-
Afsláttur!
IN THE FRAME útsaumspúði
Púðinn er saumaður á ámálaðan stramma með ullargarni. Nál fylgir og leiðbeiningar um hvernig á að sauma perlu- eða körfusporið sem notað er (petit point á ensku). Hönnuður: Felicity Hall Stærð: 40 cm x 40 cm Þéttleiki: 55 spor / 10 cm. -
Getur gagnlegt prjónahjálpartæki líka verið skartgripur? Já, nýi hringurinn úr 925 sterling silfri frá addi, sem fæst í þremur stærðum, sameinar hönnun og garnleiðara í einni vöru. Hringinn er ekki aðeins hægt að nota við tvíbanda prjón, heldur er einnig frábær garnleiðari í einlitu prjóni. Hægt er að breyta spennu garnsins eftir hvernig það er þrætt. Skartgripur framleiddur í Altena, Þýskalandi. Auðvelt að aðlaga að stærð. Hönnun eftir Sylvie Rasch. Stærðir: S = ummál 52mm M = ummál 54mm L = ummál 56mm -
Þessi púði er hnýttur með sérstöku áhaldi sem lýkist heklunál með loki sem leggst yfir krókinn. Aðferðin heitir SMYRNA og er vel þekkt frá fyrri tíð en er núna að komin aftur. Innihald:- Grófur, ámálaður strammi
- Smyrnanál með skafti
- Garn sem er búið að klippa niður í hæfilega langar lengjur (70% akríl, 30% pólíester)
- Límaband til að setja á brúnir strammans
- Frágangsnál / þráður
- Bak úr 100% bómull með rennilás
-
Þessi púði er hnýttur með sérstöku áhaldi sem lýkist heklunál með loki sem leggst yfir krókinn. Aðferðin heitir SMYRNA og er vel þekkt frá fyrri tíð en er núna að komin aftur. Innihald:- Grófur, ámálaður strammi
- Smyrnanál með skafti
- Garn sem er búið að klippa niður í hæfilega langar lengjur (70% akríl, 30% pólíester)
- Límaband til að setja á brúnir strammans
- Frágangsnál / þráður
- Bak úr 100% bómull með rennilás
-
CLOVER Amour heklunálar eru einstaklega þægilegar í notkun. Krókurinn fremst er hannaður með það í huga að auðvelt sé að stinga í gegn og sækja nýja lykkju. Áferðin á málmhlutanum er hæfilega sleip þannig að lykkjurnar renna vel en haldast samt á sínum stað. Snilldarhönnun sem gerir heklið skemmtilegra og reynir minna á hendurnar. Handfang er úr mjúku efni sem er þægilegt viðkomu, rennur ekki og er hæfilega breitt og situr vel í hendi. Það er reynsla margra að Clover heklunálar reyni minna á hendurnar í hekli og þá verður auðveldara að hekla lengur áreynslulaust. Hvert númer af heklunál er í sérstökum lit. Í þessu setti eru 9 heklunálar í stærðum 2mm, 2,5mm, 3mm, 3,5mm, 4mm, 4,5mm, 5mm, 5,5mm og 6mm. Hægt er að kaupa stakar Amour heklunálar í stærðum 0,6mm til 15mm. -
Afsláttur!
Maker’s Midi Backpack er bakpoki sem er ekki of stór og ekki of lítill. Fullkominn fyrir þau sem stunda hvers kyns handíðir og eru á ferðinni, en líka fyrir hin því þetta er fyrst og fremst góður og vandaður bakpoki. Axlarólarnar eru nógu breiðar til að dreifa þyngdinni í bakpokanum jafnt. Hann getur staðið óstuddur þökk sé fimm málmtöppum sem veita stuðning en koma líka í veg fyrir að botninn óhreinkist. Handföngin efst á töskunni eru þægileg þegar axlarólarnar eru ekki í notkun. Margir góðir vasar til að hafa skipulag á öllu sem er meðferðis. Góð taska fyrir hversdagslífið. Hönnuð fyrir skapandi einstaklinga á ferðinni. Framleiðandinn hefur sjálfbærni að leiðarljósi við framleiðslu þessarar tösku. Hver taska er handunnin og tímalaus hönnun. Stærð: Lengd 35,5 cm x breidd 10 cm x hæð 32,3 cm. -
Verkefnataska
Cleo Midi frá Muud er þægileg taska með axlaról. Taskan er hönnuð og framleidd úr gæðaleðri, notendavæn, með nægt rými fyrir verk í vinnslu, garn og áhöld, án þess að vera fyrirferðarmikil. Ferningslaga taskan opnast vel og liggur flöt á borði eins og kassi. Þá er góð yfirsýn yfir allt innihaldið og hægt að hafa röð og reglu á öllu. Taskan er frábær fyrir prjónara en nýtist einnig sem hefðbundin taska. Hægt er að stilla lengd axlarólarinnar, en það er líka gott minna handfang til að halda á henni. Innan í töskunni eru tvö stór hólf og vasi með rennilás. Upplýsingar Gæðaleður sem endist aldur og ævi Ferhyrnd í laginu Lokast á ská með rennilás Tvö stór hólf Vasi með rennilás Handfang að ofan Stillanleg axlaról sem hægt er að taka af Fleiri axlarólar frá Muud passa á töskuna Fóðrið er úr polydrill með sléttri áferð sem er auðvelt að halda hreinu Stærðir Hæð: 13 cm Lengd: 23 cm Breidd: 11 cm Þyngd: 311 g Litur: Viskí brún -
Verkefnataska
Cleo Midi frá Muud er þægileg taska með axlaról. Taskan er hönnuð og framleidd úr gæðaleðri, notendavæn, með nægt rými fyrir verk í vinnslu, garn og áhöld, án þess að vera fyrirferðarmikil. Ferningslaga taskan opnast vel og liggur flöt á borði eins og kassi. Þá er góð yfirsýn yfir allt innihaldið og hægt að hafa röð og reglu á öllu. Taskan er frábær fyrir prjónara en nýtist einnig sem hefðbundin taska. Hægt er að stilla lengd axlarólarinnar, en það er líka gott minna handfang til að halda á henni. Innan í töskunni eru tvö stór hólf og vasi með rennilás. Upplýsingar Gæðaleður sem endist aldur og ævi Ferhyrnd í laginu Lokast á ská með rennilás Tvö stór hólf Vasi með rennilás Handfang að ofan Stillanleg axlaról sem hægt er að taka af Fleiri axlarólar frá Muud passa á töskuna Fóðrið er úr polydrill með sléttri áferð sem er auðvelt að halda hreinu Stærðir Hæð: 13 cm Lengd: 23 cm Breidd: 11 cm Þyngd: 311 g Litur: Rauðbrún -
- Níu pör af prjónaoddum.
- Stærðir: 3 mm, 3,5 mm, 4 mm, 4,5 mm, 5 mm, 5,5 mm, 6 mm, 7 mm & 8 mm
- Fjórar svartar nælonhúðaðar stálsnúrur með 360° snúningslið við samskeyti prjóns og snúru
- Snúrurnar mynda tvo 40 cm og tvo 50 cm hringprjóna
- Fylgihlutir: 8 tappar til að setja á snúrurnar, 4 pinnar til að herða og losa prjónoddana, eitt sett af snúrutengi
- Veskið er klætt með vínrauðu/bleiku taui
-
Handunnin garn- eða hnotuvinda úr tré sem getur undið allt að 450 g af garni í fínbands (4ply/fingering) grófleika. Garnvindan er alveg hljóðlaus og hún er hönnuð þannig að snertifletir eru fáir og því er gengur vindingin ljúft og snuðrulaust fyrir sig. Gúmmítappar eru á botninum svo vindan renni ekki til eða rispi borð. Borðfesting fylgir. Fyrirhafnarminna að vinda garn í hnotu í þessari vindu því hver hringur sem snúið er eins og þrír á minni garnvindum. Hægt að kaupa auka gúmmíreim ef á þarf að halda. -
Afsláttur!
Þetta er rúmgóð hliðartaska með góðu handfangi. Vandlega handunnin taska þar sem hugað er að öllum smáatriðum. Nútímaleg og hefðbundin í senn, taska sem hefur mikið notagildi og fer aldrei úr tísku! Hugsuð fyrir prjónaverkefnið eða hvað sem er. Góð handtaska fyrir hversdagslífið. Hönnuð fyrir skapandi einstaklinga á ferðinni. Framleiðandinn hefur sjálfbærni að leiðarljósi við framleiðslu þessarar tösku. Hver taska er handunnin og tímalaus hönnun. -
Maker's Mesh Tote handavinnutaska Stór taska með gegnsæju efni á hliðum. Sniðugt þegar að maður vill sjá hvað er í töskunni utan frá. Töskunni fylgir axlaról sem er nógu löng til að hafa á ská yfir öxlina ef vill. Í töskunni rúmast 10 eða fleiri garnhespur eða meðalstórt eða stórt verkefni. Hverri tösku fylgja skæri með slíðri í stíl og budda sem er lokað með smellum fyrir smáhlutina. Fæst í nokkrum litum. Stærð 38 cm (lengd) x 25 cm (hæð) x 15 cm (dýpt)
