Mjúkspjalda | 104 bls.
Tungumál: Enska
Þyngd: 520 g | Mál: 220 x 280 x 8 mm
-
Afsláttur!Höfundur: Kim Hargreaves Útgefandi: Kim Hargreaves (2010)
-
TILBOÐSVERÐ! Höfundur: Heli NikulaÚtgefandi: Vaka Helgafell (2024) Harðspjalda | 285 bls. Tungumál: Íslenska Þyngd: 1.285 gULLARÆÐI 2Hin finnska Heli Nikula sló í gegn á Instagram með síðuna sína VILLAHULLU sem þýðir bókstaflega ullaræði. Þess var ekki langt að bíða að bókaútgefandi hafði samband við hana og lagði til að hún skrifaði prjónabók. Hún er mikill aðdáandi lopapeysunnar en fer sínar eigin leiðir í mynsturgerð og peysuhönnun. Í bókinni er bæði að finna uppskriftir, fyrir fullorðna, fyrst og fremst peysur en líka húfur, lambhúshettu og vettlinga. Hún notar sjálf mest lopa en einnig aðra ull í tveimur grófleikum; þykkband fyrir prjóna 4,5-5 mm og grófband fyrir prjóna 6-7 mm. Hér er að finna margar skemmtilegar peysuuppskriftir sem eiga eftir að verða klassískar. Peysurnar eru allar prjónaðar á hefðbundinn hátt, neðan frá og upp. Það er nýr og ferskur blær yfir þessari bók og hún verður mikill fengur fyrir aðdáendur lopapeysunnar. Guðrún Hannele Henttinen þýddi.
-
Höfundur: Leeni Hoimela Ùtgefandi: Cozy Publishing (2024) Harðspjalda | 199 bls. Tungumál: EnskaÞyngd: 820 g | Mál: 215 x 265 mm
Urban knit : Modern Nordic Patterns
Urban Knit Classics er eftir hina hæfileikaríku Leeni Hoimela frá Finnlandi. Þetta er þriðja bókin sem við erum með frá henni. Stíllinn höfðar til marga nútímaprjónara, norrænn og klassískur. Peysur og fylgihlutir prjónaðir úr gæðagarni sem eiga að standast tímans tönn, halda notagildi sínu í mörg ár. Allt í takt við nýja tíma þegar við vöndum okkur við fatavalið og eigum þau lengi. Uppskriftir eftir Leeni Hoimela haf áður birst í Laine Magazine og fleiri tímaritum. -
Höfundur: Leeni Hoimela Ùtgefandi: Cozy Publishing (2022) Harðspjalda | 183 bls. Tungumál: EnskaÞyngd: 835 g | Mál: 215 x 265 mm
Urban knit Easy
Urban Knit Easy er sérstaklega falleg prjónabók með peysum og fylgihlutum eftir Leeni Hoimela frá Finnlandi. Þetta er önnur bókin sem við erum með frá henni. Leeni er einstaklega smekklega kona og stíllinn hennar afslappaður og höfðar til margra prjónara í dag. Uppskriftir eftir Leeni Hoimela haf áður birst í Laine Magazine og fleiri tímaritum. -
Höfundur: Aimée Gille Útgefandi: Laine Publishing (2021)Harðspjalda | 160 bls. Tungumál: Enska Þyngd: 650 g | Mál: 190 x 225 x 17 mmÞessi fallega bók kemur frá LAINE. Worsted er safn 14 prjónauppskrifta eftir tíu flotta hönnuði. Aimée Gille frá La Bien Aimée ritstýrði og valdi uppskriftirnar. Mismunandi prjóntækni og fjölbreytileiki einkennir bókina. Sami grófleiki af garni, þykkband / worsted / aran er notaður í allar uppskriftirnar. Á meðal 14 uppskrifta eru 5 peysur, 2 golftreyjur, 1 slá, 3 sjöl, 2 kragar og 1 húfa. Peysurnar eru í mörgum stærðum frá stærð 1 (75 cm yfirvídd) upp í stærð 8 (165 cm yfirvídd).