-
ADDI Click Lace Short hringprjónasett inniheldur 8 pör af prjónaoddum úr málmi í stærðum 3,5mm til 8mm. Hvert prjónaoddapar er með löngum og góðum oddum (lace), en prjónarnir sjálfir eru styttri svo hægt sé að nota til að mynda 40cm eða lengri hringprjóna. Það fylgja með 5 addi snúrur, liprar eins og ADDI prjónasnúrurnar eru; 40cm, 50cm, 60cm, 80cm og 100cm. Einnig fylgir með tengi til að tengja saman snúrur, gripbleðill til að auðvelda tengingu á oddi og snúru og gyllt næla til skrauts. ADDI Click prjónunum er smellt við snúrurnar (enginn skrúfgangur) og losna því ekki á meðan prjónað er. Hægt er að bæta við settið með því að kaupa fleiri stærðir af prjónaoddum, bæði styttri og allt uppí 12mm í löngum oddum. Einnig er hægt að kaupa viðbótar snúrur stakar. Prjónasettið kemur í þægilegri tösku þar sem er rennt hólf fyrir alla smáhlutina og hver prjónn á sinn stað. -
Verkefnataska
Cleo XL frá Muud er þægileg rúmgóð verkefnataska með axlaról. Taskan er hönnuð og framleidd úr gæðaleðri, notendavæn, með nægt rými fyrir verk í vinnslu, garn og áhöld. Ferningslaga taskan opnast vel og liggur flöt á borði eins og kassi. Þá er góð yfirsýn yfir allt innihaldið og hægt að hafa röð og reglu á öllu. Taskan er frábær fyrir prjónara en nýtist einnig sem hefðbundin taska. Hægt er að stilla lengd axlarólarinnar, en það er líka gott minna handfang til að halda á henni. Innan í töskunni eru tvö stór hólf og vasi með rennilás. Upplýsingar Gæðaleður sem endist aldur og ævi Ferhyrnd í laginu Lokast á ská með rennilás Tvö stór hólf Vasi með rennilás Handfang að ofan Stillanleg axlaról sem hægt er að taka af Fleiri axlarólar frá Muud passa á töskuna Fóðrið er úr polydrill með sléttri áferð sem er auðvelt að halda hreinu Stærðir Hæð: 24 cm Lengd: 36 cm Breidd: 23 cm Þyngd: g Litur: Viskí brún -
Má kynna þig fyrir Della Q Hook & Needle Notebook eða áhaldamöppunni, sem er hönnuð til að einfalda líf þeirra sem prjóna og hekla. Þetta er skipulagsmappa með síðum/spjöldum sem hefur hver með sinn tilgang og geymir á vísum stað heklunálar, prjóna, smáhluti, uppskriftir/mynstur o.fl. Hver mappa inniheldur fjórar síður og bráðlega verður einnig hægt að fá stakar viðbótarsíður. Á innanverðri kápunni eru tvær frágangsnálar, málband, skæri og þægilegur renndur vasi fyrir alls konar smádót. Flettið í gegnum allar myndirnar til að skoða innihald möppunnar. Þessi mappa er vönduð og gerð til að endast. Síður sem fylgja með Hook & Needle Notebook eru:- fyrir sokkaprjóna eða heklunálar
- fyrir heklunálar eða prjónaodda
- fyrir hringprjóna eða fylgihluti
- innbyggður gegnsær renndur poki
-
Hirsla fyrir útsauminn - garnið og öll áhöldin
FLORA taskan er bæði falleg og nytsamleg. Taskan er hönnuð fyrir allt útsaumsdótið, svo allt geti verið á einum stað í röð og reglu. Axlaról fylgir sem hægt er að lengja/stytta. Efst er færanlegur bakki með hólfum fyrir smáhlutina. Unnið út gæðaleðri sem endist aldur og ævi. Upplýsingar Stillanleg axlaról Innréttuð með hólfum sem hægt er að taka úr töskunni Margskonar hólf fyrir gott skipulag Endingargott leður Stílhrein og klassísk hönnun Stærð Hæð: 24 cm Lengd: 30 cm Breidd: 14 cm -
Verkefnataska
BTURN frá Muud er þægileg verkefnataska með axlaról. Taskan er hönnuð og framleidd úr gæðaleðri, notendavæn, með nægt rými fyrir verk í vinnslu, garn og áhöld. Taskan er með þrjú rennd hólf sem opnast öll vel og gerir allt skipulag þægilegra. Neðsta hólfið er stærst og er með vösum meðfram hliðunum. Hin hólfin eru grynnri. Þá er góð yfirsýn yfir allt innihaldið og hægt að hafa röð og reglu á öllu. Taskan er frábær fyrir þau sem prjóna eða eru í öðrum hannyrðum. Það kæmist t.d. útsaumshringur sem er 21 cm í hólfin. Upplagt fyrir þrjú aðskilin verkefni, t.d. prjón, útsaum og hekl eða fyrir peysu neðst, ungbarnapeysu í miðhólfið og sokka eða vettlinga efst. Hægt er að stilla lengd axlarólarinnar, en það er líka gott minna handfang til að halda á henni. Í efsta hólfinu er vasi með rennilás á innanverðu lokinu. Upplýsingar Gæðaleður sem endist aldur og ævi Hrinlaga Lokast með þremur rennilásum Þrjú stór hólf Vasi með rennilás Handfang að ofan Stillanleg axlaról sem hægt er að taka af - 130 cm Fleiri axlarólar frá Muud passa á töskuna Fóðrið er úr polydrill með sléttri áferð sem er auðvelt að halda hreinu Stærðir Hæð: 27 cm Þvermál: 23 cm Þyngd: 880 g Litur: Viskí brúnt
