Original price was: 1.200kr..Current price is: 720kr..

40% Off

  • Grófleiki: Fínband / fingering / 4 ply
  • Innihald: 100 % ull
  • Lengd/þyngd: 200m/50g
  • Prjónar: 2 – 3 mm
  • Prjónfesta: 30-36 lykkjur = 10 cm eftir grófleika prjóna
  • Þvottur: Handþvottur

Ath. þetta garn er líka gott í ullarútsaum!

Pirkkalanka ullargarnið fáum við frá Finnlandi. Það kemur í mjög mörgum litum og hentar í alls konar verkefni; handprjón, vélprjón, hekl, útsaum og vefnað. Fínbandsgrófleikinn er góður í vettlinga sem eru prjónaðir á prjóna 2 – 2,5 mm, enda er þetta vinsælasta vettlingagarnið hjá okkur. Þetta er 100% ull með þéttum snúð, en samt liprara og loftmeira en t.d. sokkagarn. Þess vegna er góð fylling í því í tvíbandaprjóni.

Þessi ull krefst handþvottar en það lengir líf hennar og heldur garninu lengur fallegu.

Pirkkalanka ohut er líka mjög gott í peysur, eitt og sér eða með silki/móhár garni.

Pirkkalanka hefur verið í framleiðslu í áratugi og því komin góð reynsla á það. Garnið er spunnið í Noregi og litað í Finnlandi og ferlið uppfyllir staðla EU um vistvæna framleiðslu. Peysur úr garninu halda sér eins árum saman.

Það er hægt að kaupa Pirkkalanka ohut í 50g hnotum eða í 100g hespum. Ef þið viljið frekar hespu setjið þá 2 x 50g í körfuna og sendið okkur skilaboð um að vilja frekar hespu.