19.495kr.

Prjónasett úr birki sem er sterkur viður og með slétta og mjúka áferð. Hver prjónaoddur er 9 cm langur eða hæfileg lengd á oddum fyrir stuttar snúrur eða 40 cm +.

Allir LYKKE prjónaoddarnir eru merktir með stærðunum og merkingin endist vel og lengi.

Innihald:
9 oddapör í grófleikum 3,25/3,5/3,75/4,0/4,5/5,0/5,5/6,0/6,5 mm.
4 snúrur – 2 х 40 cm, 1 х 50 cm, 1 х 60 cm.
2 snúrutengi, 4 lyklar (til að losa og herða) og 8 tappar (til að setja framan á snúrurnar þegar lykkjur eru geymdar).
Prjónaveski sem lokast með smellu og vasa fyrir alla smáhlutina.

FRÍ SENDING!

Aðeins 1 eftir á lager

UM LYKKE PRJÓNANA:

Lykke er norska og þýðir hamingja og framleiðandinn telur að þetta prjónasett muni gera ykkur hamingjusöm!

Prjónarnir eru framleiddir úr sléttum, hörðum við með fallega áferð. Endarnir eru með skrúfgangi úr málmi og þar er stærð hvers prjóns grafin (ekki prentuð) þannig að hún helst og hverfur ekki. Snúrurnar eru sveigjanlegar og liprar.

Prjónaoddasettið inniheldur 9 prjónaoddapör (sjá stærðirnar hér fyrir ofan), og utan um þá er fallegt veski til að geyma þá og alla fylgihlutina. Veskinu er lokað með segulsmellu. Í stærri vasanum eru 4 snúrur (2 x 40 cm, 1 x 50 cm og 1 x 60 cm), 4 pinnar til að herða og losa, 2 snúrutengi til að tengja saman snúrur og lengja eða tengja í hring til að geyma lykkjur og 8 prjónatappar til að skrúfa á snúruendana.

Athugið: Lykke vörurnar eru framleiddar með líftíma ábyrgð gegn göllum. Ef það koma upp vandamál má hafa samband við framleiðendur á síðunni www.lykkecrafts.com og fylla út einfalt eyðublað. Nýr hlutur verður sendur án vandræða.

Lykke vörur eru framleiddar í Kathmandu, Nepal. Fyrirtækið styður með stolti efnahagsvöxt og þróum í Nepal. Framleiðendur láta gott af sér leiða í nærsamfélagi Lykke í gegnum starfsmenn fyrirtækisins í Nepal, börn þeirra og fjölskyldur.