• Falleg og vönduð útsaumsskæri í klassíska storkalaginu, en með bláu/grænu handfangi. Paisley blómamynstur, mynstrið raðast á mismunandi hátt og eru því engin skæri alveg eins. Stærð 12 cm.
  • Útsaumsskæri frá FISKARS. Stærð 13 cm. Vönduð skæri unnin úr endurunnu og endurnýtanlegu hráefni.  Einstaklega þægileg og klippa vel.
  • Saumaskærasett frá FISKARS. Margnota skæri lengd 21 cm ásamt útsaumsskærum 13 cm. Vönduð skæri unnin úr endurunnu og endurnýtanlegu hráefni (renew).  Einstaklega þægileg og klippa vel.
  • Bleik útsaumsskæri með góðum oddi með slíðri. Falleg og góð fyrir útsauminn eða til að klippa spotta. Stærð: 9,5 cm.
  • Hefðbundin útsaumskæri með svörtu handfangi. Falleg og góð fyrir útsauminn eða til að klippa spotta. Stærð: 9 cm.
  • Hefðbundin útsaumskæri, lítil og handhæg.  Þau eru ekki bara falleg heldur góð fyrir útsauminn eða til að klippa spotta. Stærð: 9,5 cm.
  • Hefðbundin storkaskæri eru ekki bara falleg heldur góð fyrir útsauminn eða til að klippa spotta. Stærð: 9 cm.
  • Maker's Canvas skæri með slíðri Lítil og sæt skæri, fullkomin viðbót við töskurnar frá Della Q.  Sömu litir fáanlegir. Slíðrið er úr V-laga kakíefni og leðri með smellu úr bronsi. Skærin eru svört merkt með 'Q' lógói. Framleiðandinn hefur sjálfbærni að leiðarljósi við framleiðslu þessarar vöru. Hvert skæraslíður er handunnið og tímalaus hönnun.
  • Merchant & Mills skæri - 9 cm. Gyllt skæri, ekki bara falleg heldur líka beitt. Frábær í útsauminn, prjónið eða að hafa til taks við saumavélina til að klippa spotta. Eggin á skærunum er 3 cm. M-ið stendur fyrir Merchant & Mills sem er þekkt, breskt fyrirtæki sem leggur áherslu á að gera upplifun þeirra sem sauma skemmtilega.  
  • Merchant & Mills skæri - 10 cm. Frábær skæri; beitt og svört með slétta áferð. M-ið stendur fyrir Merchant & Mills sem er þekkt, breskt fyrirtæki sem leggur áherslu á að gera upplifun þeirra sem sauma skemmtilega.
  • Merchant & Mills nálar. Betweens eru hefðbundnar stuttar saumnálar sem klæðskerar nota t.d. til að sauma falda. Nú orðið eru þær mikið notaðar í bútasaumi en eru samt sem áður góðar í allan almennan handsaum. Blanda af 12 nálum í mismunandi grófleikum í glerflösku með gúmmítappa. Merchant & Mills er þekkt, breskt fyrirtæki sem leggur áherslu á að gera upplifun þeirra sem sauma skemmtilega.
  • Gylltu skærin frá ADDI eru aðeins 6,5 cm löng og eru því fyrirferðarlítil og frábær í prjónapokann.
Go to Top