• Della Q sokkaprjónaveskin koma skipulagi á sokkaprjónana. Það rúmar mikið en er  samt hæfilega stórt til að taka með í ferðalagið. Hver vasi er merktur svo að hver grófleiki rati í réttan vasa. Það eru fjórtán vasar merktir með 2 mm upp í 6,5 mm og að auki eru tveir ómerktir vasar. Tveimur vösum er lokað með rennilás fyrir prjónamerkin, málbandið, nálar eða annað. Þetta er eitt vinsælasta prjónaveskið frá Dellu Q enda kemst ótrúlega mikið í það. Stærð: Lokað: 16,5 x 26 cm
    Opið: 50 cm x 47 cm Linen línan - Ytra byrðið og vasarnir eru úr líni (hör) og innra byrðið (röndótta) úr bómullarefni. Til að loka veskinu er þykk snúruteygja sem smeygt er utan um stóra kókostölu. Teygjan tryggir að hægt er að loka veskinu þó að það sé troðfullt af prjónum!
  • Della Q hring- & sokkaprjónaveskin koma skipulagi á hringprjónana og sokkaprjónana. Það rúmar mikið en er  samt hæfilega stórt til að taka með í ferðalagið. Hver vasi er merktur svo að hver grófleiki rati í réttan vasa. Það komast nokkrir hringprjónar í hvern vasa, því við eigum jú oftast mismunandi lengdir í hverju númeri. Merkingarnar fyrir hringprjónana eru frá 3,25 mm upp í 10 mm og að auki tveir ómerktir vasar. Sokkaprjónavasarnir eru merktir með 2 mm upp í 6,5 mm og að auki eru fjórir ómerktir vasar. Tveimur vösum er lokað með rennilás fyrir prjónamerkin, málbandið, nálar eða annað. Þetta er eitt vinsælasta prjónaveskið frá Dellu Q enda kemst ótrúlega mikið í það. Stærð: Lokað: 12,5 cm x 25,5 cm
    Opið: 52 cm x 45 cm Linen línan - Ytra byrðið og vasarnir eru úr líni (hör) og innra byrðið (röndótta) úr bómullarefni. Til að loka veskinu er þykk snúruteygja sem smeygt er utan um stóra kókostölu. Teygjan tryggir að hægt er að loka veskinu þó að það sé troðfullt af prjónum!
  • Þetta prjónaveski eða prjónahirsla er hönnuð með þarfir prjónarans í huga. Þægilegt til að hafa hringprjónana á einum stað og gott skipuleg á þeim. Veskið er með rennilás á þremur hliðum og opnast eins og harmonikka. Ellefu vasar geyma allar stærðir af hringprjónum. Það fylgja með ómerktir límmiðar í pastellitum til að merkja vasana í samræmi við þína prjónaeign. Ytra byrðið er úr sterku bómullakakí, bryddað með leðurlíki. Þægilegt handfang til að halda á töskunni. Málmfestingar eru úr messing.

    Stærð: 20 x 14 x 7,5 cm Hannað fyrir skapandi einstaklinga heima eða á ferðinni. Sjá einnig Hook & Needle skipulagsmöppuna sem er í stíl og kemur í sömu litum. Framleiðandinn hefur sjálfbærni að leiðarljósi við framleiðslu þessarar tösku. Hver taska er handunnin og tímalaus hönnun.
  • Maker's Canvas Satchel taskan er fyrir þá sem vilja það besta. Hún er hönnuð í anda gömlu læknataskanna. Hún opnast vel og helst opin þannig að auðvelt er að hafa yfirlit yfir allt innihaldið. Botninn er flatur og því stendur taskan vel og getur virkað sem karfa á meðan prjónað er. Tvær krækjur loka töskunni, það er fullt af vösum og stöðum til að geyma allt smádótið og verkefnin. Bryddingar, höldur o.fl. eru úr leðri með festingum úr antík bronsi. Hugað  er að öllum smáatriðum. Taskan er nútímaleg og hefðbundin í senn, hefur mikið notagildi og fer aldrei úr tísku! Góð handtaska fyrir prjónalífið og hversdagslífið. Hönnuð fyrir skapandi einstaklinga á ferðinni. Framleiðandinn hefur sjálfbærni að leiðarljósi við framleiðslu þessarar tösku. Hver taska er handunnin og tímalaus hönnun.
  • Þetta er rúmgóð hliðartaska, sem er hægt að láta hanga beint eða á ská. Sem taska í lítilli/miðstærð er líka hægt að taka hölduna af og nota sem veski. Hugað  er að öllum smáatriðum. Taskan er nútímaleg og hefðbundin í senn, hefur mikið notagildi og fer aldrei úr tísku! Hugsuð fyrir prjónaverkefnið eða hvað sem er. Góð handtaska fyrir hversdagslífið. Hönnuð fyrir skapandi einstaklinga á ferðinni. Taska fyrir þau sem eru að leita að lítilli til meðalstórri tösku, fullkomin fyrir prjónaverkefnið en líka sem venjuleg handtaska. Hagstæð stærð og verð! Framleiðandinn hefur sjálfbærni að leiðarljósi við framleiðslu þessarar tösku. Hver taska er handunnin og tímalaus hönnun.
  • Þetta er rúmgóð hliðartaska með góðu handfangi. Vandlega handunnin taska þar sem hugað er að öllum smáatriðum. Nútímaleg og hefðbundin í senn, taska sem hefur mikið notagildi og fer aldrei úr tísku! Hugsuð fyrir prjónaverkefnið eða hvað sem er. Góð handtaska fyrir hversdagslífið. Hönnuð fyrir skapandi einstaklinga á ferðinni. Framleiðandinn hefur sjálfbærni að leiðarljósi við framleiðslu þessarar tösku. Hver taska er handunnin og tímalaus hönnun.
  • Maker’s Backpack er bakpokinn fyrir alla sem stunda hvers kyns handíðir og eru á ferðinni, en líka fyrir hina því þetta fyrst og fremst góður og vandaður bakpoki. Axlarólarnar eru nógu breiðar til að dreifa þyngdinni í bakpokanum jafnt. Hann getur staðið óstuddur þökk sé fimm málmtöppum sem veita stuðning en koma líka í veg fyrir að botninn óhreinkist. Handföngin efst á töskunni eru þægileg en þau er líka hægt að taka af ef vill. Á annarri hliðinni er sérstakur vasi fyrir prjóna og /eða heklunálar. Sérstakt hólf er fyrir VÍV (verk í vinnslu), staður fyrir símann og margt annað.  Góð taska fyrir hversdagslífið. Hönnuð fyrir skapandi einstaklinga á ferðinni. Framleiðandinn hefur sjálfbærni að leiðarljósi við framleiðslu þessarar tösku. Hver taska er handunnin og tímalaus hönnun.
Go to Top