• Jafnþráða jafi úr hör/líni. Selt í pakkningu með 46 x 46 cm. Grófleiki 8 þræðir/1 cm.  
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • Panamajafi úr beinhvítri bómull. Selt í pakkningu með 43 x 50 cm. Grófleiki 3,2 þræðir/1 cm. Jafi fyrir krosssaum og önnur úttalin útsaumsspor.  
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • Panamajafi (Lazy Aida) úr hvítri bómull með dökkum línum sem afmarka 10 x 10 spor. Línurnar hverfa í vatni. Grófleiki 6,4 þræðir/1 cm. Jafi fyrir krosssaum og önnur úttalin útsaumsspor.
  • Grófar frágangsnálar fyrir prjón, hekl og annað. Nálahús fylgir með.
  • Saumnálar með góðum oddi fyrir allan almennan saumaskap. Tuttugu nálar í pakka í mismunandi lengdum.
  • Knit Pro Symfonie sokkaprjónar er úr birki með góðum oddi og sléttri áferð. Uppáhaldsprjónar margra. Hægt er að fá Symfonie sokkaprjóna, styttri 15 cm og lengri 20 cm. Knit Pro prjónarnir eru framleiddir í Indlandi við bestu mögulegar aðstæður fyrir starfsfólk. Þar á sér stað stöðug vöruþróun og þarfir prjónara eru alltaf í fyrirrúmi.  
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • Knit Pro UPPSKRIFTAMAPPA

    Price range: 5.995kr. through 6.995kr.
    Stílhrein mappa með segli fyrir uppskriftir og mynsturteikningar. Sérstaklega þægilegt þegar prjónað eða saumað er eftir teikningu. Hægt að láta möppuna standa. Minni seglar fylgja til að festa blaðið við og lengri segull fylgir til að merkja línuna sem prjónað/saumað er eftir. Tvær stærðir: A4 og A5.  
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
    • Sett með 14 heklunálum
    • Stærðir: 2 mm, 2,5 mm, 3 mm, 3,5 mm, 4 mm, 4,5 mm, 5 mm, 5,5 mm, 6 mm, 7 mm, 8 mm, 9 mm, 10 mm & 12 mm
    • Veskið er með sægrænni kápu úr taui
  • Höfundur: Veronika Lindberg Útgefandi: Laine Publishing (2024)
    Harðspjalda | 204 bls. Tungumál: Enska Þyngd: 950  g | Mál: 210 x 280 x 20 mm
    KNITS TO WEAR: KUTOVA KIKA
    Bók með fallegum og klæðilegum peysum og fylgihlutum. Í bókinni eru 17 uppskriftir; 7 heilar peysur, 2 hnepptar peysur, 3 bolir, 1 vesti, 3 húfur og 1 kragi. Uppskriftirnar innihalda bæði mynsturteikningar og skriflegar vinnulýsingar.
  • Góð dagbók sem nýtist öllum sem vilja gott skipulag, en að auki er að finna í bókinni upplýsingar um flesta ef ekki alla viðburði sem tengjast prjóni víða um lönd. Svona bók þarf hver einasti prjónari að eiga, sérstaklega þau sem ferðast.
  • Vinsæla prjónaverkefnabókin frá Laine inniheldur nægt rými fyrir 31 prjónaverkefni (hvert verkefni fær 4 bls.), 6 bls. fyrir upplýsingar um garnkaup, 18 rúðustrikaðar bls. fyrir mynsturteikningar, tafla með prjónastærðum, algengustu staðlaðar skammstafanir í prjóni á ensku, 156 bls. úr gæðapappír (+ 4 saurblöð), kápan er klædd þéttofnu efni og það er áfastur borði fyrir bókamerki. Nokkrir litir hafa verið í boði.

    Stærð: 21,5 cm x 15,5 cm x 2 cm
  • Vettlingapakki KURZEME #04 Þessar pakkningar innihalda vettlingauppskrift með mynsturteikningu og ullargarni. Vettlingamynstrið er hefðbundið frá svæðinu Kurzeme í Lettlandi. Hvert vettlingapar hefur sína sögu og sína merkingu. Í Lettlandi hafa vettlingar verið aðalgjafirnar um aldaskeið. Nú til dags eru þeir, í öllum sínum litríku útgáfum, enn mikilvægur hluti af vetrarklæðnaði fólks. Allar pakkningarnar innihalda 100% nýull frá bóndabæ í eigu fjölskyldu sem vinnur ullina sjálf fyrir spunann. Allt er handgert, þ.m.t. kassinn. Í Knit Like a Latvian pakkningunni er:
    • litprentuð mynsturteikning
    • 100% ull í litum sem duga í vettlingapar í stærð M/L
    • vettlingauppskrift
    Ráðlagðir prjónar: 1,5mm - 3 mm – prjónarnir fylgja ekki með. Við mælum með handþvotti í ylvolgu vatni og leggja vettlingana til þerris.
     
  • Vettlingapakki MUHU INSPIRATION #10 Þessar pakkningar innihalda vettlingauppskrift með mynsturteikningu og ullargarni. Vettlingamynstrin eiga rætur að rekja til ýmissa svæða í Lettlandi. Hvert vettlingapar hefur sína sögu og sína merkingu. Í Lettlandi hafa vettlingar verið aðalgjafirnar um aldaskeið. Nú til dags eru þeir, í öllum sínum litríku útgáfum, enn mikilvægur hluti af vetrarklæðnaði fólks. Allar pakkningarnar innihalda 100% nýull frá bóndabæ í eigu fjölskyldu sem vinnur ullina sjálf fyrir spunann. Allt er handgert, þ.m.t. kassinn. Í Knit Like a Latvian pakkningunni er:
    • litprentuð mynsturteikning
    • 100% ull í litum sem duga í vettlingapar í stærð M/L
    • vettlingauppskrift
    Ráðlagðir prjónar: 1,5mm - 3 mm – prjónarnir fylgja ekki með. Við mælum með handþvotti í ylvolgu vatni og leggja vettlingana til þerris.
     
    • Grófleiki: Fínband / fingering  / 4 ply
    • Innihald: 100% highland superwash merínóull
    • Lengd/þyngd: 400m/100g
    • Prjónar: 2,25 - 3,5 mm
    • Prjónfesta: 22 - 32 L á prjóna 2,25 - 3,5 mm = 10 cm
    • Þvottur: Ullarvagga í köldu vatni
    Dásamlegt handlitað og sprengt ullargarn frá LITLG (Life in the Long Grass) á Írlandi. Við höfum góða reynslu af garni frá þessum frábæra handlitara.
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • Höfundur:  Marie Wallin Útgefandi: Marie Wallin Designs (2022)
    Mjúkspjalda | 121 bls. Tungumál: Enska Þyngd: 550 g | Mál: 215 x 280 mm
    Cumbria, sérstök bók frá Marie Wallin því þetta er í fyrsta skipti sem hún hefur peysur á herra með. Í bókinni eru 11 verkefni, þar af 3 herrapeysur, 6 dömupeysur og 2 fylgihlutir. Allar peysurnar er hægt að prjóna í hring að viðbættum klippilykkjum þar sem hliðar eða handvegsop á að vera. Í bókinni er sérstakur kafli þar sem kennt er að klippa upp peysur. Kvenstærðirnar eru S, M, L, XL, XXL, 2XL OG 3XL og passa fyrir ummál 81-86 cm, 91-97cm, 102-107cm, 112-117cm, 122-127cm, 132-137 cm og 142-147 cm. Herrastærðirnar eru XS, S, M, L, XL, XXL, 2XL og 3XL og passa fyrir ummál 97-102 cm, 102-107 cm, 107-112 cm, 112-117 cm, 117-122 cm, 122-127 cm, 127-132 cm og 132-137 cm. Hverri bók fylgir rafbók, það er kóði til að hlaða bókinni niður í tölvuna, spjaldtölvuna eða símann. Þá er auðvelt að stækka mynstrin þegar prjónað er eftir þeim.
  • Englabossi Merkimiðar úr vaskaskinni. Áferðin á vaskaskinni minnir á rúskinn, en er mýkra. Það heldur mýktinni, þolir þvott og lætur ekki lit. Áletrunin er hitaprentuð og endist því vel. Það eru göt á hverju horni svo auðvelt sé að festa við flíkina. Stærð 2,5 x 2,5 cm
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • Japanskar MIYUKI glerperlur. Fást aðeins í verslun okkar Síðumúla 20. 20-22g = 1.295 kr.
  • Höfundur: Anna Nikipirowicz
    Ùtgefandi: David & Charles (2024)
    Linspjalda | 176 bls. Þyngd: 580 g |  Mál: ‎190 x 245 x 12 mm 

    Mosaic Chart Directorry for Knitting + Crochet

    • Mósaík er litskipti tækni sem hjálpar þér að gera flókin endurtekin munstur án þess að skipta um lit í miðri umferð.
    • Byrjendur jafnt og lengra komnir geta notast við mynstrin. Aðeins grunnþekkingu í hekli eða prjóni er krafist, en það er líka sýnt í bókinni.
    • Prjónarar og heklarar geta notað sömu aðgengilegu mynstrin.
    • Lengra komnir geta nýtt sér þessi mynstur og aðferðir og prjónað/heklað þau í flíkur.
     
  • Hirsla fyrir þríprjóna & prjónasnúrur

    Síða í Carita prjónamöppuna

    Carita F er praktísk hirsla fyrir þríprjóna unnin úr gæðaleðri. Hægt er að nota hana eina og sér eða setja inn í Carita möppuna. Auðvelt að taka úr og setja í möppuna. Litur: Viskí brúnt Upplýsingar Gæðaleður sem endist aldur og ævi Þægilegir vasar Fyrir þríprjóna, prjónasnúrur og fleira D-hringir til að festa í möppuna Stærð Hæð: 21 cm Lengd: 12 cm Þyngd: 77 g
  • Verkefnataska

    Cleo Midi frá Muud er þægileg taska í millistærð með axlaról. Taskan er hönnuð og framleidd úr gæðaleðri, notendavæn, með nægt rými fyrir verk í vinnslu, garn og áhöld, án þess að vera fyrirferðarmikil. Ferningslaga taskan opnast vel og liggur flöt á borði eins og kassi. Þá er góð yfirsýn yfir allt innihaldið og hægt að hafa röð og reglu á öllu. Taskan er frábær fyrir prjónara en nýtist einnig sem hefðbundin taska. Hægt er að stilla lengd axlarólarinnar, en það er líka gott minna handfang til að halda á henni. Innan í töskunni eru tvö stór hólf og vasi með rennilás. Upplýsingar Gæðaleður sem endist aldur og ævi Ferhyrnd í laginu Lokast á ská með rennilás Tvö stór hólf Vasi með rennilás Handfang að ofan Stillanleg axlaról sem hægt er að taka af Fleiri axlarólar frá Muud passa á töskuna Fóðrið er úr polydrill með sléttri áferð sem er auðvelt að halda hreinu Stærðir Hæð: 17 cm Lengd: 30 cm Breidd: 15,5 cm Þyngd: 455 g Litur: Viskí brún
  • Veljið hvernig peysu þið viljið prjóna svo að uppskriftin verði tilbúin fyrir ykkur. Það er val um: ANKER SWEATER MY SIZE - kvenstærðir - peysa með síðum ermum ANKER SWEATER - barnastærðir - 3 mán til 12 ára - peysa ANKER TEE - kvenstærðir - peysa með stuttum ermum - fíngerðara garn
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • Höfundur: NOVITA Útgefandi: Novita (Haust 2025)
    Tungumál: Sænska Þyngd: 350 g | Mál: 21 x 29,5 mm NOVITA tímaritin koma út fjórum sinnum á ári; vor-, sumar-, haust- og vetrarblöð.  Hvert tímarit með um eða yfir 40 uppskriftum fyrir börn, fullorðna og heimilið.
    Uppskriftirnar eru með teikningum ef við á og er auðvelt að fylgja. Í hverju blaði er er kennsla á tiltekinni aðferð í hannyrðum.
  • Hefðbundin storkaskæri eru ekki bara falleg heldur góð fyrir útsauminn eða til að klippa spotta. Stærð: 9 cm.
Go to Top