-
Afsláttur!
IN THE FRAME útsaumspúði
Púðinn er saumaður á ámálaðan stramma með ullargarni. Nál fylgir og leiðbeiningar um hvernig á að sauma perlu- eða körfusporið sem notað er (petit point á ensku). Hönnuður: Felicity Hall Stærð: 40 cm x 40 cm Þéttleiki: 55 spor / 10 cm. -
Getur gagnlegt prjónahjálpartæki líka verið skartgripur? Já, nýi hringurinn úr 925 sterling silfri frá addi, sem fæst í þremur stærðum, sameinar hönnun og garnleiðara í einni vöru. Hringinn er ekki aðeins hægt að nota við tvíbanda prjón, heldur er einnig frábær garnleiðari í einlitu prjóni. Hægt er að breyta spennu garnsins eftir hvernig það er þrætt. Skartgripur framleiddur í Altena, Þýskalandi. Auðvelt að aðlaga að stærð. Hönnun eftir Sylvie Rasch. Stærðir: S = ummál 52mm M = ummál 54mm L = ummál 56mm -
Þessi púði er hnýttur með sérstöku áhaldi sem lýkist heklunál með loki sem leggst yfir krókinn. Aðferðin heitir SMYRNA og er vel þekkt frá fyrri tíð en er núna að komin aftur. Innihald:- Grófur, ámálaður strammi
- Smyrnanál með skafti
- Garn sem er búið að klippa niður í hæfilega langar lengjur (70% akríl, 30% pólíester)
- Límaband til að setja á brúnir strammans
- Frágangsnál / þráður
- Bak úr 100% bómull með rennilás
-
Þessi púði er hnýttur með sérstöku áhaldi sem lýkist heklunál með loki sem leggst yfir krókinn. Aðferðin heitir SMYRNA og er vel þekkt frá fyrri tíð en er núna að komin aftur. Innihald:- Grófur, ámálaður strammi
- Smyrnanál með skafti
- Garn sem er búið að klippa niður í hæfilega langar lengjur (70% akríl, 30% pólíester)
- Límaband til að setja á brúnir strammans
- Frágangsnál / þráður
- Bak úr 100% bómull með rennilás
-
CLOVER Amour heklunálar eru einstaklega þægilegar í notkun. Krókurinn fremst er hannaður með það í huga að auðvelt sé að stinga í gegn og sækja nýja lykkju. Áferðin á málmhlutanum er hæfilega sleip þannig að lykkjurnar renna vel en haldast samt á sínum stað. Snilldarhönnun sem gerir heklið skemmtilegra og reynir minna á hendurnar. Handfang er úr mjúku efni sem er þægilegt viðkomu, rennur ekki og er hæfilega breitt og situr vel í hendi. Það er reynsla margra að Clover heklunálar reyni minna á hendurnar í hekli og þá verður auðveldara að hekla lengur áreynslulaust. Hvert númer af heklunál er í sérstökum lit. Í þessu setti eru 9 heklunálar í stærðum 2mm, 2,5mm, 3mm, 3,5mm, 4mm, 4,5mm, 5mm, 5,5mm og 6mm. Hægt er að kaupa stakar Amour heklunálar í stærðum 0,6mm til 15mm. -
Afsláttur!
Maker’s Midi Backpack er bakpoki sem er ekki of stór og ekki of lítill. Fullkominn fyrir þau sem stunda hvers kyns handíðir og eru á ferðinni, en líka fyrir hin því þetta er fyrst og fremst góður og vandaður bakpoki. Axlarólarnar eru nógu breiðar til að dreifa þyngdinni í bakpokanum jafnt. Hann getur staðið óstuddur þökk sé fimm málmtöppum sem veita stuðning en koma líka í veg fyrir að botninn óhreinkist. Handföngin efst á töskunni eru þægileg þegar axlarólarnar eru ekki í notkun. Margir góðir vasar til að hafa skipulag á öllu sem er meðferðis. Góð taska fyrir hversdagslífið. Hönnuð fyrir skapandi einstaklinga á ferðinni. Framleiðandinn hefur sjálfbærni að leiðarljósi við framleiðslu þessarar tösku. Hver taska er handunnin og tímalaus hönnun. Stærð: Lengd 35,5 cm x breidd 10 cm x hæð 32,3 cm. -
Verkefnataska
Cleo Midi frá Muud er þægileg taska með axlaról. Taskan er hönnuð og framleidd úr gæðaleðri, notendavæn, með nægt rými fyrir verk í vinnslu, garn og áhöld, án þess að vera fyrirferðarmikil. Ferningslaga taskan opnast vel og liggur flöt á borði eins og kassi. Þá er góð yfirsýn yfir allt innihaldið og hægt að hafa röð og reglu á öllu. Taskan er frábær fyrir prjónara en nýtist einnig sem hefðbundin taska. Hægt er að stilla lengd axlarólarinnar, en það er líka gott minna handfang til að halda á henni. Innan í töskunni eru tvö stór hólf og vasi með rennilás. Upplýsingar Gæðaleður sem endist aldur og ævi Ferhyrnd í laginu Lokast á ská með rennilás Tvö stór hólf Vasi með rennilás Handfang að ofan Stillanleg axlaról sem hægt er að taka af Fleiri axlarólar frá Muud passa á töskuna Fóðrið er úr polydrill með sléttri áferð sem er auðvelt að halda hreinu Stærðir Hæð: 13 cm Lengd: 23 cm Breidd: 11 cm Þyngd: 311 g Litur: Viskí brún -
Verkefnataska
Cleo Midi frá Muud er þægileg taska með axlaról. Taskan er hönnuð og framleidd úr gæðaleðri, notendavæn, með nægt rými fyrir verk í vinnslu, garn og áhöld, án þess að vera fyrirferðarmikil. Ferningslaga taskan opnast vel og liggur flöt á borði eins og kassi. Þá er góð yfirsýn yfir allt innihaldið og hægt að hafa röð og reglu á öllu. Taskan er frábær fyrir prjónara en nýtist einnig sem hefðbundin taska. Hægt er að stilla lengd axlarólarinnar, en það er líka gott minna handfang til að halda á henni. Innan í töskunni eru tvö stór hólf og vasi með rennilás. Upplýsingar Gæðaleður sem endist aldur og ævi Ferhyrnd í laginu Lokast á ská með rennilás Tvö stór hólf Vasi með rennilás Handfang að ofan Stillanleg axlaról sem hægt er að taka af Fleiri axlarólar frá Muud passa á töskuna Fóðrið er úr polydrill með sléttri áferð sem er auðvelt að halda hreinu Stærðir Hæð: 13 cm Lengd: 23 cm Breidd: 11 cm Þyngd: 311 g Litur: Rauðbrún -
- Níu pör af prjónaoddum.
- Stærðir: 3 mm, 3,5 mm, 4 mm, 4,5 mm, 5 mm, 5,5 mm, 6 mm, 7 mm & 8 mm
- Fjórar svartar nælonhúðaðar stálsnúrur með 360° snúningslið við samskeyti prjóns og snúru
- Snúrurnar mynda tvo 40 cm og tvo 50 cm hringprjóna
- Fylgihlutir: 8 tappar til að setja á snúrurnar, 4 pinnar til að herða og losa prjónoddana, eitt sett af snúrutengi
- Veskið er klætt með vínrauðu/bleiku taui
-
Handunnin garn- eða hnotuvinda úr tré sem getur undið allt að 450 g af garni í fínbands (4ply/fingering) grófleika. Garnvindan er alveg hljóðlaus og hún er hönnuð þannig að snertifletir eru fáir og því er gengur vindingin ljúft og snuðrulaust fyrir sig. Gúmmítappar eru á botninum svo vindan renni ekki til eða rispi borð. Borðfesting fylgir. Fyrirhafnarminna að vinda garn í hnotu í þessari vindu því hver hringur sem snúið er eins og þrír á minni garnvindum. Hægt að kaupa auka gúmmíreim ef á þarf að halda. -
Afsláttur!
Þetta er rúmgóð hliðartaska með góðu handfangi. Vandlega handunnin taska þar sem hugað er að öllum smáatriðum. Nútímaleg og hefðbundin í senn, taska sem hefur mikið notagildi og fer aldrei úr tísku! Hugsuð fyrir prjónaverkefnið eða hvað sem er. Góð handtaska fyrir hversdagslífið. Hönnuð fyrir skapandi einstaklinga á ferðinni. Framleiðandinn hefur sjálfbærni að leiðarljósi við framleiðslu þessarar tösku. Hver taska er handunnin og tímalaus hönnun. -
Maker's Mesh Tote handavinnutaska Stór taska með gegnsæju efni á hliðum. Sniðugt þegar að maður vill sjá hvað er í töskunni utan frá. Töskunni fylgir axlaról sem er nógu löng til að hafa á ská yfir öxlina ef vill. Í töskunni rúmast 10 eða fleiri garnhespur eða meðalstórt eða stórt verkefni. Hverri tösku fylgja skæri með slíðri í stíl og budda sem er lokað með smellum fyrir smáhlutina. Fæst í nokkrum litum. Stærð 38 cm (lengd) x 25 cm (hæð) x 15 cm (dýpt) -
Afsláttur!
Maker's Canvas Satchel taskan er fyrir þá sem vilja það besta. Hún er hönnuð í anda gömlu læknataskanna. Hún opnast vel og helst opin þannig að auðvelt er að hafa yfirlit yfir allt innihaldið. Botninn er flatur og því stendur taskan vel og getur virkað sem karfa á meðan prjónað er. Tvær krækjur loka töskunni, það er fullt af vösum og stöðum til að geyma allt smádótið og verkefnin. Bryddingar, höldur o.fl. eru úr leðri með festingum úr antík bronsi. Hugað er að öllum smáatriðum. Taskan er nútímaleg og hefðbundin í senn, hefur mikið notagildi og fer aldrei úr tísku! Góð handtaska fyrir prjónalífið og hversdagslífið. Hönnuð fyrir skapandi einstaklinga á ferðinni. Framleiðandinn hefur sjálfbærni að leiðarljósi við framleiðslu þessarar tösku. Hver taska er handunnin og tímalaus hönnun. -
Prjónaveski
Betina XL frá Muud er endingargóð prjónahirsla. Frábært prjónaveski til að hafa skipulag á öllum hringprjónunum. Hólfin eru misstór svo hægt sé að koma fyrir fínni og grófari prjónum. Betina XL er bæði hugsuð til að hafa allt í röð og reglu heima, en hentar líka til að hafa meðferðis á ferðalögum. Veskið er framleitt úr hágæða, mjúku leðri sem eldist vel. Veskinu er lokað með smellu. Það er val um tvær smellur eftir því hve mikið er í veskinu hverju sinni.Upplýsingar Gæðaleður sem endist aldur og æviStærð Hæð: 18 cm Breidd: 15 cm Hæð á vösum: 15 cm Þyngd: 775 gLitur: Viskí brúnt -
Verkefnataska
Dzana taskan frá Muud, er nytsamlegur fylgihlutur. Leðrið er sterkt, mjúkt og endist vel. Verkefnataskan hefur auðvitaðnotagildi en er um leið flott taska sem passar við flest. Það er hægt að víxla höldunum og þannig hvílir taskan vel á handleggnum og auðvelt að hafa hana meðferðis. Japanska hnútataskan var höfð sem fyrirmynd að þessari hönnun. Stærð Hæð: 41 cm Lengd: 25 cm Breidd: 1 cm Efni: Leður Litur: Viskí brúnt -
ADDI Click Lace Short hringprjónasett inniheldur 8 pör af prjónaoddum úr málmi í stærðum 3,5mm til 8mm. Hvert prjónaoddapar er með löngum og góðum oddum (lace), en prjónarnir sjálfir eru styttri svo hægt sé að nota til að mynda 40cm eða lengri hringprjóna. Það fylgja með 5 addi snúrur, liprar eins og ADDI prjónasnúrurnar eru; 40cm, 50cm, 60cm, 80cm og 100cm. Einnig fylgir með tengi til að tengja saman snúrur, gripbleðill til að auðvelda tengingu á oddi og snúru og gyllt næla til skrauts. ADDI Click prjónunum er smellt við snúrurnar (enginn skrúfgangur) og losna því ekki á meðan prjónað er. Hægt er að bæta við settið með því að kaupa fleiri stærðir af prjónaoddum, bæði styttri og allt uppí 12mm í löngum oddum. Einnig er hægt að kaupa viðbótar snúrur stakar. Prjónasettið kemur í þægilegri tösku þar sem er rennt hólf fyrir alla smáhlutina og hver prjónn á sinn stað. -
Verkefnataska
Cleo XL frá Muud er þægileg rúmgóð verkefnataska með axlaról. Taskan er hönnuð og framleidd úr gæðaleðri, notendavæn, með nægt rými fyrir verk í vinnslu, garn og áhöld. Ferningslaga taskan opnast vel og liggur flöt á borði eins og kassi. Þá er góð yfirsýn yfir allt innihaldið og hægt að hafa röð og reglu á öllu. Taskan er frábær fyrir prjónara en nýtist einnig sem hefðbundin taska. Hægt er að stilla lengd axlarólarinnar, en það er líka gott minna handfang til að halda á henni. Innan í töskunni eru tvö stór hólf og vasi með rennilás. Upplýsingar Gæðaleður sem endist aldur og ævi Ferhyrnd í laginu Lokast á ská með rennilás Tvö stór hólf Vasi með rennilás Handfang að ofan Stillanleg axlaról sem hægt er að taka af Fleiri axlarólar frá Muud passa á töskuna Fóðrið er úr polydrill með sléttri áferð sem er auðvelt að halda hreinu Stærðir Hæð: 24 cm Lengd: 36 cm Breidd: 23 cm Þyngd: 550 g Litur: Viskí brún -
Má kynna þig fyrir Della Q Hook & Needle Notebook eða áhaldamöppunni, sem er hönnuð til að einfalda líf þeirra sem prjóna og hekla. Þetta er skipulagsmappa með síðum/spjöldum sem hefur hver með sinn tilgang og geymir á vísum stað heklunálar, prjóna, smáhluti, uppskriftir/mynstur o.fl. Hver mappa inniheldur fjórar síður og bráðlega verður einnig hægt að fá stakar viðbótarsíður. Á innanverðri kápunni eru tvær frágangsnálar, málband, skæri og þægilegur renndur vasi fyrir alls konar smádót. Flettið í gegnum allar myndirnar til að skoða innihald möppunnar. Þessi mappa er vönduð og gerð til að endast. Síður sem fylgja með Hook & Needle Notebook eru:- fyrir sokkaprjóna eða heklunálar
- fyrir heklunálar eða prjónaodda
- fyrir hringprjóna eða fylgihluti
- innbyggður gegnsær renndur poki
-
Hirsla fyrir útsauminn - garnið og öll áhöldin
FLORA taskan er bæði falleg og nytsamleg. Taskan er hönnuð fyrir allt útsaumsdótið, svo allt geti verið á einum stað í röð og reglu. Axlaról fylgir sem hægt er að lengja/stytta. Efst er færanlegur bakki með hólfum fyrir smáhlutina. Unnið út gæðaleðri sem endist aldur og ævi. Upplýsingar Stillanleg axlaról Innréttuð með hólfum sem hægt er að taka úr töskunni Margskonar hólf fyrir gott skipulag Endingargott leður Stílhrein og klassísk hönnun Stærð Hæð: 24 cm Lengd: 30 cm Breidd: 14 cm -
Verkefnataska
BTURN frá Muud er þægileg verkefnataska með axlaról. Taskan er hönnuð og framleidd úr gæðaleðri, notendavæn, með nægt rými fyrir verk í vinnslu, garn og áhöld. Taskan er með þrjú rennd hólf sem opnast öll vel og gerir allt skipulag þægilegra. Neðsta hólfið er stærst og er með vösum meðfram hliðunum. Hin hólfin eru grynnri. Þá er góð yfirsýn yfir allt innihaldið og hægt að hafa röð og reglu á öllu. Taskan er frábær fyrir þau sem prjóna eða eru í öðrum hannyrðum. Það kæmist t.d. útsaumshringur sem er 21 cm í hólfin. Upplagt fyrir þrjú aðskilin verkefni, t.d. prjón, útsaum og hekl eða fyrir peysu neðst, ungbarnapeysu í miðhólfið og sokka eða vettlinga efst. Hægt er að stilla lengd axlarólarinnar, en það er líka gott minna handfang til að halda á henni. Í efsta hólfinu er vasi með rennilás á innanverðu lokinu. Upplýsingar Gæðaleður sem endist aldur og ævi Hrinlaga Lokast með þremur rennilásum Þrjú stór hólf Vasi með rennilás Handfang að ofan Stillanleg axlaról sem hægt er að taka af - 130 cm Fleiri axlarólar frá Muud passa á töskuna Fóðrið er úr polydrill með sléttri áferð sem er auðvelt að halda hreinu Stærðir Hæð: 27 cm Þvermál: 23 cm Þyngd: 880 g Litur: Viskí brúnt
