og einfaldar leiðbeiningar sem gott er að fylgja eftir.
  • Höfundur: Yumiko Higuchi Útgefandi: Roost Books (2024)
    Mjúkspjalda | 96 bls. Tungumál: Enska Þyngd: 300 g | Mál: 191 x 241 x 6 mm

    Stitching Through The Seasons eftir Yumiko Higuchi

    Dásamlega falleg útsaumsbók eftir japanska höfundinn Yumiko Higuchi. Blóm og gróður, ávextir, fólk fiskar og ýmislegt fleira er að finna í bókinni. Bókinni er skipt upp í kafla eftir mánuðunum og hefur hver mánuður sitt þema. Í bókinni eru einnig góðar leiðbeiningar með myndum með sporunum sem nota skal í útsauminn.
  • Höfundur: Jorid Linvik Útgefandi: Känguru (2016)
    Harðspjalda | 191 bls. Tungumál: Sænska Þyngd: 890 g | Mál: 197 x 267 x 23 mm 
    Við höfum áður verið með þessa bók á norsku og ensku en hér er hún komin á sænsku. Sama góða vettlingabókin sem hefur slegið öll vinsældarmet og nú á frábæru verði. Jorid Linvik er höfundur nokkurra mjög vinsælla prjónabóka um vettlinga- og sokkaprjón. Þessi bók eru með fjölbreyttum uppskriftum af vettlingum í litríkum og fallegum mynstrum. Alls 45 prjónaverkefni, í stíl Joridar, glaðleg og uppáhald margra, enda metsöluhöfundur í prjónaheiminum. Mikið af góðum myndum, mynsturteikningum og skýringum á aðferðum. Bókin inniheldur: Góðar leiðbeiningar um vettlingaprjón, mynsturteikningar og að auki reiti til að gera þitt eigið mynstur. Margar stærðir bæði á börn og fullorðna. Eitthvað fyrir alla, bæði hefðbundið, rómantískt og nýjar hugmyndir.  
  • Storkskonur eru duglegar að gera uppskriftir endrum og sinnum. Flestar eru klassískar og hægt að prjóna á margar kynslóðir barna. Litavalið sér hvert og eitt ykkar um eftir eigin smekk og e.t.v. tíðaranda.
    GRÁMANN Hönnuður/uppskrift: Storkurinn / Guðræun Hannele Garn: Hamelton Tweed 1  4 (4) 5 (5) x 50 g í lit G (á mynd grænblátt #04) og  1 x 50 g í lit M (dökkgrátt #16) Stærðir: 1 ( 2) 4 (6) 8 ára Sjá prjóna og prjónfestu hér fyrir neðan.
    Þessi uppskrift er seld sem pdf skjal og er á íslensku. Um leið og greiðsla hefur farið fram birtist slóð á síðunni sem smellt er á til að hlaða henni niður.
  • Storkskonur eru duglegar að gera uppskriftir endrum og sinnum. Flestar eru klassískar og hægt að prjóna á margar kynslóðir barna. Litavalið sér hvert og eitt ykkar um eftir eigin smekk og e.t.v. tíðaranda.
    STRENGUR Hönnuður/uppskrift: Guðný Benediktsdóttir / Storkurinn Garn: Volare DK 3 (4) 5 (5) x 50g í lit A (á mynd grátt #700) og  1 x 50g í lit M (á karrýgult #285) Prjónar: Hringprjónar 60 cm 3½ og 4 mm, sokkaprjónar 3½ og 4 mm. Stærðir: 1 ( 2) 4 (6) ára
    Þessi uppskrift er seld sem pdf skjal og er á íslensku. Um leið og greiðsla hefur farið fram birtist slóð á síðunni sem smellt er á til að hlaða henni niður.
  • Afsláttur!

    STORM

    Original price was: 3.995kr..Current price is: 2.797kr..
    Höfundur: Kim Hargreaves Útgefandi: Kim Hargreaves (2013)
    Mjúkspjalda | 104 bls. Tungumál: Enska Þyngd: 522 g | Mál: 217 x 280 x 5 mm
    Kim Hargreaves, fyrrum hönnuður hjá Rowan, er þekkt fyrir fallega og stílhreina prjónhönnun. Hún leggur áherslu á að hanna fyrir konur, mest peysur en líka fylgihluti eins og húfur og trefla. Undanfarin ár hafa komið út reglulega prjónabækur eftir hana þar sem hún notar eingöngu garn frá Rowan. Prjónhönnun Kim Hargreaves er klassísk og í eldri sem og nýrri bókunum hennar er að finna margar áhugaverðar flíkur.
    STORM inniheldur 21 uppskrift af peysum og fylgihlutum.
  • 25 cm lengdareining = 1625 Metraverð 6500 kr. Innihald: 100% bómull Þræðir per cm: 3,9   Hver lengdareining er 25 cm x 90 cm (breidd efnisins). Hægt er að velja eina eða fleiri lengdareiningar og við afgreiðum efnið í einum bút. 1 eining = 25 cm, 2 einingar = 50 cm, 3 einingar = 75 cm, 4 einingar = 100 cm. Athugið að það getur verið erfitt að sýna hárétta liti á tölvuskjá eða símaskjá.
  • Höfundur: Anna Johanna
    Útgefandi:  Quadrille Publishing (2022)
    Mjúkspjalda | 176 bls. Tungumál: Enska Þyngd: 760 g | Mál: ‎215 x 270 x 21 mm
    Strands of Joy inniheldur 20 fjölbreyttar uppskriftir, þ.á.m. heilar og opnar peysur og flottan kjól, húfu og krakkapeysu. Allar uppskriftirnar gera ráð fyrir að prjónað sé ofan frá og í hring.  Fitjaðu upp á tvíbandaprjónaðri flík, láttu hugann finna ró á meðan þú tekst á við verkefni sem þarfnast meiri einbeitingar. Anna Johanna er prjónhönnuður frá Muurame í mið Finnlandi. Hún er þekkt fyrir rómantískar flíkur og leggur áherslu á smáatriðin, áferð og liti.  Hún er tölfræðingur en hefur frá 2020 eingöngu unnið við prjónhönnun. Strands of Joy (á finnsku Onnensäikeitä) er fyrsta bókin hennar. Innihald: 20 colourwork knitting patterns (10 peysur, 7 jakkapeysur, 1 kjóll, 1 húfa, 1 krakkapeysa). Uppskriftirnar fyrir fullorðins peysur koma í 9 - 12 stærðum. ATH. Þessi bók kom upprunalega út hjá LAINE sem harðspjaldabók en er hér í mjúkspjaldaútgáfu frá bresku forlagi.
  • Höfundur: Anna Johanna
    Ùtgefandi: Laine Publishing (2024)
    Harðspjalda | 175 bls. Tungumál: Enska Þyngd: 860 g | Mál: ‎212 x 277 x 21 mm
    Strands of Joy Vol. II er önnur bókin hennar  Önnu Jóhönnu sem mörg hafa beðið spennt eftir. Bókin stendur undir væntingum, full af alls konar peysum og fylgihlutum. Smellið á hlekkinn hérna fyrir neðan til að skoða sýnishorn úr bókinni. Nánar um bókina: Pattern Previews for Strands of Joy Vol. II
  • TAUPOKI Taupoki merktur Prjónalífið er yndislegt. Eitt band til að draga saman. Þægilegur verkefnapoki. Stærð 25 x 34,5 cm
  • TAUPOKI Taupoki með merki Storksins. Tvö bönd til að draga saman. Þægilegur verkefnapoki. Stærð 24,5 x 29,5 cm
  • Hvít ávöl teygja fyrir allan almennan saumaskap. Teygjan er eins og snúra 1 mm í þvermál 10 m á spjaldi.
  • Svört ávöl teygja fyrir allan almennan saumaskap. Teygjan er eins og snúra 1 mm í þvermál 10 m á spjaldi.
  • Hvít teygja fyrir allan almennan saumaskap. Teygjan er flöt, 14 mm á breidd og 3 m á spjaldi.
  • Svört teygja fyrir allan almennan saumaskap. Teygjan er flöt, 13 mm á breidd og 3 m á spjaldi.
  • Hvít teygja fyrir allan almennan saumaskap. Teygjan er flöt, 6 mm á breidd og 10 m á spjaldi.
  • Svört teygja fyrir allan almennan saumaskap. Teygjan er flöt, 6 mm á breidd og 10 m á spjaldi.
  • Höfundur: Anne Le Brocq
    Ùtgefandi: David & Charles (2023)
    Mjúkspjalda | 144 bls. Þyngd: 585 g |  Mál: ‎210 x 273 x 10 mm 

    The Art of Landscape Knitting - Beginner Knitting Patterns For Unique Blankets

Go to Top