4.295kr.
- Grófleiki: Mitt á milli fis- og fínbands / between lace and fingering
- Innihald: 100% mórberja silki
- Lengd/þyngd: 300m/50g
- Prjónar: 2-2.5mm
- Prjónfesta: 23 – 31 lykkja = 10 cm
- Þvottur: Handþvottur, kalt vatn
Jaipur Peace Silk er unnið með dýravernd í huga. Lirfa mórberjafiðrildisins fær að fljúga úr púpunni áður en silkið er undið ofan af henni.
Jaipur Peace Silk er dásamlegt silki í grófleika mitt á milli fis- og fínbands. Fáanlegt í mörgum fallegum litum. Hentar í fíngerðar flíkur sem eiga að vera mjúkar og gljáandi t.d. gataprjónuð sjöl eða peysur, vefnað og vélprjón. Einnig ýmislegt á ungbörn, annað hvort úr einföldu eða tvöföldu garninu. Silki hefur temprandi eiginleika og er því svalt í heitu veðri og hlýtt í köldu. Garnmagn í meðal kvenpeysu um 300g.
Þvottur
Eingöngu handþvottur. Til að varðveita gljáann í mórberjasilki þarf að þvo það í höndum með sérstökum þvottalegi fyrir ull og silki. Athugið að það getur verið umframlitur í dökkum og skærum litum. Við mælum með því að skola garnið úr köldu vatni áður en flíkin er notuð. Setjið smá borðedik í síðasta skolvatnið. Þvoið alltaf úr köldu vatni.
-
Urth Yarns – UNEEK FINGERING
3.995kr. -
Afsláttur!
De Rerum Natura – CYRANO
1.957kr. – 2.995kr. -
VOLARE 4-ply merínóull
1.095kr. -
Afsláttur!
Brooklyn Tweed – SHELTER
2.195kr.Original price was: 2.195kr..1.537kr.Current price is: 1.537kr.. -
Pirkka – PIRKKALANKA OHUT
2.595kr.