Fullkomin gjöf fyrir þau sem prjóna og kunna að meta fallega fylgihluti!
-
Sérhönnuð prjónamerki af FIREFLY fyrir fagurkera. Frábært til að setja inn í stærri öskjuna. Passar í allar stærri öskjurnar og inniheldur 20 x 10 mm nælonhúðaða merkihringi, frágangsnál og segulplötu til að halda öllu á sínum stað. Merkihringirnir eru festast við segulinn og eru með rennislétt yfirborð! Flettið pappírnum af og límið við botninn á öskjunni ykkar. Í pakkningunni eru: 1 x myndskreytt segulplata 7,5 x 5 cm 10 x hvítir merkihringir 10 x svartir merkihringir 1 frágangsnál Askjan er seld sér FIREFLY er kanadískt vörumerki.
-
Dásamlega fallegar öskjur undir smáhluti, t.d. prjónamerki, lítil skæri, nálar o.fl. Myndin á lokinu er sett á öskjuna á handverksstæði FIREFLY. Gljáandi yfirborðið er úr resín sem endist lengi. FIREFLY vörurnar eru handunnar í Kanada.
Tvær stærðir í boði:
🐰 Lítil: Lengd 6 cm x breidd 3,4 cm x dýpt 1,2 cm
🐰 Stór: Lengd 9,5 cm x breidd 6,2 cm x dýpt 2 cmFullkomin gjöf fyrir þau sem prjóna, hekla, sauma og aðra sem kunna að meta fallega fylgihluti!
Athugið að öskjurnar eru eru tómar!
Hægt að kaupa segul í botninn á öskjunni hér: Firefly SEGULL
-
Sérhönnuð prjónamerki af FIREFLY fyrir fagurkera. Þessi merki eru fyrir prjónara sem elska garn! Pakkningin inniheldur 8 merki, 2 hvít, 2 bleik, 2 græn og 2 svört. Búin til úr málmi með emelaraðri skreytingu með 10mm messinghringjum. FIREFLY er kanadískt vörumerki.
Fullkomin gjöf fyrir þau sem prjóna og kunna að meta fallega fylgihluti!
-
Alhliða skæri frá FISKARS úr ReNew línunni. Vönduð skæri unnin úr endurunnu og endurnýtanlegu hráefni. Handfangið er einstaklega þægilegt og skæri klippa vel og bitið helst lengi. Hönnuð fyrir rétthenta. Fyrir ykkur sem viljið eiga góð efnisskæri og gætið þess að klippa eingöngu textíl með þeim, þá endist bitið mun lengur. Stærð 21 cm. Functional Form ReNew skærin eru framleidd í Finnlandi.
-
Þriggja hluta sett frá FISKARS fyrir þau sem sauma bútasaum eða annað þar sem þarf að skera efni með nákvæmni. Settið er bæði fyrir byrjendur jafnt sem reynslubolta í saumaskap. Þetta sett er líka sniðugt fyrir þau sem eru að vinna með þæfingu/flóka. Skurðhnífurinn (45 cm) er notaður til að skera efni. Hnífurinn er mjög beittur og þegar hann er ekki í notkun er honum lokað til að hlífa skurðblaðinu. Skurðarblaðið er í staðlaðri stærð sem hægt að skipta um eftir þörfum. Mottan eru nauðsynlegt undirlag þegar hnífurinn er notaður (A2, 45 x 60 cm). Stikan er einnig nauðsynleg til að skera beinar línur (15 x 60 cm) – t.d. ferninga, þríhyrningar eða jafnvel stjörnur. Mottan og stikan er með mælieiningum í metrakerfinu (cm). Þetta þriggja hluta sett er einnig frábær gjöf fyrir saumafólk.
-
Útsaumsnámskeið með Adriana Torres (Miga de Pan).
Adriana kemur til okkar alla leið frá Argentínu og heldur námskeið fyrir áhugafólk um útsaum. Fimm klst. tveggja morgna helgarnámskeið þar sem Adriana kennir útsaum á verkinu FOREST ALPHABET. Tími: Laugardagur 23. ágúst kl. 9:30 - 12:15 (með 15 mín kaffihléi). Sunnudagur 24. ágúst kl. 9:30 - 12:15 (með 15 mín kaffihléi). Staður: Storkurinn, Síðumúla 20, 108 Reykjavík Greiða þarf fyrir námskeiðið um leið og skráning fer fram, sjá hnapp neðar á síðunni til að setja vöru í körfu. Námskeiðslýsing: THE FOREST ALPHABET Kynning á þremur nýjum argentínskum útsaumssporum. Ekki missa af þessu einstaka tækitæki til að sökkva þér í útsaumsheiminn hennar Adriönu Torres, listakonu og leturhönnuð. Adriana hefur ferðast út um allan heim og kennt listina að sauma út. Til að taka þátt í þessu námskeiði þarf ekki að hafa reynslu í útsaumi. Þátttakendur munu sauma út nýtt stafróf sem hefur fengið innblástur frá jurtaríki skógarins. Í þessu 5 klst. námskeiði munið þið læra mörg ný útsaumsspor, eins og Colcha sporið, Towel sporið, Quaker sporið, argentínskan hnút, argentínskan ferhyrndan hnút og argentínsk takkaspor o.fl. Þetta eru ný spor sem Adriana kynnir í fyrsta skipti á ferðalagi hennar um Evrópu, Ameríku og Asíu. Innifalið: Útsaumsefni með áprentuðu mynstri með stafrófinu, útsaumsgarn og bæklingur með sporgerðum, kaffi/te og hressing í hléi. Ykkur er velkomið að taka með ykkar eigið útsaumsgarn og nálar. Hafa meðferðis: Takið með ykkur beitt útsaumsskæri og lítinn (10-12 cm) útsaumshring (hvoru tveggja verður hægt að kaupa í Storkinum). Erfiðleikastig: Adriana gerir ekki kröfu um reynslu í útsaumi, það er auðvitað gott að hafa saumað eitthvað aðeins út áður til að fá sem mest út úr námskeiðinu. Þetta námskeið er fyrir ykkur sem viljið taka þátt í skapandi vinnustofu og læra nýjar útsaumsaðfeðir. Á báðum námskeiðunum The Forest Alphabet og Play & verða tekin fyrir samskonar spor eins og Colcha sprorið, Towel sporið, Quaker sporið, argentínska hnúta og ferhyrnda hnúta og argentínsk takkaspor, auk annarra spora. Þótt grunnurinn sé sá sami þá eru námskeiðin ólík, bæði þemað og nálgunin. -
REINDEER JACKET eða HREINDÝRA JAKKI er uppskrift frá Rowan úr Felted Tweed garninu þeirra sem er mjög létt og hentar í tvíbandaprjón. Fæst í yfir 50 litum.
Peysan er prjónuð í stykkjum með tvíbandaprjóni í tveimur litum og er með sjalkraga. Litirnir og mynstrið gera hana vetrarlega og jafnvel jólalega.
Þessa uppskrift er hægt að sækja FRÍTT sem pdf skjal og hún er á ensku. -
Afsláttur!
- Grófleiki: Fisband / lace
- Innihald: 100% íslensk ull
- Lengd/þyngd: 225m/25g
- Prjónar: 2 – 2,5 mm
- Prjónfesta: 38 L á prjóna 2 mm = 10 cm
- Þvottur: Handþvottur í ylvolgu eða köldu vatni
-
Ullarskafa til að hreinsa ló af ullarflíkum sem hnökra. Stundum hnökra peysur, sérstaklega ef þær eru prjónaðar úr mjúkri, snúðlinri ull. Oft eru þetta laus hár að ganga úr bandinu og peysan þannig að hreinsa sig. En stundum hnökra flíkur á álagssvæðum. Hver sem ástæðan er er gott að eiga áhald til að ná lónni af án þess að skemma peysuna eða þynna hana. Gleener er búið að margsanna notagildi sitt. Það fylgja þrír kambar með sem auðvelt er að skipta um, auk fatabursta. Fínn kambur fyrir fíngerðustu peysurnar, jafnvel úr silki eða silkiblöndu, miðlungs grófleiki sem hentar á flestar peysur og grófasti sem væri góður kambur fyrir lopapeysur eða sambærilegt garn. Gleener fæst til heimilisnota með góðu handfangi, en einnig í smærri útgáfu fyrir ferðalög. Þá er kamburinn jafnbreiður en án handfangs. Gleener er ekki bara fyrir peysur heldur einnig húsgögn, teppi og aðrar flíkur. Fataburstinn sem fylgir er upplagður til að ná dýrahárum og öðru lausu af. Engar rafhlöður. Gott fyrir umhverfið og hjálpar þér að láta flíkur og annan textíl endast lengur.
-
Ullarskafa til að hreinsa ló af ullarflíkum sem hnökra. Stundum hnökra peysur, sérstaklega ef þær eru prjónaðar úr mjúkri, snúðlinri ull. Oft eru þetta laus hár að ganga úr bandinu og peysan þannig að hreinsa sig. En stundum hnökra flíkur á álagssvæðum. Hver sem ástæðan er er gott að eiga áhald til að ná lónni af án þess að skemma peysuna eða þynna hana. Gleener er búið að margsanna notagildi sitt. Það fylgja þrír kambar með sem auðvelt er að skipta um, auk fatabursta. Fínn kambur fyrir fíngerðustu peysurnar, jafnvel úr silki eða silkiblöndu, miðlungs grófleiki sem hentar á flestar peysur og grófasti sem væri góður kambur fyrir lopapeysur eða sambærilegt garn. Þetta er smærri útgáfan af Gleener, en það fæst einnig Gleener til heimilisnota með stærra handfangi. Kambarnir eru jafnbreiðir, en ferðaútgáfan er minni um sig, án handfangs. Það er geymsluhólf fyrir kambana inni í kambinum. Poki fylgir til að geyma allt saman. Gleener er ekki bara fyrir peysur heldur einnig húsgögn, teppi og aðrar flíkur. Fataburstinn sem fylgir er upplagður til að ná dýrahárum og öðru kuski af. Engar rafhlöður. Gott fyrir umhverfið og hjálpar þér að láta flíkur og annan textíl endast lengur.
-
Mýkir
Þurrkaraboltar eru bráðnauðsynlegir til að þurrka yfirhafnir með fyllingu úr dúni. Þeir veltast um í þurrkaranum og berja lofti í flíkina. En þurrkaraboltarnir (Dryer Dots) hafa annan og meiri tilgang. Þeir mýkja efni á náttúrulegan hátt, með varkárri og hávaðalausri veltandi hreyfingu.Spara tíma, peninga og orku
Dryer Dots boltarnir eru úr 100% umhverfisvænni ull sem drekkur í sig raka sem styttir þurrkunartímann. Boltarnir koma loftinu á meiri hreyfingu í þurrkaranum sem spara þess vegna orku.Lyktarlausir og án ofnæmisvaldandi efna
Boltarnir eru án mýkingarefna og ilmefnalausir, öruggir í notkun fyrir þau sem eru með viðkvæma húð, asma og ofnæmi. Það er einnig hægt að nota boltana til að mýkja ungbarnafatnað og taubleyjur. Þeir fara vel með efni.Endist í yfir 3.000 þurrkarafylli!