4.495kr.

NORA er léttur og þægilegur verkefnapoki fyrir prjón- eða heklverkefnið. Pokinn er hannaður þannig að hægt er að smeygja honum yfir úlnliðinn ef vill. Þægilegt ef þú vilt vera á ferð með verkefnið eða hafa hnykilinn á vísum stað. Fáanlegur bæði einlitir í LINEN línunni eða með áþrykktu mynstri úr bómull. Pokarnir eru allir fóðraðir og með einu stærra hólfi fyrir verkefnið og öðru minna fyrir smáhlutina.

DELLA Q er bandarískt merki en vörurnar frá þeim eru framleiddar í Vietnam í fyrirtæki sem var stofnað til að styðja við konur og fjölskyldur þeirra. Í dag, eftir áralangt samstarf, er fyrirtækið enn starfandi með þar sem 6 konur sem eru allar fyrirvinnur sjá um framleiðsluna. Hjá Dellu Q fara saman gæði, góð hönnun, notagildi og samfélagsleg ábyrgð. Storkurinn hefur selt vörur frá Dellu Q í meira en áratug og mælum heilshugar með þeirra vörum.