-
REINDEER JACKET eða HREINDÝRA JAKKI er uppskrift frá Rowan úr Felted Tweed garninu þeirra sem er mjög létt og hentar í tvíbandaprjón. Fæst í yfir 50 litum.
Peysan er prjónuð í stykkjum með tvíbandaprjóni í tveimur litum og er með sjalkraga. Litirnir og mynstrið gera hana vetrarlega og jafnvel jólalega.
Þessa uppskrift er hægt að sækja FRÍTT sem pdf skjal og hún er á ensku. -
JÓLASOKKAR í dömu og herrastærð fyrir 7 BRÆÐUR sokkagarnið.Þessa uppskrift er hægt að sækja FRÍTT sem pdf skjal og hún er á íslensku. -
Afi prjónaði - Pabbi prjónaði - Frændi prjónaði Merkimiðar úr vaskaskinni. Áferðin á vaskaskinni minnir á rúskinn, en er mýkra. Það heldur mýktinni, þolir þvott og lætur ekki lit. Áletrunin er hitaprentuð og endist því vel. Það eru göt á hverju horni svo að auðvelt sé að festa við flíkina. Stærðir: Afi 1,2 x 5,3 cm, Pabbi 1,2 x 5,1 cm, Frændi 1,2 x 5 cm.