2.195kr.

  • Grófleiki: Léttband / þykkband
  • Innihald: 100% endurunnið silki
  • Lengd/þyngd: 100 m/100 g
  • Prjónar: 4 – 5 mm (fer eftir verkefni)
  • Prjónfesta: 16-22 lykkjur = 10 cm (fer eftir verkefni)
  • Þvottur: Handþvottur í köldu vatni

Handspunnið silki úr þráðum sem falla til við sari saumaskap í Indlandi. Hver hnota er einstök, engin alvega eins en stundum líkar. Þegar pantað er munið þið fá hnotu valda af handahófi, en ef þið viljið sérstaka liti setjið þá óskir ykkar í athugasemdir með pöntuninni og við munum reyna að finna líkan lit. Eins ef pantaðar eru fleiri en ein hnota þá reynum við að velja líka liti (nema þið viljið einmitt hafa þá ólíka!).

Er á lager

Silki úr afgangsþráðum sem falla til við saumaskap af saríum frá Indlandi.

Þvottur á silki:

Þegar silki er þvegið, sérstaklega þegar það er í sterkum eða dökkum litum, er ráðlagt að nota kalt vatn (þarf ekki að vera ískalt samt). Eftir því sem vatnið er heitara eru meiri líkur á að litir renni.

Notið sérstakan ullar og/eða silki þvottalög. Ef notað er SOAK sem þarf venjulega ekki að skola úr, þá er gott að fylgjast með því hvort vatnið tekur lit. Ef það gerist, þarf að taka verkefnið varlega upp úr vatninu (gæta þess að það teygist ekki og kreista eins mikið vatn úr eins og kostur er) og leggja í annað skolvatn sem hefur sama hitastig. Endurtakið svo eftir þörfum.

Það gildir um allt sem þvegið er í höndum, að gæta þess að ekki teygist á flík á meðan hún er rennandi blaut, og getur því teygst auðveldlega vegna þyngdarinnar. Gott að vera með bakka eða stórt sigti og setja undir þegar flíkin er færð í vinduna í þvottavélinni eða sett á handklæði og rúllað upp til að ná sem mestri bleytu úr.

Handprjónaðar flíkur á alltaf að leggja flatar til þerris. Það er gott að eiga sérstakar stekkingarmottur til að leggja á, því þær er hægt að púsla saman í rétta stærð og færa á milli staða eftir þörfum. Flíkur þorna fyrr ef þær eru lagðar á svona mottur til samanburðar við handklæði sem draga í sig rakann úr flíkinni.