1.200kr.

Peysan SIF er klassísk peysa eftir Helgu Thoroddsen. Notuð er tengiaðferð til að prjóna hálsmál, axlir og efri hluta erma. Allt prjónað, ekkert saumað saman. Peysur með þessu sniðu smellpassa og eru mjög klæðilegar.

Þessi uppskrift er seld sem pdf skjal og er á íslensku. 

Um leið og greiðsla hefur farið fram birtist slóð á síðunni sem smellt er á til að hlaða henni niður. Slóðin birtist einnig í tölvupóstinum sem þið fáið eftir kaupin.

Hægt er að hlaða uppskriftinni í tölvuna, spjaldtölvuna eða símann allt að fimm sinnum.

HÖNNUN / UPPSKRIFT                                    

Helga Thoroddsen

AÐFERР                

Þessi peysa er einstaklega skemmtileg í prjóni, virkar flókin en er frekar einföld. Hún er hringprjónuð ofan frá og niður og með upphækkun á bakstykki. Mjög auðvelt er að hafa áhrif á vídd og sídd peysunnar bæði með að breyta prjónastærð og prjóna fleiri og/eða færri umferðir en uppskriftin segir til um. Þar sem peysan er prjónuð ofan frá og niður er auðvelt að máta jafnóðum og meta hversu mikið þarf að prjóna áður en ermar og bolur eru aðskilin. Peysan er án sauma og eini frágangurinn að loka götum í handvegi og fela enda. Frábær peysa bæði við buxur, kjóla og pils. Aukavídd er náð í bolinn með því að stækka prjónastærðir niður bolinn frá 3 ½  í 4 ½  mm.

STÆRÐIR    

Mál (stærðir 1 – 8)

Sniðið á peysunni er frekar vítt og með góðri hreyfivídd (4 – 6 cm).
Sjá má sjá ítarlega máltöflu á heimasíðunni – prjon.is

PRJÓNFESTA
Í sléttprjóni (litir A og D saman -einn þráður af hvorum) eftir þvott 22 L x 28 umf = 10 cm á 3 ½ mm prjóna.

GARN

Í peysuna eru notaðir 6 litir. Móhár (mohair) bandið er notað tvöfalt í berustykkinu en í bolnum og ermum eru litir A og D notaðir saman, einn þráður af hvorum lit.

·       Litur A – Lamana Merida – 5, (5) (6) (6) (7) (7) (8) (8) x 25 gr, 1000 (1000) (1200) (1200) (1400) (1400) (1600) (1600) m.

·       Litur B – Lamana Merida – 1 x 25 gr – 300 m, allar stærðir.

·       Litur C – Lamana Merida – 1 x 25 gr  – 300 m, allar stærðir.

·       Litur D – Lamana Premia – 3 (3) (4) (4) (4) (5) (5) (6) x 25 gr, 900, (900) (1200) (1200) (1200) (1500) (1500) (1800) m.

·       Litur E – Lamana Premia – 1, (1), (1), (1), (2), (2), (2), (2) x 25 gr – 300 (600) m.

·       Litur F – Lamana  Premia – 1 x 25 gr – 300 m, allar stærðir.

Eða annað garn í sömu prjónfestu og grófleika

PRJÓNAR

Prjónastærðir – 3, 3 ½ , 4 og 4 ½  mm.