15.000kr.
2 skipti – mánudagar
kl. 17:30 – 19:30
11. og 18. maí
Hekltækni fyrir byrjendur og þau sem vilja rifja upp hekl. Farið verður í grunn eins og fastahekl og stuðlahekl og síðan bætt við aðferðum.
Með námskeiðinu fylgir CROCHET STITCHES kortapakki með 52 kortum, þar sem jafnmargar heklaðferðir eru útskýrðar. Heklkennarinn mun kenna ykkur á kortin svo að þið getið svo haldið áfram að bæta við ykkur hekltækni eftir námskeiðið.
Athugið að þetta námskeið hentar bæði byrjendum og þeim sem eru komin lengra og vilja bæta við sig tækni og þekkingu.
Kennari: Sólveig Sigurvinsdóttir
Uppselt