-
Buddan er saumuð á stramma með krosssaumi með útsaumsgarni úr 100% ull. Það eru fylgja margir litir af útsaumsgarni með. Hönnuðurinn leggur til að þið veljið litina af handahófi þegar saumað er. Þá verður þetta óvissuferð, en kemur alltaf fallega út því litirnir passa allir vel saman. Rennilás fylgir og liturinn á honum er mismunandi, en alltaf í stíl við garnið. Innihald: Strammi, jafanál, útsaumsgarn úr ull, rennilás, leðursnúra, mynsturteikning, efni fyrir frágang og leiðbeiningar á dönsku. Hönnuður: Søren Nielsen Stærð: 15 cm x 22 cm Þéttleiki: 44 spor / 10 cm. -
Getur gagnlegt prjónahjálpartæki líka verið skartgripur? Já, nýi hringurinn úr 925 sterling silfri frá addi, sem fæst í þremur stærðum, sameinar hönnun og garnleiðara í einni vöru. Hringinn er ekki aðeins hægt að nota við tvíbanda prjón, heldur er einnig frábær garnleiðari í einlitu prjóni. Hægt er að breyta spennu garnsins eftir hvernig það er þrætt. Skartgripur framleiddur í Altena, Þýskalandi. Auðvelt að aðlaga að stærð. Hönnun eftir Sylvie Rasch. Stærðir: S = ummál 52mm M = ummál 54mm L = ummál 56mm -
Vinsæla prjónaverkefnabókin frá Laine inniheldur nægt rými fyrir 31 prjónaverkefni (hvert verkefni fær 4 bls.), 6 bls. fyrir upplýsingar um garnkaup, 18 rúðustrikaðar bls. fyrir mynsturteikningar, tafla með prjónastærðum, algengustu staðlaðar skammstafanir í prjóni á ensku, 156 bls. úr gæðapappír (+ 4 saurblöð), kápan er klædd þéttofnu efni og það er áfastur borði fyrir bókamerki. Nokkrir litir hafa verið í boði.
Stærð: 21,5 cm x 15,5 cm x 2 cm -
Afsláttur!
Maker’s Midi Backpack er bakpoki sem er ekki of stór og ekki of lítill. Fullkominn fyrir þau sem stunda hvers kyns handíðir og eru á ferðinni, en líka fyrir hin því þetta er fyrst og fremst góður og vandaður bakpoki. Axlarólarnar eru nógu breiðar til að dreifa þyngdinni í bakpokanum jafnt. Hann getur staðið óstuddur þökk sé fimm málmtöppum sem veita stuðning en koma líka í veg fyrir að botninn óhreinkist. Handföngin efst á töskunni eru þægileg þegar axlarólarnar eru ekki í notkun. Margir góðir vasar til að hafa skipulag á öllu sem er meðferðis. Góð taska fyrir hversdagslífið. Hönnuð fyrir skapandi einstaklinga á ferðinni. Framleiðandinn hefur sjálfbærni að leiðarljósi við framleiðslu þessarar tösku. Hver taska er handunnin og tímalaus hönnun. Stærð: Lengd 35,5 cm x breidd 10 cm x hæð 32,3 cm. -
- Grófleiki: Þykkband / Aran / Worsted
- Innihald: 70% alpaka, 7% ull, 23% pólíamíð
- Lengd/þyngd: 130m/50g
- Prjónar: 5,5 mm
- Prjónfesta: 18 lykkjur og 24 umferðir = 10 x 10 cm
- Þvottur: Handþvottur 30°C
-
Petite Knit | Copenhagen Cardigan
Petite Knit er merki danska prjónhönnuðarins Mette Wendelboe Okkels. Hún hannar og útfærir uppskriftir á börn og fullorðna í klassískum nútímalegum stíl. Mette tengir um leið gamlar prjónahefðir við nýjar aðferðir. Uppskriftirnar eru skýrar og gott að fara eftir þeim. Þetta er rafræn uppskrift.
Þessi uppskrift er fáanleg á Íslensku. Við kaup á rafrænni uppskrift færð þú aðgang að öllum tungumálum sem búið er að þýða uppskriftina á.
Uppskriftin kemur í tölvupósti frá Ravelry Downloads.
Uppskriftir eru keyptar handvirkt fyrir hvern og einn og eru afgreiddar á opnunartíma verslunarinnar.
-
Petite Knit er merki danska prjónhönnuðarins Mette Wendelboe Okkels. Hún hannar og útfærir uppskriftir á börn og fullorðna í klassískum nútímalegum stíl. Mette tengir um leið gamlar prjónahefðir við nýjar aðferðir. Uppskriftirnar eru skýrar og gott að fara eftir þeim. Þessi uppskrift er seld útprentuð á góðan pappír og er á ENSKU. -
Höfundur: Debbie Tomkies Útgefandi: David & Charles (2024)Mjúkspjalda | 176 bls. Tungumál: Enska Þyngd: 514 g | Mál: 190 x 246 mm The Cable Knitting Stitch Dictionary covers all the essential skills needed to produce successful cables, such as cable terminology, how to read and follow cable charts, spotting and correcting errors, and handy tips and tricks for beginners. There are skill level flags so readers can learn as they go, and mix and match ideas for combining different cable designs. As well as the written patterns there are charts for each of the designs alongside life-size photography of the knitted samples stitched up in high-definition yarn. The book begins with a series of classic cables and then moves on to more detailed cables progressing in complexity from combination cables and panels to all over designs and motifs. It then moves on to explaining how to incorporate other techniques like colorwork. The key stitches required are explained with step-by-step photography and instructions. And there is a chapter about creating your own designs with cables which explores how to chart your own cables, how cables affect the drape of the fabric and ways to adapt this, choosing the right yarn and cable placement. The ‘mix and match’ feature for combining cables flags the row pattern repeat and stitch multiples so you can see if it would work in a specific project. There is also information about the stocking stitch equivalent which is essential when doing a gauge swatch in order to know how wide the cable pattern should be. By taking the best of the traditional cable designs and blending them with contemporary cables, this collection will be a valued reference for any knitter. -
Höfundur: Esme Crick Útgefandi: David & Charles (2024)Mjúkspjalda | 24 bls. Tungumál: Enska Þyngd: 290 g | Mál: 92 x 147 mm SPJÖLD MEÐ HEKLTÆKNI Learn 52 simple and textural crochet stitches and stitch patterns with this pretty and accessible card deck. In this unique card deck you'll find step-by-step instructions for 52 simple stitches and textural stitch patterns to up your crochet game. Each card shows the finished stitch texture with clear and concise instructions on how to crochet it, attractively designed and all presented in a neat and pretty box. A perfect introduction to crochet for beginners and improvers, this deck showcases a wide range of stitches and stitch patterns in an easy to learn - and to refer back to - format. For more experienced crocheters, the deck is the perfect inspiration tool, making it easy to find a new stitch to incorporate into a project. The cards are robust enough to be tucked into a project bag, making crochet on the go easy and fun. With a handy 24-page booklet providing beginner instructions for all the foundation stitches, the cards in this deck are designed to be taken out into the world, meaning you can learn on the go and making it easy to always have a project at hand. Presented in a wafer sealed box, this Crochet Stitches card deck contains all the information you need to know to get started - just add yarn and hook, and away you go! Author Esme Crick has been pioneering the rediscovery of all the incredible stitches and textures available to the crocheter in her book Mix and Match Modern Crochet Blankets, from which the stitches in this deck have been excerpted. Whether you are a keen crocheter or an absolute beginner, this invaluable deck is your go-to tool for everything you need to start - or continue - your crochet journey. -
Höfundur: NOVITA Útgefandi: Novita (Haust 2025)Tungumál: Sænska Þyngd: 350 g | Mál: 21 x 29,5 mm NOVITA tímaritin koma út fjórum sinnum á ári; vor-, sumar-, haust- og vetrarblöð. Hvert tímarit með um eða yfir 40 uppskriftum fyrir börn, fullorðna og heimilið.Uppskriftirnar eru með teikningum ef við á og er auðvelt að fylgja. Í hverju blaði er er kennsla á tiltekinni aðferð í hannyrðum. -
Dásamlega fallegar öskjur undir smáhluti, t.d. prjónamerki, lítil skæri, nálar o.fl. Myndin á lokinu er sett á öskjuna á handverksstæði FIREFLY. Gljáandi yfirborðið er úr resín sem endist lengi. FIREFLY vörurnar eru handunnar í Kanada.Tvær stærðir í boði:
🐰 Lítil: Lengd 6 cm x breidd 3,4 cm x dýpt 1,2 cm
🐰 Stór: Lengd 9,5 cm x breidd 6,2 cm x dýpt 2 cmFullkomin gjöf fyrir þau sem prjóna, hekla, sauma og aðra sem kunna að meta fallega fylgihluti!
Athugið að hægt er að fá segulplötu í botninn á stærri öskjunni!
-
Petite Knit er merki danska prjónhönnuðarins Mette Wendelboe Okkels. Hún hannar og útfærir uppskriftir á börn og fullorðna í klassískum nútímalegum stíl. Mette tengir um leið gamlar prjónahefðir við nýjar aðferðir. Uppskriftirnar eru skýrar og gott að fara eftir þeim.Valkostir:
- Útprentuð uppskrift, val um dönsku eða ensku – sótt í verslun eða send frítt með öðrum vörukaupum
- Útprentuð uppskrift, send stök með bréfpósti
- Rafræn uppskrift, send með tölvupósti – öll fáanleg tungumál fylgja, sendar á virkum dögum
-
Petite Knit er merki danska prjónhönnuðarins Mette Wendelboe Okkels. Hún hannar og útfærir uppskriftir á börn og fullorðna í klassískum nútímalegum stíl. Mette tengir um leið gamlar prjónahefðir við nýjar aðferðir. Uppskriftirnar eru skýrar og gott að fara eftir þeim.Valkostir:
- Útprentuð uppskrift, val um dönsku – sótt í verslun eða send frítt með öðrum vörukaupum
- Útprentuð uppskrift, send stök með bréfpósti
- Rafræn uppskrift, send með tölvupósti – öll fáanleg tungumál fylgja, sendar á virkum dögum
-
Petite Knit er merki danska prjónhönnuðarins Mette Wendelboe Okkels. Hún hannar og útfærir uppskriftir á börn og fullorðna í klassískum nútímalegum stíl. Mette tengir um leið gamlar prjónahefðir við nýjar aðferðir. Uppskriftirnar eru skýrar og gott að fara eftir þeim.Valkostir:
- Útprentuð uppskrift, val um ensku – sótt í verslun eða send frítt með öðrum vörukaupum
- Útprentuð uppskrift, send stök með bréfpósti
- Rafræn uppskrift, send með tölvupósti – öll fáanleg tungumál fylgja, sendar á virkum dögum
-
Strammi sem leysist upp á um 10 mín. í 40°C vatni. Sniðugt þegar sauma á út í flík eða annað. Hægt er að klippa strammann í hæfilega stóra búta. Stærð: 15 x 22 cm (hægt að klippa í rétta stærð) Grófleiki: 5,4 spor á cm. Þegar sauma á úttalin spor eins og t.d. krosssaum í efni sem er of þétt til að telja út, er sniðugt að leggja svona stramma ofan á og sauma í gegnum hann. Stramminn er svo leystur upp í vatni eftir á. (Gætið þess að sauma út með útsaumsgarni sem lætur ekki lit).
