-
Knit Pro Symfonie sokkaprjónar er úr birki með góðum oddi og sléttri áferð. Uppáhaldsprjónar margra. Hægt er að fá Symfonie sokkaprjóna, styttri 15 cm og lengri 20 cm. Knit Pro prjónarnir eru framleiddir í Indlandi við bestu mögulegar aðstæður fyrir starfsfólk. Þar á sér stað stöðug vöruþróun og þarfir prjónara eru alltaf í fyrirrúmi. -
Stílhrein mappa með segli fyrir uppskriftir og mynsturteikningar. Sérstaklega þægilegt þegar prjónað eða saumað er eftir teikningu. Hægt að láta möppuna standa. Minni seglar fylgja til að festa blaðið við og lengri segull fylgir til að merkja línuna sem prjónað/saumað er eftir. Tvær stærðir: A4 og A5. -
Höfundur: Veronika Lindberg Útgefandi: Laine Publishing (2024)Harðspjalda | 204 bls. Tungumál: Enska Þyngd: 950 g | Mál: 210 x 280 x 20 mmKNITS TO WEAR: KUTOVA KIKABók með fallegum og klæðilegum peysum og fylgihlutum. Í bókinni eru 17 uppskriftir; 7 heilar peysur, 2 hnepptar peysur, 3 bolir, 1 vesti, 3 húfur og 1 kragi. Uppskriftirnar innihalda bæði mynsturteikningar og skriflegar vinnulýsingar. -
Vinsæla prjónaverkefnabókin frá Laine inniheldur nægt rými fyrir 31 prjónaverkefni (hvert verkefni fær 4 bls.), 6 bls. fyrir upplýsingar um garnkaup, 18 rúðustrikaðar bls. fyrir mynsturteikningar, tafla með prjónastærðum, algengustu staðlaðar skammstafanir í prjóni á ensku, 156 bls. úr gæðapappír (+ 4 saurblöð), kápan er klædd þéttofnu efni og það er áfastur borði fyrir bókamerki. Nokkrir litir hafa verið í boði.
Stærð: 21,5 cm x 15,5 cm x 2 cm -
Vettlingapakki KURZEME #04 Þessar pakkningar innihalda vettlingauppskrift með mynsturteikningu og ullargarni. Vettlingamynstrið er hefðbundið frá svæðinu Kurzeme í Lettlandi. Hvert vettlingapar hefur sína sögu og sína merkingu. Í Lettlandi hafa vettlingar verið aðalgjafirnar um aldaskeið. Nú til dags eru þeir, í öllum sínum litríku útgáfum, enn mikilvægur hluti af vetrarklæðnaði fólks. Allar pakkningarnar innihalda 100% nýull frá bóndabæ í eigu fjölskyldu sem vinnur ullina sjálf fyrir spunann. Allt er handgert, þ.m.t. kassinn. Í Knit Like a Latvian pakkningunni er:- litprentuð mynsturteikning
- 100% ull í litum sem duga í vettlingapar í stærð M/L
- vettlingauppskrift
-
Vettlingapakki MUHU INSPIRATION #10 Þessar pakkningar innihalda vettlingauppskrift með mynsturteikningu og ullargarni. Vettlingamynstrin eiga rætur að rekja til ýmissa svæða í Lettlandi. Hvert vettlingapar hefur sína sögu og sína merkingu. Í Lettlandi hafa vettlingar verið aðalgjafirnar um aldaskeið. Nú til dags eru þeir, í öllum sínum litríku útgáfum, enn mikilvægur hluti af vetrarklæðnaði fólks. Allar pakkningarnar innihalda 100% nýull frá bóndabæ í eigu fjölskyldu sem vinnur ullina sjálf fyrir spunann. Allt er handgert, þ.m.t. kassinn. Í Knit Like a Latvian pakkningunni er:- litprentuð mynsturteikning
- 100% ull í litum sem duga í vettlingapar í stærð M/L
- vettlingauppskrift
-
Höfundur: Marie Wallin Útgefandi: Marie Wallin Designs (2022)Cumbria, sérstök bók frá Marie Wallin því þetta er í fyrsta skipti sem hún hefur peysur á herra með. Í bókinni eru 11 verkefni, þar af 3 herrapeysur, 6 dömupeysur og 2 fylgihlutir. Allar peysurnar er hægt að prjóna í hring að viðbættum klippilykkjum þar sem hliðar eða handvegsop á að vera. Í bókinni er sérstakur kafli þar sem kennt er að klippa upp peysur. Kvenstærðirnar eru S, M, L, XL, XXL, 2XL OG 3XL og passa fyrir ummál 81-86 cm, 91-97cm, 102-107cm, 112-117cm, 122-127cm, 132-137 cm og 142-147 cm. Herrastærðirnar eru XS, S, M, L, XL, XXL, 2XL og 3XL og passa fyrir ummál 97-102 cm, 102-107 cm, 107-112 cm, 112-117 cm, 117-122 cm, 122-127 cm, 127-132 cm og 132-137 cm. Hverri bók fylgir rafbók, það er kóði til að hlaða bókinni niður í tölvuna, spjaldtölvuna eða símann. Þá er auðvelt að stækka mynstrin þegar prjónað er eftir þeim.Mjúkspjalda | 121 bls. Tungumál: Enska Þyngd: 550 g | Mál: 215 x 280 mm -
Höfundur: Anna NikipirowiczÙtgefandi: David & Charles (2024)Linspjalda | 176 bls. Þyngd: 580 g | Mál: 190 x 245 x 12 mmMosaic Chart Directorry for Knitting + Crochet
- Mósaík er litskipti tækni sem hjálpar þér að gera flókin endurtekin munstur án þess að skipta um lit í miðri umferð.
- Byrjendur jafnt og lengra komnir geta notast við mynstrin. Aðeins grunnþekkingu í hekli eða prjóni er krafist, en það er líka sýnt í bókinni.
- Prjónarar og heklarar geta notað sömu aðgengilegu mynstrin.
- Lengra komnir geta nýtt sér þessi mynstur og aðferðir og prjónað/heklað þau í flíkur.
-
Hirsla fyrir þríprjóna & prjónasnúrur
Síða í Carita prjónamöppuna
Carita F er praktísk hirsla fyrir þríprjóna unnin úr gæðaleðri. Hægt er að nota hana eina og sér eða setja inn í Carita möppuna. Auðvelt að taka úr og setja í möppuna. Litur: Viskí brúnt Upplýsingar Gæðaleður sem endist aldur og ævi Þægilegir vasar Fyrir þríprjóna, prjónasnúrur og fleira D-hringir til að festa í möppuna Stærð Hæð: 21 cm Lengd: 12 cm Þyngd: 77 g -
Verkefnataska
Cleo Midi frá Muud er þægileg taska í millistærð með axlaról. Taskan er hönnuð og framleidd úr gæðaleðri, notendavæn, með nægt rými fyrir verk í vinnslu, garn og áhöld, án þess að vera fyrirferðarmikil. Ferningslaga taskan opnast vel og liggur flöt á borði eins og kassi. Þá er góð yfirsýn yfir allt innihaldið og hægt að hafa röð og reglu á öllu. Taskan er frábær fyrir prjónara en nýtist einnig sem hefðbundin taska. Hægt er að stilla lengd axlarólarinnar, en það er líka gott minna handfang til að halda á henni. Innan í töskunni eru tvö stór hólf og vasi með rennilás. Upplýsingar Gæðaleður sem endist aldur og ævi Ferhyrnd í laginu Lokast á ská með rennilás Tvö stór hólf Vasi með rennilás Handfang að ofan Stillanleg axlaról sem hægt er að taka af Fleiri axlarólar frá Muud passa á töskuna Fóðrið er úr polydrill með sléttri áferð sem er auðvelt að halda hreinu Stærðir Hæð: 17 cm Lengd: 30 cm Breidd: 15,5 cm Þyngd: 455 g Litur: Viskí brún -
Höfundur: NOVITA Útgefandi: Novita (Haust 2025)Tungumál: Sænska Þyngd: 350 g | Mál: 21 x 29,5 mm NOVITA tímaritin koma út fjórum sinnum á ári; vor-, sumar-, haust- og vetrarblöð. Hvert tímarit með um eða yfir 40 uppskriftum fyrir börn, fullorðna og heimilið.Uppskriftirnar eru með teikningum ef við á og er auðvelt að fylgja. Í hverju blaði er er kennsla á tiltekinni aðferð í hannyrðum.