6.995kr.

Höfundur:  Marie Wallin

Útgefandi: Marie Wallin Designs (2022)

Mjúkspjalda | 121 bls.

Tungumál: Enska

Þyngd: 550 g | Mál: 215 x 280 mm

Cumbria, sérstök bók frá Marie Wallin því þetta er í fyrsta skipti sem hún hefur peysur á herra með.

Í bókinni eru 11 verkefni, þar af 3 herrapeysur, 6 dömupeysur og 2 fylgihlutir.

Allar peysurnar er hægt að prjóna í hring að viðbættum klippilykkjum þar sem hliðar eða handvegsop á að vera. Í bókinni er sérstakur kafli þar sem kennt er að klippa upp peysur.

Kvenstærðirnar eru S, M, L, XL, XXL, 2XL OG 3XL og passa fyrir ummál 81-86 cm, 91-97cm, 102-107cm, 112-117cm, 122-127cm, 132-137 cm og 142-147 cm.

Herrastærðirnar eru XS, S, M, L, XL, XXL, 2XL og 3XL og passa fyrir ummál 97-102 cm, 102-107 cm, 107-112 cm, 112-117 cm, 117-122 cm, 122-127 cm, 127-132 cm og 132-137 cm.

Hverri bók fylgir rafbók, það er kóði til að hlaða bókinni niður í tölvuna, spjaldtölvuna eða símann. Þá er auðvelt að stækka mynstrin þegar prjónað er eftir þeim.

Er á lager

Go to Top