22.500kr.
3 skipti – þriðjudagar
kl. 17:30 – 19:30
15., 22. og 29. september
Heklnámskeið þar sem farið er í allt sem skiptir máli í hekli. Heklaðar eru prufur til að læra aðferðir en einnig er hægt að velja sér stærra verkefni ef vill og fá aðstoð við það.
Eiguleg heklbók á íslensku með öllum grunnaðferðum í hekli fylgir með námskeiðinu sem og garn í prufur.
Námskeiðið hentar bæði byrjendum í hekli svo og þeim sem vilja bæta við sig nýrri hekltækni eða rifja upp.
Hafa meðferðis eða kaupa á staðnum:
Heklunál 3,5 – 4 mm.
Kennari: Sólveig Sigurvinsdóttir
Er á lager

