Denim tvinni, sérstaklega hannaður fyrir viðgerðir á gallabuxum og öðrum fatnaði úr denim efni. Hreyfingin í litnum líkir eftir margþvegnum gallabuxum.
Extra sterkur tvinni úr 100% polyester. Grófari en hefðbundinn saumatvinni. Hentar í vélsaum og handsaum, stungur í gróf efni eins og kakí og denimefni.
Holoshimmer er glitþráður úr 60% polyester og 40% polyethylene. Glitþráðinn er hægt að nota í vélsaum, handsaum og leggja með garni í prjón og hekl.
Það glitrar hæfilega á hann og af því hann er svo fíngerður þá hefur hann engin áhrif á prjónfestuna. Upplagt þegar óskað er eftir smá gliti t.d. í mynsturkafla á peysu.
200m í kefli.
Hefbundinn saumatvinni úr 100% polyester. Hentar í allan vélsaum. Kosturinn við þennan tvinna er ekki bara styrkurinn, heldur gefur hann örlítið eftir. Þegar reynir á saum, þá eru minni líkur á saumsprettu ef þessi tvinni er notaður. Við mælum með þessum tvinna í verkefni með löngum saumum.
Hefbundinn saumatvinni úr 100% polyester. Hentar í allan vélsaum. Kosturinn við þennan tvinna er ekki bara styrkurinn, heldur gefur hann örlítið eftir. Þegar reynir á saum, þá eru minni líkur á saumsprettu ef þessi tvinni er notaður. Við mælum með þessum tvinna í verkefni með löngum saumum.
Sparkefli með 500m.
Þræðitvinni fyrir fatasaum, bútasaum og allan saumaskap. Auðvelt að ná þræðingunni úr því tvinnann er auðvelt að slíta þegar þarf. Einungis fyrir handsaum.
Jafanálar (oddlausar nálar) fyrir krosssaum eða annan útalinn útsaum, einnig frábærar í að ganga frá í prjóni.
Athugið að hærra númer = fínni nál.
Grófleikar í boði:
#13 - 2 stk/pk
#14 - 2 stk/pk
#14/18 - ein af hvorum grófleika.
#16 - 5 stk/pk
#18 - 6 stk/pk
#20 - 6 stk/pk
#22 - 6 stk/pk
Veljið hér fyrir neðan:
Jafanálar (oddlausar nálar) frágang í prjóni eða hekli. Bogni oddurinn gerir saumaskapinn auðveldari, sérstaklega þegar stykki eru saumuð saman eða t.d. í ítalskri affellingu.
Tvær nálar í pakka, fínni og grófari.
Leðurnálar sérstaklega ætlaðar fyrir að sauma í leður, rúskinn og gervileður. Oddurinn er þrístrendur svo hann komist í gegnum leðrið án þess að rífa það.
Þrjár nálar í pakka í stærðum 3, 5 og 7.
Höfundur: Katarina Brieditis & Katarina Evans
Mjúkspjalda | 48 bls.
Tungumál: Sænska
Þyngd: 150 g | Mál: 170 x 240 mm
Öll eigum við uppáhaldsflíkur sem kemur gat á eða aflagast vegna mikillar notkunar, fallegar flíkur sem þarf að endurnýja og gera við. Með því að gefa sér smá tíma og kærleik er hægt að styrkja, laga og setja persónulegan stíl á flíkina með skemmtilegri handavinnu.
Lappa er smárit í flokknum Lappa & Laga sem sænska heimilisiðnaðarfélagið gefur út. Þar er sýnt hvernig hægt er að gera við gallabuxur, skyrtukraga, peysur, fóður og fleira. Textílhönnuðurinn Katarina Brieditis og meistaraútsaumskonan Katarina Evans eru e.t.v. ekki uppteknar af því að sýna einföldustu leiðina til að gera við, en örugglega þá skemmtilegustu. Með því að nálgast vandamálið á skapandi hátt er hægt að finna óvæntar lausnir og bjarga uppáhaldsgallabuxunum svo dæmi sé nefnt.
E.S. Það er meira framleitt af fatnaði en við þurfum á að halda, við kaupum meiri fatnað en við þurfum á að halda og við losum okkur við meira af fatnaði en nauðsynlegt er. Það þarf ekki að vera þannig.
Höfundarnir og nöfnurnar Katarina Brieditis og Katarina Evans eru báðar hámenntaðar í textíl og hoknar af reynslu í þeim geira. Sú reynsla endurspeglast í bókinni.