-
Debbie Bliss er einn þekktasti prjónhönnuður Bretlands. Hér er uppskrift af fíngerðum toppi á dömur. Fjórar stærðir. Peysan er prjónuð í stykkjum, fram og til baka og saumuð saman. Þessi uppskrift er seld útprentuð á góðan pappír og er á ENSKU.Ath. ef þú ert eingöngu að kaupa eina útprentaða uppskrift og vilt fá hana senda veldu þá sækja í verslun og við sendum uppskriftina sem bréfapóst frítt.
-
Debbie Bliss er einn þekktasti prjónhönnuður Bretlands. Hér er uppskrift af trefli með mósaíkprjóni. Þessi uppskrift er seld útprentuð á góðan pappír og er á ENSKU.Ath. ef þú ert eingöngu að kaupa eina útprentaða uppskrift og vilt fá hana senda veldu þá sækja í verslun og við sendum uppskriftina sem bréfapóst frítt.
-
Debbie Bliss er einn þekktasti prjónhönnuður Bretlands. Hér er uppskrift af fíngerðri peysu með gataprjóni. Fjórar stærðir. Peysan er prjónuð í stykkjum, fram og til baka og saumuð saman. Þessi uppskrift er seld útprentuð á góðan pappír og er á ENSKU.Ath. ef þú ert eingöngu að kaupa eina útprentaða uppskrift og vilt fá hana senda veldu þá sækja í verslun og við sendum uppskriftina sem bréfapóst frítt.
-
Heklunálaveski til að hafa gott skipulag á heklunálunum. Hvert hólf er merkt heklunálastærðinni. Tvö ómerkt aukahólf.
Á myndinni sést heklunálaveskið brotið ó tvennt en þegar búið er að fylla það af heklunálum er þægilegt að rúlla því upp og festa með snúruteygjunni. Stærð: Lokað: 15 x 18,5 cm Opið: 47 x 25,5 cm Dýpt vasa: 10 cm Hannað fyrir skapandi einstaklinga heima eða á ferðinni. Linen línan - Ytra byrðið og vasarnir eru úr líni (hör) og innra byrðið (röndótta) úr bómullarefni. Til að loka veskinu er þykk snúruteygja sem smeygt er utan um stóra kókostölu. Teygjan tryggir að hægt er að loka veskinu þó að það sé troðfullt af heklunálum! -
Della Q hring- & sokkaprjónaveskin koma skipulagi á hringprjónana og sokkaprjónana. Það rúmar mikið en er samt hæfilega stórt til að taka með í ferðalagið. Hver vasi er merktur svo að hver grófleiki rati í réttan vasa. Það komast nokkrir hringprjónar í hvern vasa, því við eigum jú oftast mismunandi lengdir í hverju númeri. Merkingarnar fyrir hringprjónana eru frá 3,25 mm upp í 10 mm og að auki tveir ómerktir vasar. Sokkaprjónavasarnir eru merktir með 2 mm upp í 6,5 mm og að auki eru fjórir ómerktir vasar. Tveimur vösum er lokað með rennilás fyrir prjónamerkin, málbandið, nálar eða annað. Þetta er eitt vinsælasta prjónaveskið frá Dellu Q enda kemst ótrúlega mikið í það. Stærð: Lokað: 12,5 cm x 25,5 cm
Opið: 52 cm x 45 cm Linen línan - Ytra byrðið og vasarnir eru úr líni (hör) og innra byrðið (röndótta) úr bómullarefni. Til að loka veskinu er þykk snúruteygja sem smeygt er utan um stóra kókostölu. Teygjan tryggir að hægt er að loka veskinu þó að það sé troðfullt af prjónum! -
Það getur verið erfitt að koma skipulagi á hringprjónana. Þeir flækjast auðveldlega og það getur tekið langan tíma að finna rétta prjóninn. Prjónahengið er svarið! Hver göng geta geymt marga prjóna í mismunandi lengdum. Böndin efst er hægt að nota til að hengja prjónahengið upp; á herðatré, á fataslá eða á hurð. Það getur verið sniðugt að hnýta böndin utan um prik eða t.d. langan prjón og hengja upp á snaga eða nagla. Neðst er vasi með rennilás til að geyma smáhluti. Tuttugu göng eru merkt með prjónastærðum og ein eru auka án merkingar. Göngin eru merkt í þessum prjónastærðir í mm: 1,5, 1,75, 2, 2,25, 2,5, 2,75, 3, 3,25, 3,5, 3,75, 4, 4,5, 5, 5,5, 6, 6,5, 7, 8, 9, 10, 12 mm.Stærð Lengd: 82,5 x breidd: 25,5 cm Hannað fyrir skapandi einstaklinga. Linen línan - Ytra byrðið og vasarnir eru úr líni (hör) og innra byrðið (röndótta) úr bómullarefni. Til að loka veskinu er þykk snúruteygja sem smeygt er utan um stóra kókostölu. Teygjan tryggir að hægt er að loka veskinu þó að það sé troðfullt af prjónum!
-
Maker’s Backpack er bakpokinn fyrir alla sem stunda hvers kyns handíðir og eru á ferðinni, en líka fyrir hina því þetta fyrst og fremst góður og vandaður bakpoki. Axlarólarnar eru nógu breiðar til að dreifa þyngdinni í bakpokanum jafnt. Hann getur staðið óstuddur þökk sé fimm málmtöppum sem veita stuðning en koma líka í veg fyrir að botninn óhreinkist. Handföngin efst á töskunni eru þægileg en þau er líka hægt að taka af ef vill. Á annarri hliðinni er sérstakur vasi fyrir prjóna og /eða heklunálar. Sérstakt hólf er fyrir VÍV (verk í vinnslu), staður fyrir símann og margt annað. Góð taska fyrir hversdagslífið. Hönnuð fyrir skapandi einstaklinga á ferðinni. Framleiðandinn hefur sjálfbærni að leiðarljósi við framleiðslu þessarar tösku. Hver taska er handunnin og tímalaus hönnun.
-
Þetta er rúmgóð hliðartaska, sem er hægt að láta hanga beint eða á ská. Sem taska í lítilli/miðstærð er líka hægt að taka hölduna af og nota sem veski. Hugað er að öllum smáatriðum. Taskan er nútímaleg og hefðbundin í senn, hefur mikið notagildi og fer aldrei úr tísku! Hugsuð fyrir prjónaverkefnið eða hvað sem er. Góð handtaska fyrir hversdagslífið. Hönnuð fyrir skapandi einstaklinga á ferðinni. Taska fyrir þau sem eru að leita að lítilli til meðalstórri tösku, fullkomin fyrir prjónaverkefnið en líka sem venjuleg handtaska. Hagstæð stærð og verð! Framleiðandinn hefur sjálfbærni að leiðarljósi við framleiðslu þessarar tösku. Hver taska er handunnin og tímalaus hönnun.
-
Maker's Canvas Satchel taskan er fyrir þá sem vilja það besta. Hún er hönnuð í anda gömlu læknataskanna. Hún opnast vel og helst opin þannig að auðvelt er að hafa yfirlit yfir allt innihaldið. Botninn er flatur og því stendur taskan vel og getur virkað sem karfa á meðan prjónað er. Tvær krækjur loka töskunni, það er fullt af vösum og stöðum til að geyma allt smádótið og verkefnin. Bryddingar, höldur o.fl. eru úr leðri með festingum úr antík bronsi. Hugað er að öllum smáatriðum. Taskan er nútímaleg og hefðbundin í senn, hefur mikið notagildi og fer aldrei úr tísku! Góð handtaska fyrir prjónalífið og hversdagslífið. Hönnuð fyrir skapandi einstaklinga á ferðinni. Framleiðandinn hefur sjálfbærni að leiðarljósi við framleiðslu þessarar tösku. Hver taska er handunnin og tímalaus hönnun.
-
Þetta er rúmgóð hliðartaska með góðu handfangi. Vandlega handunnin taska þar sem hugað er að öllum smáatriðum. Nútímaleg og hefðbundin í senn, taska sem hefur mikið notagildi og fer aldrei úr tísku! Hugsuð fyrir prjónaverkefnið eða hvað sem er. Góð handtaska fyrir hversdagslífið. Hönnuð fyrir skapandi einstaklinga á ferðinni. Framleiðandinn hefur sjálfbærni að leiðarljósi við framleiðslu þessarar tösku. Hver taska er handunnin og tímalaus hönnun.
-
Þetta prjónaveski eða prjónahirsla er hönnuð með þarfir prjónarans í huga. Þægilegt til að hafa hringprjónana á einum stað og gott skipuleg á þeim. Veskið er með rennilás á þremur hliðum og opnast eins og harmonikka. Ellefu vasar geyma allar stærðir af hringprjónum. Það fylgja með ómerktir límmiðar í pastellitum til að merkja vasana í samræmi við þína prjónaeign. Ytra byrðið er úr sterku bómullakakí, bryddað með leðurlíki. Þægilegt handfang til að halda á töskunni. Málmfestingar eru úr messing.
Stærð: 20 x 14 x 7,5 cm Hannað fyrir skapandi einstaklinga heima eða á ferðinni. Sjá einnig Hook & Needle skipulagsmöppuna sem er í stíl og kemur í sömu litum. Framleiðandinn hefur sjálfbærni að leiðarljósi við framleiðslu þessarar tösku. Hver taska er handunnin og tímalaus hönnun. -
Maker's Mesh Tote handavinnutaska Stór taska með gegnsæju efni á hliðum. Sniðugt þegar að maður vill sjá hvað er í töskunni utan frá. Töskunni fylgir axlaról sem er nógu löng til að hafa á ská yfir öxlina ef vill. Í töskunni rúmast 10 eða fleiri garnhespur eða meðalstórt eða stórt verkefni. Hverri tösku fylgja skæri með slíðri í stíl og budda sem er lokað með smellum fyrir smáhlutina. Fæst í fjórum litum. Stærð 38 cm (lengd) x 25 cm (hæð) x 15 cm (dýpt)
-
Maker’s Buddy Case eða smáhlutabudda. Nýjasta útgáfan af þessum buddum er með enn sterkari segli í lokinu. Þannig haldast smáhlutir eins og prjónamerki, nálar o.fl. á sínum stað. Stærð: 12,7 x 8,9 x 5 cm Hannað fyrir skapandi einstaklinga heima eða á ferðinni. Sjá einnig Hook & Needle skipulagsmöppuna og Maker's hringprjónatöskuna sem er í stíl og kemur í sömu litum. Framleiðandinn hefur sjálfbærni að leiðarljósi við framleiðslu þessarar tösku. Hver taska er handunnin og tímalaus hönnun.
-
Della Q sokkaprjónaveskin koma skipulagi á sokkaprjónana. Það rúmar mikið en er samt hæfilega stórt til að taka með í ferðalagið. Hver vasi er merktur svo að hver grófleiki rati í réttan vasa. Það eru fjórtán vasar merktir með 2 mm upp í 6,5 mm og að auki eru tveir ómerktir vasar. Tveimur vösum er lokað með rennilás fyrir prjónamerkin, málbandið, nálar eða annað. Þetta er eitt vinsælasta prjónaveskið frá Dellu Q enda kemst ótrúlega mikið í það. Stærð: Lokað: 16,5 x 26 cm
Opið: 50 cm x 47 cm Linen línan - Ytra byrðið og vasarnir eru úr líni (hör) og innra byrðið (röndótta) úr bómullarefni. Til að loka veskinu er þykk snúruteygja sem smeygt er utan um stóra kókostölu. Teygjan tryggir að hægt er að loka veskinu þó að það sé troðfullt af prjónum! -
Eco Vita Hemp útsaumsefni frá DMC Hampur er náttúrulegt vefjarefni úr jurtaríkinu og hentar vel í útsaumsefni. Áferðin líkist líni/hör. Fáanlegt í fjórum litum og hver bútur er 38,1 x 45,7 cm. Þetta er þéttofið efni og hentar vel frjálsan útsaum og flos. Frábært að sauma út með DMC Eco Vita organic útsaumsgarninu.
-
Þetta er útsaumsgarn úr 100% lífrænni ull. Ullin er lituð með náttúrulegum litum sem eru unnir úr valhnetum, rabbarbara, indigó og eini. Litapallettan er sérlega falleg sem auðveldar val á litum í útsaumsverk. Útsaumgarnið hefur jafna áferð (er ekki misþráða) og er hæfilega snúðlint og hentar því afar vel í alls kyns útsaum, vefnað og fataviðgerðir. Tvinnað garnið er notað eins og það er (ekki hægt að kljúfa). Grófleikinn er u.þ.b. sá sami og 3 þræðir af árórugarni.
- Woolmark vottað - góð ending, er litekta, dofnar ekki
- 100% lífræn ull (af fé sem er ekki dindilklippt)
- 60 náttúrulegir litir í boði
- Hver dokka er með 16 m
- Handþvottur við 30°C
-
Eco Vita #2. The Forester Wall
Útsaums- og mynsturbók frá DMC í Eco Vita línunni. Í bókinni eru 19 mynstur fyrir frjálsan útsaum, krosssaum og flos, allar í anda náttúrunnar; skógar, engi og blóm. Allur útsaumur gerir ráð fyrir að notað sé DMC Eco Vita organic útsaumsgarnið. -
Eco Vita #1. The Botanist's Cabinet
Útsaums- og mynsturbók frá DMC í Eco Vita línunni. Mynstur furor b´æði frjálsan útsaum og krosssaum. Fjórtán mismunandi mynstur, hvert og eitt með góðum útskýringum, og myndum. Mynstrin eru öll saumuð með DMC Eco Vita organic útsaumsgarninu. -
Eco Vita #3. The Mender's Wardrobe
Útsaums- og mynsturbók frá DMC í Eco Vita línunni. Hér geta þau sem vilja lengja líf flíkanna sinna eða endurnýjað og skreytt með útsaumi fengið fullt af flottum hugmyndum. Í bókinni eru 21 hugmynd til að fegra og gera við fatnað með stæl. Hver flík mun endurspegla skapandi lífstíl og sjálfbærni! Allur útsaumur gerir ráð fyrir að notað sé DMC Eco Vita organic útsaumsgarnið.