Útgefandi: Vaka Helgafell (2024)
Harðspjalda | 285 bls.
Tungumál: Íslenska
Þyngd: 1.285 g
ULLARÆÐI 2
Hin finnska Heli Nikula sló í gegn á Instagram með síðuna sína VILLAHULLU sem þýðir bókstaflega ullaræði. Þess var ekki langt að bíða að bókaútgefandi hafði samband við hana og lagði til að hún skrifaði prjónabók. Hún er mikill aðdáandi lopapeysunnar en fer sínar eigin leiðir í mynsturgerð og peysuhönnun. Í bókinni er bæði að finna uppskriftir, fyrir fullorðna, fyrst og fremst peysur en líka húfur, lambhúshettu og vettlinga. Hún notar sjálf mest lopa en einnig aðra ull í tveimur grófleikum; þykkband fyrir prjóna 4,5-5 mm og grófband fyrir prjóna 6-7 mm. Hér er að finna margar skemmtilegar peysuuppskriftir sem eiga eftir að verða klassískar.
Peysurnar eru allar prjónaðar á hefðbundinn hátt, neðan frá og upp.
Það er nýr og ferskur blær yfir þessari bók og hún verður mikill fengur fyrir aðdáendur lopapeysunnar.
Guðrún Hannele Henttinen þýddi.
Tungumál: Enska & hollenska (sama heftið)
Þyngd: 160 g | Mál: 21 x 29 mm
NOVITA gefur reglulega út prjónahefti með uppskriftum. Í þessu hefti eru 11 uppskriftir af peysum og fylgihlutum karlmenn og smábörn.
Peysurnar eru stílhreinar og klassískar og hannaðar til að nota vel og lengi. Uppskriftirnar eru á tveimur tungumálum; ensku og hollensku.
Tungumál: Sænska
Þyngd: 350 g | Mál: 21 x 29,5 mm
NOVITA tímaritin koma út fjórum sinnum á ári; vor-, sumar-, haust- og vetrarblöð. Hvert tímarit með um eða yfir 40 uppskriftum fyrir börn, fullorðna og heimilið.
Uppskriftirnar eru með teikningum ef við á og er auðvelt að fylgja. Í hverju blaði er er kennsla á tiltekinni aðferð í hannyrðum.
Höfundur: Karin Kahnlund
Harðspjalda | 151 bls.
Tungumál: Sænska
Þyngd: 550 g | Mál: 177 x 253 x 19 mm
Prjónameistarinn Karin Kahnlund prjónar vettlingar allan ársins hring.
Í Svíþjóð eru veturnir kaldir og vettlingar nauðsynlegir. Allir eiga vettlinga og það er löng vettlingahefð í Svíþjóð. Í bókinni eru hefðbundnir sænskir vettlingar ásamt nýrri hönnun; fingravettlingar, belgvettlingar, og grifflur í mörgum ólíkum útfærslum.
Karin Kahnlund gerir góðar uppskriftir með smáatriðum og tækni þannig að prjónarar geti gert mismunandi kanta, stofna, þumaltungur, úrtökur á totu og mynstur. Virkilega eiguleg bók fyrir áhugafólk um vettlingaprjón.
Höfundur: Kate Davies
Útgefandi: Kate Davies Designs (2020)
Mjúkspjalda | 119 bls.
Tungumál: Enska
Þyngd: 470 g | Mál: 210 x 260 mm
Warm Hands
Dásamlega falleg vettlingabók þar sem líka leynast handstúkur og grifflur.
When Jeanette Sloan and Kate Davies got together to develop a new design collection the results were sure to be colourful and creative. From their line-up of 15 original patterns, you might choose to knit mismatched mitts in bold two-tone intarsia or a dramatic pair of elbow-length cabled gauntlets. From warm mittens to delicate wristlets, from fingerless to full gloves, Jeanette and Kate’s design selection includes a wide variety of shades and styles, while among the book’s many different takes on texture, lace and colourwork, you’ll be sure to find your favourite kind of knitting, or interesting new techniques to explore. Featuring patterns from globally-renowned knitting names alongside the work of talented new faces, this innovative collection brings the work of designers around the world together with fresh ideas, ready needles—and warm hands.
Tungumál: Enska, þýska & hollenska og sænska (sama heftið)
Þyngd: 475 g | Mál: 21 x 27 mm
NOVITA gefur reglulega út prjónahefti með uppskriftum. Í þessu hefti eru þau í samstarfi við hið alkunna ARABIA fyrirtækið, sem gerir ýmsa fallega heimilismuni, keramik og textíl. Í blaðinu má finna 23 uppskriftir af ýmsum nytja og skrautmunum, til dæmis púðum, glasamottum, teppu, mottu, peysu og tösku.
Tungumál: Enska, þýska & hollenska (sama heftið)
Þyngd: 475 g | Mál: 21 x 27 mm
NOVITA gefur reglulega út prjónahefti með uppskriftum. Í þessu hefti eru 12 uppskriftir af peysum og fylgihlutum. Peysurnar eru allar stílhreinar og klassískar kvenpeysur sem hafa mikið notagildi. Uppskriftirnar eru á þremur tungumálum; ensku, hollensku og þýsku.
Novita Essentials inniheldur uppskriftir fyrir byrjendur og lengra komna prjónara.
Athugið að myndirnar eru af áhugasömum prjónurum sem hafa sent Novita sína útfærslu af peysum úr heftinu.
Tungumál: Sænska
Þyngd: 350 g | Mál: 21 x 29,5 mm
NOVITA tímaritin koma út fjórum sinnum á ári; vor-, sumar-, haust- og vetrarblöð. Hvert tímarit með um eða yfir 40 uppskriftum fyrir börn, fullorðna og heimilið.
Uppskriftirnar eru með teikningum ef við á og er auðvelt að fylgja. Í hverju blaði er er kennsla á tiltekinni aðferð í hannyrðum.
Mjúkspjalda | 161 bls.
Tungumál: Enska
Þyngd: 850 g | Mál: 240 x 310 mm
ROWAN tímaritin koma út tvisvar á ári, vor- og sumarblað og haust- og vetrarblað. Hver tímarit er fullt af uppskriftum fyrir dömur og herra, peysur og fylgihlutir eftir helstu hönnuði Rowan hvers tíma. Flestar uppskriftirnar eru fyrir prjón en það eru einnig hekluppskriftir inn á milli.
Í nýjustu blöðunum hefur peysum sem eru prjónaðar í hring og jafnvel ofan frá fjölgað.
Storkurinn er ein af fáum garnbúðum sem hafa selt Rowan garn og tímarit frá upphafi Rowan. Við eigum því sýnishorn af öllum útgefnum blöðum og mörg þeirra eru enn í sölu.