-
- Nálarnar renna vel í gegnum efni.
- Nálarnar eru með gyllt auga sem er auðveldara að þræða.
- Nálarnar eru úr sérstaklega hertu stáli svo þær bogna hvorki né brotna.
- Nálaroddarnir eru beittir og henta í frjálsan útsaum, jafnvel með ullargarni því augað er stórt.
- Nálarnar fást í ýmsum grófleikum; hærra númer = fínni nál.
-
Þessar fingurbjargir sameina mýkt, teygjanleika og góða vörn. Á endanum er málmplata sem verndar fingurinn og gúmmíhlutinn hleypir lofti í gegn. Teygjanleikinn auðveldar fingurbjörginni að laga sig að fingrinum. Léttar og notendavænar. Mál
- Lítil (#6025) - 14,5 mm
- Miðstærð (#6026) - 15,5 mm
- Stór (#6027) - 17 mm
-
Holoshimmer er glitþráður úr 60% polyester og 40% polyethylene. Glitþráðinn er hægt að nota í vélsaum, handsaum og leggja með garni í prjón og hekl. Það glitrar hæfilega á hann og af því hann er svo fíngerður þá hefur hann engin áhrif á prjónfestuna. Upplagt þegar óskað er eftir smá gliti t.d. í mynsturkafla á peysu. 200m í kefli.
-
Höfundur: Katrina Rodabaugh Útgefandi: Abrams (2018)Harðspjalda | 224 bls. Tungumál: Enska Þyngd: 920 g | Mál: 186 x 236 x 22 mm
Mending Matters: Stitch, Patch, and Repair Your Favorite Denim & More
Mending Matters er bók fyrir þá sem vilja læra aðferðir við að gera við fatnað og fá hugmyndir að skemmtilegum útfærslum. Aðferðirnar skila nútímalegum og áberandi viðgerðum (engin ástæða til að þær sjáist ekki) með hefðbundnum sporum. Í grunninn eru aðferðirnar einfaldar en útfærslurnar geta verið margar.Í dag eru fataviðgerðir ekki aðeins skynsamlegar til að lengja líf fatnaðar, heldur nauðsynlegar fyrir umhverfið. Höfundurinn Katrina Rodabaugh fer í gegnum alls konar hugmyndafræði sem tengist fataviðgerðum í þessari bók, auk þess að undirstrika mikilvægi handavinnu. -
Fingurbjargir úr leðri sem laga sig að fingrinum. Það eru engir saumar á því svæði sem nálin snertir. Einstök lögunin myndar sléttan flöt yfir fingurgóminn.
- Engir saumar eða spor sem hindra þegar þrýst er á nálina.
- Saumaðir í þrívídd svo þær passi betur á fingurinn.
- Tvöfalt leður fyrir öryggið.
- Lítil (#6028) - 14,5 mm
- Miðstærð (#6029) - 16 mm
- Stór (#6030) - 17,5 mm
-
Höfundur: Aneela Hoey Útgefandi: C & T Publishing (2017)Mjúkspjalda | 112 bls. Tungumál: Enska Þyngd: 426 g | Mál: 203 x 254 x 9 mm
Stitched Sewing Organizers : Pretty Cases, Boxes, Pouches, Pincushions & More
Bókin sem beðið var eftir. Þau sem kunna að sauma ættu að geta nýtt sér þessa frábæru bók. Aneela Hoey sýnir okkur 15 flott og notendavæn verkefni til að koma skipulagi á handavinnudótið sitt; box, veski, pokar, nálapúðar o.fl. Hannað með það í huga að allt passi saman og nýtist hvað með öðru. Feitu fjórðungarnir nýtast vel í svona saumaverkefni svo ekki sé talað um allir afgangarnir af efnum sem safnast upp hjá saumurum. Sniðugar gjafir eða bara fyrir þig! Það er jafnvel hægt að ljúka við flóknari verkefnin í bókinni á einum degi. Frábært til að taka sér pásu frá stóru meira krefjandi verkefnunum. -
Höfundur: Nicholas Ball Útgefandi: Lucky Spool (2024)Harðspjalda | 176 bls. Tungumál: Enska Þyngd: 1215 g | Mál: 225 x 285 mmImprov bútasaumur er ekki nýr af nálinni. Hann hefur sér mikla sögu og vekur áhuga og innblástur. Slíkur bútasaumur hefur lengi verið annað en bara til nytja. Improv bútasaumur getur verið með pólitísk skilaboð, minningar um fallna ástvini, hann getur verið heilandi og hann stendur einnig sem viðurkennt listform. Það eru bæði sögulegar skrásetningar og persónulegar sögur í þessari tvískinnu, ,Use & Ornament'.
-
Höfundur: Love ProductionsÚtgefandi: Quadrille Publishing (2023) Harðspjalda | 128 bls. Stærð: 160 x 210 x 20 mm Tungumál: EnskaÞyngd: 550 g Sjónvarpsþátturinn The Great British Sewing Bee er raunveruleikaþáttur sem sýndur hefur verið á BBC 2. Þar keppast 12 snjallir áhugasaumarar um að gera fallegar flíkur og sína dómurunum Esme Young og Patrick Grant. Þessi bók er gerð af þáttaframleiðendunum og sýnir snjalla og góða tækni sem mikilvægt er að tileinka sér í fatasaumi. Farið er yfir mismunandi þykktir á efnum, fallegan frágang og ýmsar skreytingar á fatnaði.
-
Höfundur: Jen RichÚtgefandi: Octopus books 2023 Harðspjalda | 145 bls. Stærð: 235 x 166 x 19 mm Tungumál: Enska Þyngd: 495 g Stitch, Sewing Projects for the Modern Maker er falleg og stílhrein bók með 30 saumaverkefnum sem innihalda bæði töskur og poka, pottaleppa, körfur og ýmislegt nytsamlegt. Skýrar og einfaldar leiðbeiningar sem gott er að fylgja eftir.
-
"Quick-Cut" er þráðskeri sem flýtir fyrir þegar klippa þarf þræði eftir saumaskap. Hannaður til að skera á þræði fljótt og örugglega.
- Auðvelt aðgengi.
- Hentar jafnt tvinna sem garni.
- Fingurnir geta ekki snert hnífinn sem eykur öryggið.
-
Höfundur: Tone Finnanger Útgefandi: David & Charles (2017)Mjúkspjalda | 144 bls. Tungumál: Enska Þyngd: 580 g | Mál: 210 x 273 mm A brand new Tilda project book featuring stunning photography of the latest Tilda patchwork and quilting projects in the colourful new Tilda fabric ranges. In this glorious celebration of her love of fabric, you'll find over 20 sewing, patchwork, applique and quilting projects that will bring colour and beauty to your home. Projects include stunning quilts, pretty pillows, sophisticated soft toys, and beautiful accessories such as pincushions, pumpkins, flowers, stockings and more - all designed with characteristic Tilda charm. Featuring gorgeous photography, in-depth instructions and full-size templates, you'll soon be sewing by heart.
-
Hefbundinn saumatvinni úr 100% polyester. Hentar í allan vélsaum. Kosturinn við þennan tvinna er ekki bara styrkurinn, heldur gefur hann örlítið eftir. Þegar reynir á saum, þá eru minni líkur á saumsprettu ef þessi tvinni er notaður. Við mælum með þessum tvinna í verkefni með löngum saumum. Sparkefli með 500m.
-
Afsláttur!Góður alhliða tvinni í alls konar vél- og handsaum úr 100% endurunnu pólýester. 100m í kefli.
-
Höfundur: Katarina Brieditis & Katarina Evans Mjúkspjalda | 48 bls. Tungumál: SænskaÞyngd: 150 g | Mál: 170 x 240 mmÖll eigum við uppáhaldsflíkur sem kemur gat á eða aflagast vegna mikillar notkunar, fallegar flíkur sem þarf að endurnýja og gera við. Með því að gefa sér smá tíma og kærleik er hægt að styrkja, laga og setja persónulegan stíl á flíkina með skemmtilegri handavinnu. Lappa er smárit í flokknum Lappa & Laga sem sænska heimilisiðnaðarfélagið gefur út. Þar er sýnt hvernig hægt er að gera við gallabuxur, skyrtukraga, peysur, fóður og fleira. Textílhönnuðurinn Katarina Brieditis og meistaraútsaumskonan Katarina Evans eru e.t.v. ekki uppteknar af því að sýna einföldustu leiðina til að gera við, en örugglega þá skemmtilegustu. Með því að nálgast vandamálið á skapandi hátt er hægt að finna óvæntar lausnir og bjarga uppáhaldsgallabuxunum svo dæmi sé nefnt. E.S. Það er meira framleitt af fatnaði en við þurfum á að halda, við kaupum meiri fatnað en við þurfum á að halda og við losum okkur við meira af fatnaði en nauðsynlegt er. Það þarf ekki að vera þannig. Höfundarnir og nöfnurnar Katarina Brieditis og Katarina Evans eru báðar hámenntaðar í textíl og hoknar af reynslu í þeim geira. Sú reynsla endurspeglast í bókinni.
-
Höfundur: Carolyn N.K. Denham - Merchant & Mills Ùtgefandi: Pavilion Books (2014)Mjúkspjalda | 256 bls. Tungumál: Enska Þyngd: 250 g | Mál: 130 x 180 x 15 mmHandhæg og flott bók frá Merchant & Mills sem eru sérfræðingar í fatasaumi. Í bókinni er svarað helstu spurningum um fatsaum og saumaskap. Troðfull bók að nytsamlegum upplýsingum um efni, áhöld og aðferðir.Dæmi um umfjöllunarefni: Frá undirbúningi til frágangs, mælingar og merkingar, sniðsaumar og rykkingar, saumar, hreyfivídd, faldar, fóður og festingar eins og tölur eða hnappar og rennilásar. Það eru upplýsingar um hvernig á að nota og skilja snið, grunnbreytingar á sniðum og fullt af ráðum um hvernig á að nota besta vin fatasaumarans; straujárnið.
-
Afsláttur!CLOVER segulpúðar (eða segulbakki) þjóna sama hlutverki og nálapúðar, nálar og títuprjónar festast við. Þegar setið er við saumavél hoppar títuprjóninn í púðann þegar honum er haldið nálægt og það sparar tíma. Kemur með loki sem heldur öllu á sínum stað og nokkrum títuprjónum.
-
- Nálarnar eru með gyllt auga. Efst er U-laga op sem strekktur þráðurinn er lagður ofan á og smokrað í gegn. Þannig þræðist nálin án þess að stinga þurfi í gegnum nálaraugað. Sparar tíma og auðveldar þræðingu.
- Nálarnar renna vel í gegnum efni.
- Nálarnar eru sérstaklega hertar svo þær bogna hvorki né brotna.
- Nálaroddarnir eru beittir.
- 5 stk. í pakka í mismunandi stærðum.
-
- Nálarnar renna vel í gegnum efni.
- Nálarnar eru með gyllt auga sem er auðveldara að þræða.
- Nálarnar eru úr sérstaklega hertu stáli svo þær bogna hvorki né brotna.
- Nálaroddarnir eru bljúgir og hentar í úttalinn útsaum eða frágang í prjóni eða annarri garnvinnu.
- Nálarnar fást í ýmsum grófleikum; hærra númer = fínni nál.
-
Afsláttur!Segularmband sem geymir nálar, títuprjóna og jafnvel lítil skæri á meðan saumað er. Þægilegt í notkun og sparar vinnu og tíma. Raufin í miðjunni auðveldar að ná takinu af nálunum/títuprjónunum. Ef eitthvað dettur á gólfið eða ofan í skúffu er leikur einn að halda seglinum nálægt og allt sem loðir við segul hoppar upp í hann!
-
For marking and creasing in patchwork, quilting, and sewing applications. Features:
- With its small tip, the "HERA" Marker is easy to handle and best suited for marking and creasing the seam allowance in such works as small applique and reverse applique.
- The other end of the marker is thinner, which is useful for folding back the applique and reverse applique.
- Urea Resin
-
Áfylling á fatakrít í duftformi. Fást í 4 litum: Gul, hvít, bleik, blá og silfur. Fatakrít með lausu dufti er frábært áhald til að merkja efni. Í stað þess að draga blýant eða penna eftir efninu, er hjóli á enda krítarhylkisins rúllað til að merkja línu. Hjólið er með örlitlum götum sem hleypa krítinni út um leið og þrýst er á það. Það myndast lína með þéttum, smáum punktum. Krítin þvæst auðveldlega úr. Hægt að velja um mismunandi liti eftir lit efnisins sem vinna á með.
-
Fatakrít í duftformi. Hægt að kaupa áfyllingar í 5 litum. Fatakrít með lausu dufti er frábært áhald til að merkja efni. Í stað þess að draga blýant eða penna eftir efninu, er hjóli á enda krítarhylkisins rúllað til að merkja línu. Hjólið er með örlitlum götum sem hleypa krítinni út um leið og þrýst er á það. Það myndast lína með þéttum, smáum punktum. Krítin þvæst auðveldlega úr. Hægt að velja um mismunandi liti eftir lit efnisins sem vinna á með.