-
Höfundur: Anna Pantelous Útgefandi: David & Charles Mjúkspjalda | 128 bls. Tungumál: Enska Þyngd: 550g Bókin fer yfir prjóntækni og mynstur, allt frá uppfiti, sléttu og brugnum lykkjum yfir í myndprjón og flóknari aðferðir. Hugmyndin með bókinni er að gera litla prufuferninga með hverri aðferð og sauma þá svo saman í lokin í eitt stórt teppi. -
25 cm lengdareining = 675 kr. Metraverð 2.700 kr. Innihald: 100% bómull Þræðir per cm: 4,0 Hver lengdareining er 25 cm x 60 cm (breidd efnisins). Hægt er að velja eina eða fleiri lengdareiningar og við afgreiðum efnið í einum bút. 1 eining = 25 cm, 2 einingar = 50 cm, 3 einingar = 75 cm, 4 einingar = 100 cm. Athugið að það getur verið erfitt að sýna hárétta liti á tölvuskjá eða símaskjá. -
Jafnþráða jafi fyrir útsaum, ólitaður. Þessi jafi hentar fyrir úttalin spor eins og t.d. krosssaum. Innihald: 100% hör/lín Þræðir per cm: 8 Hver lengdareining er 25 cm x 140 cm (breidd efnisins). Hægt er að velja eina eða fleiri lengdareiningar og við afgreiðum efnið í einum bút. 1 eining = 25 cm, 2 einingar = 50 cm, 3 einingar = 75 cm, 4 einingar = 100 cm. 25 cm lengdareining = 2.375 kr. Metraverð 9.500 kr. Athugið að það getur verið erfitt að sýna hárétta liti á tölvuskjá eða símaskjá. -
SASHIKO nálar - langar Nálar sem eru hentugar í sashiko útsaum þar sem mynstrum eru línulaga. Nálin rennur vel í gegnum efni, en það getur verið þægilegt að ýta á eftir nálinni með fingurbjörg, sérstaklega ef saumað er í gengum mörg lög af efni í sömu aðgerð. Efni: Stál Magn: 3 nálar í pk Framleiðsluland:Japan Stærðir: 1 nál 0,97 x 66,7 mm, 1 nál 0,97 x 60 mm, 1 nál 0,97 x 54 mm. 1 stk. þræðari fylgir með. Mælt er með sashiko útsaumsgarni í grófleika #20 eða #30. -
Höfundur: Sarah-Jayne Fragola Útgefandi: Search Press (2024)Harðspjalda | 52 spjöld Tungumál: Enska Þyngd: 290 g | Mál: 85 x 140 mm SPJÖLD MEÐ HEKLTÆKNI MYNDBAND þar sem flett er í gegnumspjöldin This gorgeous card deck is the perfect on-the-go tool for every crochet enthusiast: a deck of 50 different stitches in an elegant card format, designed to accompany you on all your crochet adventures. Wherever you crochet, you’ll have Bella Coco’s friendly and informative guidance in the palm of your hands. The cards use US crochet terms, with a UK conversion chart given. They are organized into two different categories ‘simple stitch combos’ and ‘textured stitches’. -
Málband með mjúkri skel. Þau eru þægileg í notkun; málbandið er dregið út og er með stoppara. Dregið aftur inn með því að ýta á miðjuna. Málbandið sjálft er úr endingargóðu efni sem teygist ekki. Merkingin er svört á ljósum grunni. Skelin er 5 cm í þvermál og málbandið mælir bæði í cm og tommum. Lengd 200 cm. -
SIX HEARTS MINI smápúði eða nálapúði
Púðinn er saumaður á ámálaðan stramma með ullargarni. Nál fylgir og leiðbeiningar um hvernig á að sauma perlu- eða körfusporið sem notað er (petit point á ensku). Hönnuður: Janet Heigh Stærð: 13 cm x 13 cm Þéttleiki: 35 spor / 10 cm ATH. Það eru sex hjörtu á strammanum / mynsturteikningunni. Þið getið valið hvort þið gerið sex hjörtu eða fjögur. -
Útsaumsnálar með oddi. 25 stk í pakka. Stærð 22. Fróðleikur um nálastærðir HÉR. -
LAINE TUTTUGU OG ÁTTA Finnskt tímarit (á ensku) með prjónhönnun á heimsmælikvarða. Margir hönnuðir leggja hönd á plóg og tryggja úrval að áhugaverðum peysum og fylgihlutum. Mikil áhersla er lögð á greinagóðar uppskriftir. Stílhreint tímarit á ensku með fallegri myndatöku. Athugið að það er hægt að vera áskrifandi að LAINE tímaritunum hjá okkur. Sendu okkur skilaboð til að skrá þig. Við látum vita þegar að LAINE kemur í sölu og tökum frá eintak fyrir þig og þú sækir eða við sendum. 10% afsláttur fyrir áskrifendur. -
Peysurnar og flíkurnar sem má finna í ROWAN #79
Höfundur: ROWAN Útgefandi: Rowan (2026)Mjúkspjalda | 146 bls. Tungumál: Enska (dönsk þýðing fáanleg) Þyngd: 850 g | Mál: 240 x 310 mm ROWAN tímaritin koma út tvisvar á ári, vor- og sumarblað og haust- og vetrarblað. Hver tímarit er fullt af uppskriftum fyrir dömur og herra, peysur og fylgihlutir eftir helstu hönnuði Rowan hvers tíma. Flestar uppskriftirnar eru fyrir prjón en það eru einnig hekluppskriftir inn á milli. Í nýjustu blöðunum hefur peysum sem eru prjónaðar í hring og jafnvel ofan frá fjölgað. Storkurinn er ein af fáum garnbúðum sem hafa selt Rowan garn og tímarit frá upphafi Rowan. Við eigum því sýnishorn af öllum útgefnum blöðum og mörg þeirra eru enn í sölu.