16.000kr.
Eitt skipti – 5. október
Mánudagur kl. 17:30 – 20:3o
Lykkjubinding er nýyrði yfir aðferð í prjóni sem er gott að nota þegar margar lykkjur eru á milli lita í tvíbandamynstri og festa þarf bakböndin. Það er ekki átt við að krækja garnlitum saman, þetta er allt önnur tækni! Þá minnkar hættan á að prjónið herpist saman eða að liturinn sem krækt er sjáist í gegn.
Þessi aðferð er algjör bylting fyrir þau sem vilja prjóna tvíbandamynstur með stórgerðum mynstrum.
Námskeiðslýsing
Við prjónum húfu með tvíbandamynstri í þremur litum. Uppskriftin er á íslensku og er fáanleg í þremur stærðum.
Garnið í húfuna er Felted Tweed frá Rowan, létt og mjúkt garn, frábært í húfur. Margar litasamsetningar í boði.
Hafa meðferðis eða kaupa á staðnum:
40 cm hringprjóna í 4 mm og 4,5 mm
Garn í húfuna er innifalið (3 hnotur)!
Kennari: Guðrún Hannele
Uppselt

