Symfonie prjónaoddarnir fást í tveimur lengdum. Þessir eru styttri og passa fyrir stystu snúrurnar til að mynda 40 cm langan hringprjón fyrir húfu- og ermaprjón eða hálsmál á peysu. Hægt er að nota oddana á allar aðrar lengdir af snúrum eftir þörfum.

Prjónaoddarnir eru skrúfaðir á snúrur sem fást í nokkrum lengdum. Snúrumegin við samskeytin eru göt þar sem meðfylgjandi pinna er stungið inn í til að herða og losa. Við mælum með því að pinninn sé alltaf notaður til og losa og festa prjónaodda og snúrur, annars getur prjónninn losnað á meðan prjónað er.

Þægindin við að nota samsetta prjóna eru ótvíræð. Þá þarf maður ekki að eiga næstum eins marga prjóna, því samsetningarmöguleikarnir eru svo miklir.

Þessi vara er ekki til á lager og þvi ófáanleg eins og er.