10.995kr.

Della Q hringprjónaveskin koma skipulagi á alla hringprjónana. Hver vasi er merktur svo að hver grófleiki ratar í réttan vasa. Það komast nokkrir hringprjónar í hvern vasa, því við eigum jú oftast mismunandi lengdir í hverju númeri. Merkingarnar eru frá 2,75 mm upp í 10 mm og að auki eru fimm vasar ómerktir. Tveimur vösum er lokað með rennilás fyrir prjónamerkin, málbandið, nálar eða annað. Þetta er eitt vinsælasta prjónaveskið frá Dellu Q enda kemst ótrúlega mikið í það.

Linen línan – Ytra byrðið er úr lín (hör) efni og inna byrðið úr bómullarefni. Til að loka veskinu er þykk snúruteygja sem smeygt er utan um stóra kókostölu. Teygjan tryggir að hægt er að loka veskinu þó að það sé troðfullt af prjónum!

DELLA Q er bandarískt merki en vörurnar frá þeim eru framleiddar í Vietnam í fyrirtæki sem var stofnað til að styðja við konur og fjölskyldur þeirra. Í dag, eftir áralangt samstarf, er fyrirtækið enn starfandi með þar sem 6 konur sem eru allar fyrirvinnur sjá um framleiðsluna. Hjá Dellu Q fara saman gæði, góð hönnun, notagildi og samfélagsleg ábyrgð. Storkurinn hefur selt vörur frá Dellu Q í meira en áratug og mælum heilshugar með þeirra vörum.