25 cm lengdareining = 675 kr. Metraverð 2.700 kr. TONAL DITZY  er bómullarefni frá Andover í Bretlandi. Efnin eru öll með fíngerðu mynstri og henta því einnig í bakgrunna. Litapallettan er klassísk og falleg og efnin passa vel saman hvert með öðru eða með öðrum efnum. Hver lengdareining er 25 cm x 110 cm (breidd efnisins). Hægt er að velja eina eða fleiri lengdareiningar og við afgreiðum efnið í einum bút. 1 eining = 25 cm, 2 einingar = 50 cm, 3 einingar = 75 cm, 4 einingar = 100 cm. Athugið að það getur verið erfitt að sýna hárétta liti á tölvuskjá eða símaskjá.