2.495kr.

  • Grófleiki: Smáband / sport / baby
  • Innihald: 65% kid mohair, 35% merino
  • Lengd/þyngd: 175m/50g
  • Prjónar: 3 – 5 mm
  • Prjónfesta: 24 lykkjur = 10 cm
  • Þvottur: Handþvottur

Frá Mohair by Canard kemur mjúk geitaull í hæsta gæðaflokki af angórugeitum frá Suður-Afríku. Þaðan kemur helmingur allrar móhár framleiðslu í heiminum í dag sem tryggir sérþekkingu og gæði.

Garnið er tvinnað, með fallegum gljáa og flokkast sem smáband en er hægt að nota í þéttprjónaða vettlinga á prjóna 2,5mm sem verða hlýir og sparilegir. Einnig gott í sjöl á prjóna 3,5-4,5mm og í peysur eða húfur. Mjúkt garn en samt ekki lint og einstaklega hlýtt eins og móhár/geitaull er þekkt fyrir.