Brooklyn Tweed eru þekkt fyrir góðar, vel útfærðar uppskriftir. Vinnulýsingar og mynsturteikningar ítarlegar og margar ljósmyndir. Hér er fallegur kragi sem passar bæði fyrir konur og karla. Notaðir eru þrír grófleikar af prjónum til að ná víddinni sem þarf.
Þessi uppskrift er seld útprentuð á góðan pappír (12 bls. hefti) og er á ENSKU. Ath. ef þú ert eingöngu að kaupa eina útprentaða uppskrift og vilt fá hana senda veldu þá sækja í verslun og við sendum uppskriftina sem bréfapóst.