24.000kr.

Veljið hvernig peysu þið viljið prjóna svo að uppskriftin verði tilbúin fyrir ykkur.

Það er val um:

Cumulus blouse – þessi klassíska með V hálsmáli

Cumulus blouse O-neck – með rúnnuðu hálsmáli

Vöruflokkar:

4 skipti kl. 17:30 – 19:30

6. október

13. október

20. október

3. nóvember

Það er vika á milli fyrstu þriggja tímanna, en svo 2 vikur á milli næst síðasta og síðasta tíma. Þá gefst nemendum tími til að prjóna á milli tíma. Mikilvægt er að halda vel á spöðunum ef ætlunin er að klára peysuna á meðan að námskeiðstíma stendur. Einnig hvetjum við nemendur til að koma á prjónakaffi 8. og 31. okt.

Þetta námskeið er kjörið tækifæri fyrir þá prjónara sem vilja ná tökum á að prjóna peysu ofan frá. Allar stærðir í boði í þessari uppskrift frá Petiteknit.

Þið lærið að:

Fitja upp, prjóna í hring, prjóna slétt og brugðið, auka út, deila lykkjum í ermar og bol, taka úr og fella af ásamt því að fella af með snúruaffellingu (icord.)

Námskeiðið er fyrir nýliða í prjóni en það þarf að kunna að prjóna slétt og brugðið. Við lærum að lesa uppskrift og prjóna peysu ofan frá og niður.

Það er langbest að koma í búðina áður en námskeiðið hefst til að velja garn. Þá nýtist tíminn á námskeiðinu miklu betur. Við aðstoðum ykkur við að velja og finna út rétt garnmagn eftir stærð peysunnar sem þið viljið prjóna.

Þið fáið uppskriftina á íslensku.

Nemendur á námskeiðum Storksins fá garn og annað á sérkjörum. Þið fáið 15% afslátt af öllu í versluninni á meðan á námskeiðinu stendur.

Innifalið: Uppskrift (rafræn og útprentað eintak), prjónamerki, lykkjustoppari, prjónamál og kaffi/te og meðlæti.

Garn: 10 hnotur af Isager Silk Mohair eða 12 hnotur af Rowan Alpaca Cotton eða 5 hespur af Novita x Laine DK. 

Magna Rún kennir á þessu námskeiði.

Greiðsluskilmálar vegna námskeiðsgjalda

Ef ekki næst lágmarksþátttaka og námskeið er fellt niður endurgreiðum við öll námsskeiðsgjöld að fullu.

Ef skráður þátttakandi á námskeiði forfallast og kemst ekki á námskeiðið þá þarf tilkynning að berast Storkinum með tölvupósti á netfangið [email protected] eigi síðar en 48 klukkustundum (tveimur sólarhringum) áður en námskeið hefst. Ef tilkynning berst síðar áskilur Storkurinn sér rétt til að innheimta 10% af námskeiðsgjaldi vegna umsýslu.