20.995kr.

ADDI Click Lace Short hringprjónasett inniheldur 8 pör af prjónaoddum úr málmi í stærðum 3,5mm til 8mm. Hvert prjónaoddapar er með löngum og góðum oddum (lace), en prjónarnir sjálfir eru styttri svo hægt sé að nota til að mynda 40cm eða lengri hringprjóna.

Það fylgja með 5 addi snúrur, liprar eins og ADDI prjónasnúrurnar eru; 40cm, 50cm, 60cm, 80cm og 100cm.  Einnig fylgir með tengi til að tengja saman snúrur, gripbleðill til að auðvelda tengingu á oddi og snúru og gyllt næla til skrauts.

ADDI Click prjónunum er smellt við snúrurnar (enginn skrúfgangur) og losna því ekki á meðan prjónað er.

Hægt er að bæta við settið með því að kaupa fleiri stærðir af prjónaoddum, bæði styttri og allt uppí 12mm í löngum oddum. Einnig er hægt að kaupa viðbótar snúrur stakar.

Prjónasettið kemur í þægilegri tösku þar sem er rennt hólf fyrir alla smáhlutina og hver prjónn á sinn stað.

Uppselt