24.000kr.

ATH. Helga verður í Storkinum laugardaginn 15. mars kl. 10-12 til að veita nánari upplýsingar um námskeiðið. Velkomin að kíkja í heimsókn. 

ÞRJÚ SKIPTI

Laugardagur 5. apríl kl. 10-12

Miðvikudagur 9. apríl kl. 17:30-19:30

Laugardagur 12. apríl kl. 10 – 12

Helga Thoroddsen prjónhönnuður býður upp á námskeið í að prjóna peysurnar Rák og/eða Röst. Peysurnar eru báðar úr einstaklega fallegu og litríku bandi frá Urth Yarns og eru prjónaðar ofan frá og niður með margvíslegum smáatriðum í hönnun og litasamsetningum.

Á námskeiðinu verða kenndar tvær ólíkar tengiaðferðir auk þess sem þátttakendur fá aðstoð við litaval og hvernig hægt er að aðlaga peysurnar þannig að þær passi viðkomandi sem best.

Tengiaðferð: Aðferð sem felur í sér að prjóna alla hluta peysunnar saman (tengja) þannig að hvergi er saumur.

Þátttakendur hafi með sér:

· Prjóna – ýmsar stærðir og lengdir.

· Hjálparhluti í prjóni, s.s. prjónamerki, málband, skæri o.s.frv.

· Rissbók/blað, blýant og strokleður.

· Band í prufuprjón (einnig verður band í boði á staðnum).

Kennari: Helga Thoroddsen

Innifalið: Hressing á námskeiðum, 15% afsláttur í Storkinum af uppskrift og garni í peysuna og reyndar öllu öðru á meðan á námskeiðstíma stendur.

Verð: 24.000 kr.

Er á lager

Vöruflokkar: