• Nálaþræðari sérstaklega hannaður fyrir útsaumsgarn og útsaumsnálar. Endinn á þræðaranum er flatur svo auðvelt sé að þræða, jafnvel þótt garnið sé gróft.
  • Góður skurðarhnífur með 45mm blaði fyrir alla námkvæmisvinnu í bútasaumi. Skurðarhnífar eru ómissandi áhald fyrir bútasaumara. Hnífurinn situr vel í hendi og það er auðvelt að skera fljótt og vel með honum. • Hentar bæði rétthentum og örvhentum. Hlífinni er einfaldlega snúið eftir því hvor höndin er notuð. • Sker vel sama hvernig hnífnum er beitt; lóðrétt eða á ská, því blaðhlífin hefur nægilegt svigrúm en blaðið sjálft nær mátulega langt út fyrir brúnina til að gæta öryggis. • Gripið á handfanginu er þægilegt með stömum en mjúkum snertiflötum. • Hægt að stilla hve hratt skurðarblaðið rennur. Ef skrúfan er hert hægist á blaðinu sem auðveldar skurð á þykkari efnum.
  • Merkikrækjur í mismunandi litum fyrir prjónið og heklið. Það er líka hægt að nota merkin opin. Lögunin á merkinu kemur í veg fyrir að það teygist á prjónuðum lykkjum. Hentugt box til að geyma merkin. Innihald: 36 stk. í boxi
    • Lítil: 10 stk.
    • Miðstærð: 20 stk.
    • Stór: 6 stk.
  • Frábærar merkikrækjur, enda ein af okkar allra vinsælustu vörum. Þær eru úr efni sem endist vel (brotna ekki). Krækjurnar eru mest notaðar til að merkja umferðir, t.d. úrtökur eða útaukningar. Það eru tvær stærðir fáanlegar. Þessar eru minni. Innihald: 20 merkikræjur í tveimur litum, plastumslag til að geyma þær í fylgir. Athugið að það er betra að hafa krækjurnar lokaðar þegar þær eru ekki í notkun.
  • Addi Click Lace PRJÓNAODDAR – stuttir

    Price range: 1.495kr. through 1.795kr.
    Prjónaoddar til að festa við snúru í addiClick kerfinu. Þetta eru LACE prjónar með góðum oddi sem er mjög gott að prjóna með. Sömu gæða prjónarnir og aðrir málmprjónar frá ADDI. Lace Short prjónaodda er hægt að nota með 40cm og lengri snúrum. Snúrurnar eru seldar sér, ein í pakka eða fleiri.
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • ADDI teljarinn er digital. Ýtt er á einn takka til að telja og annan til að núllstilla. Hægt að festa um fingurinn eða utan um handfang eða hafa lausan. Það getur sparað mikinn tíma í prjóni að nota teljara til að telja lykkjur eða umferðir, úrtökur eða útaukningar.
  • Sterkar lykkjunælur úr áli. Þrjár stærðir í þremur litum.
  • Fyrirferðarlítið prjónamál úr plasti. Þægilegt til að hafa með í prjónatöskunni. Myndin sýnir US stærðir en á hinni hliðinni eru mm stærðir.  
  • Sérhannað prjónamerki af FIREFLY fyrir fagurkera. Þetta merki eru fyrir prjónara sem elska sætar kökur! Pakkningin inniheldur eitt merki. Búin til úr málmi með emelaraðri skreytingu með hring. FIREFLY er kanadískt vörumerki.

    Fullkomin gjöf fyrir þau sem prjóna og kunna að meta fallega fylgihluti!

  • FRÍ SOKKAUPPSKRIFT þegar 7 BRÆÐUR garnið er keypt, gildir til 15. ágúst. Ef verslað er í vefverslun setjið þá kaðlasokkauppskrift í athugasemdir.
    SOKKAUPPSKRIFT Á ÍSLENSKU
    Góðir kaðlasokkar í þremur stærðum 36, 38 og 40 fyrir 7 BRÆÐUR sokkagarnið.
    Hællinn er bandhæll með styrkingu. Þá verður hællinn þykkari, mýkri og sterkari.
    Það er góð tilbreytinga að prjóna sokka með köðlum!
    Prjónastærð: 3,5 mm
    Garnmagn: 100 (150) 150 g af 7 Bræður / Veljestä
    Þið getið skoðað  7 Bræður garnið HÉR.
    Þið getið skoðað 7 Bræður Nummi garnið HÉR.
  • SOKKAUPPSKRIFT Á ÍSLENSKU
    Góðir sokkar í þremur stærðum 36, 38 og 40 fyrir 7 BRÆÐUR sokkagarnið.
    Hællinn er bandhæll með styrkingu. Þá verður hællinn þykkari, mýkri og sterkari.
    Það er sérstaklega þægilegt að fara í og úr sokkum sem eru með stroffi frá legg niður að hæl.
    Þetta verða bestu heimasokkarnir!
    Prjónastærð: 3,5 mm
    Garnmagn: 100 (100) 150 g af 7 Bræður garni
    Þið getið skoðað  7 Bræður garnið HÉR.
    Þið getið skoðað 7 Bræður Nummi garnið HÉR.
  • Petite Knit er merki danska prjónhönnuðarins Mette Wendelboe Okkels. Hún hannar og útfærir uppskriftir á börn og fullorðna í klassískum nútímalegum stíl. Mette tengir um leið gamlar prjónahefðir við nýjar aðferðir. Uppskriftirnar eru skýrar og gott að fara eftir þeim. Þetta er rafræn uppskrift. Þessi uppskrift er fáanleg á Íslensku. Við kaup á rafrænni uppskrift færð þú aðgang að öllum tungumálum sem búið er að þýða uppskriftina á.
    Uppskriftin kemur í tölvupósti frá Ravelry Downloads.
    Uppskriftir eru keyptar handvirkt fyrir hvern og einn og eru afgreiddar á opnunartíma verslunarinnar.
  • Ástþrúður Sif Sveinsdóttir | Tvist

    Price range: 1.050kr. through 1.350kr.

    Ástþrúður Sif Sveinsdóttir | Tvist

    Falleg peysa úr smiðju Ástþrúðar Sifjar Sveinsdóttur. Við mælum með að nota í hana: Rowan Mode SOFTEST ALPACA, Kaos Yarn CHUNKY ANDEAN WOOL, Schoppel Wolle ALPACA QUEEN

    Valkostir:

    • Útprentuð uppskrift – sótt í verslun eða send frítt með öðrum vörukaupum
    • Útprentuð uppskrift, send stök með bréfpósti
    • Rafræn uppskrift, send með tölvupósti – öll fáanleg tungumál fylgja, sendar á virkum dögum

    Uppskriftin kemur í tölvupósti frá Ravelry Downloads. Uppskriftir eru keyptar handvirkt fyrir hvern og einn og eru afgreiddar á opnunartíma verslunarinnar. 

    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • Efni úr blöndu af bómull og líni, áprentað með sashiko mynstri sem hverfur þegar það er lagt í bleyti. Þrír mismunandi litir og þrjú mynstur í boði. Mismunandi litir af sashiko útsaumsgarni eru í boði sem þið getið valið eftir smekk. Hver bútur er 32 x 32 cm auk baks í sömu stærð. Hægt er að sauma púðaver, diskamottu, bókakápu eða nota til að pakka inn gjöfum. Notið þann sashiko þráð sem ykkur hentar.
    • Innihald: 50% bómull, 50% lín
    • Stærð á pakkningu: Um 24 x 14,5 cm
    • Framleiðsluland: Japa
    • Tilbúin stærð: Um 32 x 32 cm
    • Þráður og nál fylgir ekki með
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • THE ART OF THE SEA Höfundur: Ýmsir hönnuðir Útgefandi: Laine Publishing (2025)
    Harðspjalda | 272 bls. Tungumál: Enska Þyngd: 1.300 g | Mál: 218 x 276 x 25 mm 
    • Grófleiki:  Léttband / DK
    • Innihald:  70% Falkland ull, 15% Bluefaced Leicester ull, 15% Bluefaced Kerry Hill ull
    • Lengd/þyngd:  100 g/225 m
    • Prjónar:  3 mm
    • Prjónfesta:  22 lykkjur og 33 umferðir = 10 x 10 cm
    • Þvottur:  Handþvottur við 30°C
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • LAINE TUTTUGU OG SEX Finnskt tímarit (á ensku) með prjónhönnun á heimsmælikvarða. Margir hönnuðir leggja hönd á plóg og tryggja úrval að áhugaverðum peysum og fylgihlutum. Mikil áhersla er lögð á greinagóðar uppskriftir. Þá fyglir ein mataruppskrift að auki. Stílhreint tímarit á ensku með fallegri myndatöku. Athugið að það er hægt að vera áskrifandi að LAINE tímaritunum hjá okkur. Sendu okkur skilaboð til að skrá þig. Við látum vita þegar að LAINE kemur í sölu og tökum frá eintak fyrir þig og þú sækir eða við sendum. 10% afsláttur fyrir áskrifendur.
  • DMC | ÚTSAUMSHRINGUR

    Price range: 1.195kr. through 1.995kr.
    Útsaumshringur úr tré með góðum festingum. Ef útsaumsefnið er viðkvæmt er mælt með því að hringurinn sé vafinn með þunnri léreftsræmu eða t.d. teygjanlegri grisju sem fæst í apótekum. Þetta auðveldar vinnuna og heldur, sérstaklega þunnum, efnum betur strekktum og markar þau ekki. Það er mikilvægt að velja stærð útsaumshringsins í samræmi við verkefnið sem unnið er. Ef hringurinn er of lítill fyrir verkefnið fer mikill tími á að færa hringinn til og efnið getur skemmst.
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • Hefðbundin storkaskæri eru ekki bara falleg heldur góð fyrir útsauminn eða til að klippa spotta. Stærð: 9 cm.
  • DMC Blank Magic Paper er hvítur grunnur sem hentar bæði fyrir útsaum á efni/flík, ofna eða prjónaða. Hægt er að teikna fríhendis eða prenta á grunninn, eða yfirfæra mynstur. Grunnurinn loðir við efnið/flíkina sem á að sauma út. Loks er allt lagt í bleyti og þá leysist grunnurinn upp. Innihald: 2 grunnar í A5 stærð (sjálflímandi), leiðbeiningar.  
  • Della Q prjónaoddaveskin koma skipulagi á prjónaoddana og snúrurnar. Það rúmar heilt prjónasett og það fer lítið fyrir því upprúlluðu eða samanbrotnu. Hentugt til að taka með í ferðalagið. Hver vasi er merktur svo að hver grófleiki rati í réttan vasa. Það eru merktir vasar (2,7 - og 10mm) og 5 ómerktir auka vasa með rennilás til að geyma smáhlutina. Stærð: Lokað: 10 cm x 18,5 cm
    Opið: 38 cm x 18,5 cm Linen línan - Ytra byrðið og vasarnir eru úr líni (hör) og innra byrðið (röndótta) úr bómullarefni. Til að loka veskinu er þykk snúruteygja sem smeygt er utan um stóra kókostölu. Teygjan tryggir að hægt er að loka veskinu þó að það sé troðfullt af prjónum!
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
    • Grófleiki: Fisband / lace
    • Innihald: 100% ull (merino)
    • Lengd/þyngd: 510m/100g
    • Prjónfesta 10 x 10 cm:
    • Tvinni: 3 mm prjónar: 28 L / 36 umf
    • Tvinni + Alpaca 1: 3 mm prjónar = 26 L / 30 umf
    • Tvinni + Alpaca 2: 3,5 mm prjónar = 24 L / 28 umf
    • Tvinni + Silk Mohair: 4 mm prjónar = 18 L / 24 umf
    • Þvottur: Handþvottur við 30°C
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • Segulplata sem passar í botninn á stærri öskjunum frá Firefly. Sniðugt ef geyma á nálar, títuprjóna, prjónamerki úr málmi, lítil skæri eða annað sem loðir við segul. Þá helst allt á sínum stað. Segullinn festist við botninn á öskjunni með lími. Rispuvarin húð. FIREFLY vörurnar eru handunnar í Kanada.

    Stærð:
    Lengd 9,5 cm x breidd 6,2 cm x dýpt 2 cm

    Fullkomin gjöf fyrir þau sem prjóna, hekla, sauma og aðra sem kunna að meta fallega fylgihluti!

  • Dúskur úr manngerðu loðskinni. Efni 100% akríl. Stærð um 12 x 12 cm. Festur með smellu.
Go to Top