7.995kr.

Della Q buddurnar eru koma í settum; 3 buddur í þremur stærðum. Frábærar fyrir alla fylgihlutina og litlu áhöldin. Allar buddurnar eru með rennilás og á annarri hliðinni er þéttofið net sem sést í gegnum. Þá sérðu innihaldið í buddunni og ert fljótari að finna það sem vantar.

LINEN línan – Önnur hliðin á buddunum er úr líni (hör) efni og útsaumuðu blómi. Hin hliðin er úr dökkbláu þéttofnu neti sem sést í gegnum.

DELLA Q er bandarískt merki en vörurnar frá þeim eru framleiddar í Vietnam í fyrirtæki sem var stofnað til að styðja við konur og fjölskyldur þeirra. Í dag, eftir áralangt samstarf, er fyrirtækið enn starfandi með þar sem 6 konur sem eru allar fyrirvinnur sjá um framleiðsluna. Hjá Dellu Q fara saman gæði, góð hönnun, notagildi og samfélagsleg ábyrgð. Storkurinn hefur selt vörur frá Dellu Q í meira en áratug og mælum heilshugar með þeirra vörum.