1.395kr.1.695kr.

Symfonie prjónaoddarnir fást í tveimur lengdum. Þessir eru lengri og passa fyrir snúrur sem mynda 60 cm langan hringprjón eða lengri.

Prjónaoddarnir eru skrúfaðir á snúrur sem fást í nokkrum lengdum. Snúrumegin við samskeytin eru göt þar sem meðfylgjandi pinna er stungið inn í til að herða og losa. Við mælum með því að pinninn sé alltaf notaður til og losa og festa prjónaodda og snúrur, annars getur prjónninn losnað á meðan prjónað er.

Þægindin við að nota samsetta prjóna eru ótvíræð. Þá þarf maður ekki að eiga næstum eins marga prjóna, því samsetningarmöguleikarnir eru svo miklir.